17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1566 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

3. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis

Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er staðfesting á brbl., sem út voru gefin 21. júlí s. l. Í l. nr. 79 frá 31. des. 1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu, er m. a. gert ráð fyrir í 3. gr. l., að áður en aflaverðmæti sé skipt, skuli 11% af brúttósöluandvirði aflans dragast frá og ganga til útgerðaraðila sem hlutdeild í útgerðarkostnaði. Efni brbl. er um, að þessi kostnaðarhlutdeild falli niður og kaup sjómanna hækki um um það bil 18–19% með þessari ráðstöfun og öðrum — á aðaltegundum fiskaflans, en Verðlagsráð skyldi taka til nánari ákvörðunar lágmarksverð annarra fisktegunda.

Frv. þetta var afgr. shlj. úr Nd., og sjútvn. þessarar hv. d. leggur shlj. til, að frv. verði samþ. óbreytt.