10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

251. mál, getraunir

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður, en þar sem síðasti ræðumaður, hv. 8. þm. Reykv., vék að því, að í hv. menntmn. hefðu átt sæti menn, sem væru kannske kunnugir íþróttahreyfingunni, þá tók ég a. m. k. þetta að einhverju leyti til mín, og af því tilefni vildi ég sem sé taka fram, að ég er síðasta ræðumanni sammála um það, að það sé vissulega óeðlilegt, að Íþróttasjóður og ríkisvaldið, eins og hann orðaði það, væru að taka þarna fé, sem væri aflað af hálfu hinnar frjálsu íþróttahreyfingar með fórnfúsu sjálfboðaliðsstarfi. Þetta sjónarmið get ég fyllilega tekið undir og tel þetta að öllu leyti vera miður, að þetta ákvæði skuli vera komið inn. En í mínum huga var það svo, að þetta frv. er lagt fram, eftir að þar til kjörin yfirstjórn íþróttahreyfingarinnar hefur fjallað um málið og náð ákveðnu samkomulagi um skiptingu tekna af þessari getraunastarfsemi. Skiptingin er að margra dómi nokkuð viðkvæm og erfið viðureignar, þar sem margir girnast stærri hluta af þessum tekjum en þeir fá. En þar sem samkomulag náðist um þessa skiptingu, þá taldi ég a. m. k. persónulega ekki rétt að vera að krukka frekar í það og fallast frekar á þetta frv., eins og það hefur verið samþ. af viðkomandi aðilum og lagt fram af hæstv. rn. Ég er hins vegar sammála þeim sjónarmiðum, sem hér komu fram.