10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)

209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Það er aðeins örstutt aths. við það atriði, sem kom fram hjá hv. 5. þm. Sunnl. og einnig nú síðar hjá hæstv. iðnrh. Hv. 5. þm. Sunnl. sagði réttilega, að sjávarútvegurinn stendur undir verulegum hluta og langstærstum hluta af útflutningstekjum þjóðarinnar og hlýtur þar af leiðandi beint og óbeint, eins og þessi hv. þm. sagði, að standa undir verulegum hluta af þjóðartekjunum og þá einnig tekjum ríkissjóðs. Nú kom það fram hjá báðum þessum hv. þm., að vegna þess að ríkissjóður legði þarna fram tiltekna upphæð, þá ætti ríkisvaldið að skipa meiri hl. stjórnarinnar. En ég spyr nú: Ef það er rétt, sem ég tel vera rétt hjá hv. 5. þm. Sunnl., að sjávarútvegurinn standi beint og óbeint undir verulegum tekjum bæði ríkissjóðs og þjóðarinnar, hvaðan kemur þá þetta fé, sem þarna er verið að ræða um? Kemur það ekki að meiri hluta, langmestum hluta, frá sjávarútveginum? Og er þá nokkuð óeðlilegt, að þeir menn, sem vilja vinna að þessari iðngrein innan sjávarútvegsins, hafi meiri hl. í stjórninni? Ég tel það alveg rökrétt, að þeir fái meiri hl., þegar þeir standa, eins og hv. 5. þm. Sunnl. réttilega benti á, undir verulegum hluta af tekjum ríkissjóðs og þjóðfélagsins í heild.

Hv. 2. landsk. þm. lét þess getið hér í sinni ræðu, að hann tryði ekki á, að þeir menn, sem áður hefðu staðið fyrir fiskiðnaðinum, væru þess megnugir að gera það í framtíðinni, þess vegna yrði ríkisvaldið að grípa inn í. Það er alveg rétt. Það hafa orðið ýmis mistök hjá niðursuðuiðnaðinum og er ekkert óeðlilegt. Þetta er til þess að gera ný iðngrein hér á landi. Þar hafa margir góðir menn lagt hönd á plóginn, en það hefur farið því miður á annan veg heldur en til hefur verið ætlazt. Þetta verðum við að viðurkenna. En ég segi: Dettur nokkrum manni í hug, þó að hæstv. iðnrh., hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. skipi sinn manninn hver í meiri hl. stjórnarinnar, að það verði til að ráða úrslitum í þá átt, að þarna verði gerbreyting á? Ég hygg, að því sé alveg öfugt farið, og þó að það yrði farið að ráða einhverja pólitíska gæðinga til þess að standa fyrir þessari stofnun og veita henni forstöðu, þá yrði það ekki til bóta fyrir niðursuðuiðnaðinn í heild. Ég er alveg sannfærður um, að það verður ekki. Ég held, að það sé bezt, eins og hér hefur komið fram, að þeir menn, sem þarna vilja leggja fram bæði fjármagn, vinnu sina og hætta eignum sínum, þeir fái að ráða þessum málum. Ég hygg, að það fari miklu betur úr hendi heldur en að rn. fari að skipa meiri hl. í fyrirtæki kannske mönnum, sem litla eða enga reynslu hefðu í þessum málum.