19.10.1971
Neðri deild: 3. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)
3. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. hefur lagt til, að þessu máli verði vísað til n., sem ég á sæti í, þ. e. sjútvn., og þarf ég þess vegna ekki við þessa 1. umr. að vera langorður um málið. Það kom fram bæði hjá hv. 2. þm. Vestf. og hæstv. sjútvrh., að ráðstafanirnar, sem gerðar voru 1968 til að bæta rekstrargrundvöll sjávarútvegsins, hefðu verið nauðsynlegar, þar sem aðstæður í þjóðfélaginu hefðu þá verið á þann veg, að hjá róttækum ráðstöfunum varð ekki komizt.
Það hefur alltaf frá fyrstu tíð verið nokkur ágreiningur um það ákvæði, þar sem tekin var viss upphæð og undanskilin skiptaverði til handa sjávarútveginum og kom ekki til skipta handa sjómönnum. Ég tel, að þetta hafi nokkuð háð alla tíð eðlilegum samskiptum sjómanna og þeirra, sem útveg reka. Og ég hef alltaf verið sannfærður um það, að þetta mundi hverfa með tímanum, enda er það reynslan, að þetta var lækkað í samningum um síðustu áramót, og ég er alveg sannfærður um það, að hvaða ríkisstj. sem nú hefði tekið við eftir kosningar hér s. l. sumar, hefði tekið þetta ákvæði út úr l. annaðhvort eftir samkomulagi milli fiskseljenda og fiskkaupenda eða þá með beinu lagaákvæði, þannig að ég tel og hef alltaf litið þannig á, að þetta ætti að fara út, þegar aðstæður breyttust þannig, að hægt væri að gera það með eðlilegum hætti. En það er eitt í sambandi við ráðstafanirnar 1968, sem hvorki kom fram hjá 2. þm. Vestf. né hæstv. sjútvrh., en var þá grundvallaratriði, og ég ætla, að öllum þm. hafi verið það ljóst, að ef ráðstafanirnar hefðu ekki verið settar fram á þann veg, sem gert var, bæði með þessu ákvæði, sem ég hef hér minnzt á, og öðrum fleiri, þá hefði gengisbreytingin orðið að vera allmiklu hærri en hún þó var, og það hefði ekki verið til hagsbóta, hvorki fyrir sjómenn né þjóðfélagið í heild. Það var farið eins varlega í þá gengisbreytingu, þó að hún væri nokkuð há, og unnt var og áhrif hennar milduð með þeim hliðarráðstöfunum, sem þá voru gerðar.
Það var auðvitað að sjálfsögðu mjög skemmtilegt fyrir hæstv. núv. sjútvrh. að hafa aðstæður til þess að gera þær ráðstafanir, sem hann gerði. En hann hafði aðstöðu til þess eingöngu vegna þeirrar lagasetningar, sem sett var 1968, og síðan vegna þeirra breytinga, sem gerðar voru með l. um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Þetta fór, sem betur fer, allt nokkuð á annan og betri veg en menn þó þorðu að vona á þeim tíma. Verðjöfnunarsjóðurinn var orðinn fjársterkur. Það var þegar farið að grípa til hans til þess að breyta hlutaskiptunum í samningunum — um síðustu áramót var hlutfallið lækkað um 6%, en þrátt fyrir það var fyrirsjáanlegt, eins og hér hefur komið fram, að þarna var um mjög fjársterkan sjóð að ræða. Það, sem einfaldlega gerist með brbl., er það, að hæstv. sjútvrh. og ríkisstj. á þarna aðgang að fjármagni, sem er bein eign fiskvinnslunnar, útgerðarmanna og sjómanna. Ríkisstj. færir þarna á milli úr þessum sjóði, sem á að standa á bankabók í Seðlabankanum, yfir til þessara aðila aftur, en eftir öðrum reglum en áður hafði verið gert. Um þetta má kannske deila, ég segi það ekki. En ég segi bara fyrir mitt leyti, að ég er sannfærður um það, að þetta ákvæði hefði horfið úr þessum lögum, hvaða ríkisstj. sem hefði tekið við, annaðhvort með beinum samningum á milli þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli, eða þá á annan hátt.
