10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)

251. mál, getraunir

Frsm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Frv. þetta til l. um getraunir hefur menntmn. haft til athugunar og orðið ásátt um að samþykkja það með þeim breyt., sem um getur á þskj. 740. Þær breyt., sem eru á því þskj., eru þannig til komnar, að dómsmrn. gerði ýmsar aths. við frv. þetta, sem leiddu til þess, að þær aths. voru síðar teknar upp af þeirri n., sem um málið hafði fjallað, og féllst menntmrn. á þetta fyrir sitt leyti. Þessar breyt. stefna í raun og veru nær allar í þá átt að gefa eða veita dómsmrn. eðlilega aðstöðu til að hafa eftirlit með starfrækslu getraunanna, þannig að það er ástæðulaust að fjölyrða um þessar breyt. Þó hefur hv. menntmn. til að sýna, að hún sé ekki með öllu skoðanalaus, fellt brott þau orð í 1. gr., þar sem talað er um hið frjálsa framtak áhugamanna. Okkur þótti bara rétt að tala um áhugamenn, því að í orðinu áhugamaður felst auðvitað hið frjálsa framtak, ef svo mætti segja. Einnig höfum við fellt niður orð úr 8. gr., þar sem talað er um virka félagslega aðild, enda er einsýnt, að félagsleg aðild hljóti að vera virk — að öðrum kosti er hún naumast félagsleg.

Um þetta frv. skal ég nú ekki orðlengja, nema aðeins benda á, að fjárþörf íþróttahreyfingarinnar er gífurleg og skiptir tugum millj. það fé, sem hún þarf á að halda árlega. Með getraununum er að verulegu leyti leystur þessi vandi, þótt enn sé óbrúað stórt bil, til þess að kostnaður, tekjur og gjöld standist á, en væntanlega munu tekjur af getraunum aukast, ef svo fer fram sem horfir, og verður þá aðstaða íþróttahreyfingarinnar í landinu öll önnur.