15.05.1972
Neðri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
209. mál, Sölustofnun lagmetisiðnaðarins
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég gat þess við 1. umr. um þetta mál, að ég mundi eftir atvikum geta fallizt á ákvæði 6. gr., ef breyting yrði á frv. þess efnis, að stjórn stofnunarinnar yrði skipuð þremur fulltrúum framleiðenda, en aðeins tveimur fulltrúum frá ríkisvaldinu. Nú hefur það gerzt, að till. þar að lútandi hefur verið felld, og tel ég mig þá lausan af þeirri yfirlýsingu, sem ég gaf um þetta efni við 1. umr. Ég þarf ekki að fjölyrða mikið frekar um þetta atriði. Ég sagði það við 1. umr. og það hefur einnig verið sagt nú af hv. 2. þm. Vestf., að þarna er verið að skerða tekjur útflutningssjóðs, sem að langmestu leyti eða 82% renna til að greiða vátryggingargjöld fiskiskipa. Ég tel það mjög miður farið, að það skuli vera farið inn á þá braut að breyta þeim reglum, sem upphaflega voru um þetta, að sjóðurinn gengi fyrst og fremst til þessara mála, sem ég hér minntist á, en er auðvitað skertur með því að nú á að fara að dreifa honum í fleiri áttir, sem ekki áður hafði verið gert ráð fyrir.
Ég vil í þessu sambandi leyfa mér að flytja hér skrifl. brtt. og fara fram á við hæstv. forseta, að um hana verði leitað afbrigða, en hún er þannig: „Við 6. gr. Greinin falli niður.“ Ef svo færi, að þessi till. yrði samþ., þyrfti einnig að breyta ákvæðum 4. gr., þar sem vitnað er til 6. gr., og er ég með brtt. um það, að niður falli orðin „og ákvæði 6. gr. um útflutningsgjöld“ í 3. mgr. 4. gr., sú till. verði einnig borin upp, ef fyrri till. skyldi verða samþ.