Vegna þess að hv. 2. þm. Vestf. lét að því liggja, að hæstv. sjútvrh. hefði farið um landið og blekkt útgerðarmenn, og vegna þess að samkv. því virtist ekki vera samræmi í skoðunum útvegsmanna og stjórnar L. Í. Ú., þá vil ég taka fram, að ég sat á einum þessara funda, sem hæstv. ráðh. hélt í Vestmannaeyjum. Ég held, að útgerðarmenn bæði í Vestmannaeyjum og annars staðar þekki orðið vel hæstv. sjútvrh. Hann hefur lengi haft afskipti af þessum málum, og ég held, að þeir taki hann alveg með sæmilegri varúð. Þeir gera sér fulla grein fyrir hlutunum burtséð frá því, hvernig hann reynir að túlka málin. Þeir þekkja þessi mál ekkert síður en hann og eru að mínum dómi alveg dómbærir um það að taka afstöðu í þeim málum, hvort sem núv. hæstv. sjútvrh. líkar það betur eða verr.
En það er eitt í þessum málum, sem við skulum gera okkur alveg fulla grein fyrir og þeir menn vita, bæði ég og aðrir, sem í útgerð standa, að erfiðleikar eru fram undan þrátt fyrir þær miklu hækkanir, sem orðið hafa á kjörum sjómanna á þessu ári, því að það er um verulegar hækkanir að ræða, það held ég, að öllum sé ljóst. Fyrst hækka laun sjómanna um síðustu áramót, ef ég man rétt, um 25%, síðar á árinu um 5–10% og svo með þessum brbl. aftur um 18–19%. Þetta er veruleg hækkun til einnar stéttar á einu ári, og ég tel það vel, að þessi hækkun skuli hafa orðið. En þrátt fyrir þetta stöndum við frammi fyrir þeim vanda — og ég hygg, að það séu flestir útgerðarmenn sammála um það — að það hefur kannske aldrei verið erfiðara að fá sjómenn á bátaflotann til fiskveiða en kannske einmitt nú. Þetta er mikið vandamál, sem þarf að ráða fram úr, og getur vel komið til afskipta hv. Alþ. í því efni að leggja þar eitthvað til málanna, þannig að úr þessu verði bætt. Hv. 2. þm. Vestf. benti hér réttilega á eina leið, sem ég hygg, að muni verða nokkurs — kannske verulega — metin af hendi sjómanna, en það er, ef horfið væri að sérstökum auknum skattfríðindum umfram það, sem nú er. Það er alveg rétt, sem hér kom fram. Það kemur kannske ekki öllum að sama gagni, en við verðum að treysta því, að fiskverð verði þannig og aflabrögð verði þannig, að það verði ekki almennt um kauptryggingu að ræða, heldur verði um að ræða aflahlut, og ef það er, þá koma bein skattfríðindi mjög að gagni öllum, sem fiskveiðar stunda. Mér þótti vænt um, að hæstv. sjútvrh. tók þó ekki af skarið með það, að hann teldi ekki þá leið færa, heldur taldi hana mjög athyglisverða, og er þess að vænta, að þetta atriði verði tekið til sérstakrar athugunar á yfirstandandi þingi.
En ég fór aðallega í ræðustólinn til þess að undirstrika það, að mér er kunnugt um það, að það eru skiptar skoðanir hjá útgerðarmönnum um landið, hvort þessar ráðstafanir, sem gerðar voru, hafi verið eðlilegar og réttmætar eða hvort breyting á aðstöðu sjómanna hefði átt að gerast eftir öðrum leiðum, og þar eru ekki allir sammála stjórn L. Í. Ú.
Ég skal svo við þessa 1. umr. ekki fjölyrða frekar um málið. Ég endurtek það, sem ég sagði í upphafi máls míns, að þessu máli er vísað til n., sem ég á sæti í, og fæ ég þar aðstöðu til þess að gera grein fyrir afstöðu minni til málsins, þegar n. tekur það fyrir og skilar áliti.