31.01.1972
Neðri deild: 36. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)
149. mál, Íþróttakennaraskóli Íslands
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Ég fagna góðum undirtektum hv. þm., sem hér hafa talað, við þetta frv., þeirra hv. 2. þm. Vestf. 9. landsk. þm. og 5. þm. Norðurl. e. Ég vona, að þessar góðu og jákvæðu undirtektir viti á það, að þetta frv. verði nú að lögum eftir langa mæðu, eftir að það er búið að vera á döfinni í 13 ár.
Hér hefur verið beint til mín fsp., og ég ætla að leyfa mér að svara fyrst fsp. hv. 5. þm. Norðurl. e. um, hvort uppi séu á vegum menntmrn. formlegar athuganir á endurskipan kennaramenntunar í landinu. Því er þar til að svara, að engin slík heildarathugun er í framkvæmd. Nýjasta stórbreyting, nýjasti stóratburður, í endurskipan kennaramenntunarinnar var stofnun Kennaraháskóla Íslands nú fyrir tiltölulega skömmu, og með samþykkt þeirra l. tók Alþ. svo örlagaríka ákvörðun um framkvæmd kennaramenntunarinnar, að ekki eru að mínu viti efnisleg tök á því að hefja allsherjarendurskoðun á kennaramenntuninni fyrr en nokkur reynsla er fengin af því, hvernig sú skipan, sem l. um Kennaraháskóla Íslands mæla fyrir um, reynist í framkvæmd. Kennaraháskóli Íslands tók í fyrsta skipti til starfa á nýliðnu hausti. Nú í dag var verið að skipa við hann fyrstu lektorana og kosning rektors mun líklega eiga sér stað alveg á næstunni, svo að þessi stofnun er rétt aðeins að hlaupa af stokkunum. Þetta er það svar, sem ég get gefið við fsp. hv. 5. þm. Norðurl. e. Honum kann máske að þykja það ófullnægjandi, en því miður get ég ekki meira um málið sagt, eins og það horfir við frá mínu sjónarmiði.
Spurning hv. 9. landsk. þm. var á þá leið, hvort farið hefði verið eftir óskum þeim, sem settar eru fram í fskj. með frv. frá tveim aðilum. Af sjálfu sér leiðir, að það hefur ekki verið farið eftir þeim óskum. Ef svo hefði verið gert, hefði rétt ein nefndin verið sett á stofn, henni verið fengið frv. til athugunar. Það hefði orðið, eins og gefur að skilja, mjög mikill ágreiningur og átök um veigamikil efnisatriði frv. Þar með hefði verið rækilega fyrir því séð, að málið hefði verið tafið í kannske nokkur ár enn. Að því vil ég ekki standa. Hins vegar liggja fyrir álit þessara aðila. Þau liggja hér fyrir allítarleg og — að því er virðist — þó nokkuð vel hugsað álit frá Samtökum ísl. kennaranema, námsfólkinu í Kennaraháskólanum. Álit Íþróttakennarafélagsins er hvergi nærri eins ítarlegt né þaulhugsað, en þar koma þó ákveðnar viljayfirlýsingar í ljós. Með því að fá þessum aðilum og reyndar fleirum, sem ekki svöruðu, frv. til athugunar, er fyrir því séð, að sjónarmið þessara aðila liggja fyrir Alþ., þegar það afgreiðir nú málið endanlega.
Ég hef séð ástæðu til að taka hér þegar í stað afstöðu af minni hálfu til eins meginatriðis í þessu máli — sem sé, hvort eigi að slá striki yfir það, sem gert hefur verið á Laugarvatni til að efla þar íþróttakennaraskóla, og fara að koma upp nýrri stofnun hér í Reykjavík. Þetta er svo mikið höfuðatriði, að ég vildi alls ekki láta undir höfuð leggjast að lýsa minni skoðun á því þegar í upphafi.
Svo koma fram í þessum álitum ýmis önnur atriði, sem ekki snerta jafnmikið kjarna málsins — sem sé, hvort uppbygging Íþróttakennaraskóla Íslands á að geta haldið áfram sem snurðuminnst á þeim grunni, sem þegar hefur verið lagður. Ég sé ekki ástæðu til að vera að gefa þeim till., sem fram koma í umsögnunum, einkunnir af minni hálfu. Það er alþm. og þá fyrst og fremst þeirrar n., sem málið fær til meðferðar, að líta á það og taka afstöðu til þess.
Ég mæli eindregið með því, að þetta frv. sé afgreitt frá Alþ. eftir þeim meginsjónarmiðum, sem þar koma fram. En ég ætla síður en svo að fara að gera það að kappsmáli eða gefa á nokkurn hátt í skyn, að ég ætli að beita mér fyrir því, að þar sé engum stafkrók haggað, öðru nær. Ég mun engin mál leggja fyrir háttv. Alþ. með því hugarfari.