26.04.1972
Neðri deild: 66. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)

10. mál, erfðafjárskattur

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég var nú farinn að óttast það, að þetta mál, sem var lagt fram í upphafi þings, ætlaði að verða úti á Kaldadal nefndanna, en ég fagna því, að svo verður ekki, þar sem það er komið úr n. og verður vafalaust afgreitt sem lög á þessu þingi.

Það er ekkert óeðlilegt, að það geti verið skiptar skoðanir um, að hve miklu leyti eða hvort skattleggja beri erfðafé, og eðlilega meta menn þetta pólitískt. Ég var því ekkert undrandi, þó að n. klofnaði um afgreiðslu málsins og menn greindi á um það, hve hár erfðafjárskattur ætti að vera, hve fljótt hann legðist á hinar mismunandi háu erfðafjárupphæðir og hverjir skyldu vera með öllu undanþegnir því að gjalda erfðafjárskatt. Það hefur líka sýnt sig, að n. hefur klofnað um þetta mál og er ekki um það að fást.

Ég tel það hafa verið bráðnauðsynlegt að breyta gildandi lögum um erfðafjárskatt. Lögin eru sem sé gömul, eins og hér var sagt af hv. frsm., frá 1921. Á þeim hafa að vísu verið gerðar smábreytingar síðan, en vegna hins gífurlega mismunar, sem er á verðgildi peninga nú og þá, þá voru ákvæðin um skattþrepin gersamlega orðin úrelt. Samkv. gildandi lögum er komið í hæsta skattþrep í 1. erfð við 36 þús. kr. upphæð, sem er engin upphæð í dag, og í 2. og 3. erfð er komið í hámark við 40 þús. kr. upphæð. Þetta eru óraunhæfar tölur. Nú er aftur sett hámark, og það er ekki komið í hámark fyrr en um milljónaupphæðir er að ræða. Meginatriðið er, að hámarksskattur samkv. frv. er hinn sami og samkv. gildandi lögum. Það er ekki farið yfir hámarkið, sem enn þá er í gildi. Það er staðnæmzt við það sama. Í 1. erfð er tekið 10% af erfðafénu, í 2. erfð 25% og í 3. erfð 50%. Af erfðafé til útarfa gengur sem sé helmingur til ríkisins. Svona hefur það verið og svona verður það, eftir að þetta frv. hefur verið lögfest. Hins vegar er því ekki að neita, að með tilliti til hins nýja fasteignamats verður afleiðingin af lögfestingu þessa frv. sú, að erfðafjársjóðurinn fær miklu meira fé inn, þó að þessi mörk séu óbreytt í hámarki, eins og þau hafa verið. Og það er líka að mínu áliti mjög eðlilegt, að niðurstaðan verði sú, að erfðafjársjóðurinn fái meira fé en hann hefur fengið samkv. gildandi löggjöf. Ég sé líka af nál. hv. minni hl., að um þetta hefur ekki verið ágreiningur í raun og veru, því að þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Við erum samþykk því, að nauðsyn beri til, að lög nr. 27, 27. apríl 1970, um endurhæfingu, nái tilgangi sínum.“

Það þýðir, að þeir, sem að þessu nál. standa, hljóta að vera þeirrar skoðunar, að erfðafjársjóður megi ekki fá minni tekjur en áður, úr því að þau vilja, að hann geti gegnt hlutverki sínu. Hlutverk sjóðsins er mikið og fjárfrekt. Ég hefði þess vegna vænzt þess í framhaldi af þessu í nál., að till. hefðu orðið um það, að a. m. k. yrði eitthvað um aukningu tekna hjá sjóðnum að ræða, en ekki skerðingu. En þar brast bogalistin og till. eru allar um það að skerða tekjumöguleika erfðafjársjóðsins frá því, sem í frv. er lagt til.

Ég tel meginatriðið vera það, að við erum að gera breytingu á lögum um erfðafjárskatt með tilliti til þess að gera erfðafjársjóðinn hæfari til þess að inna hlutverk sitt af hendi. Og hvert er þá hlutverk hans? Um það virðast ekki vera skiptar skoðanir, að hann þjóni góðu markmiði. Hlutverk erfðafjársjóðsins er að endurhæfa það fólk, sem af einhverjum ástæðum getur ekki séð sér farborða með eigin vinnu, eða skapa aðstöðu fyrir það fólk til þess að það geti starfað að nytsamlegum verkefnum. Þetta er hlutverk bæði í þjónustu einstaklinga, sem illa eru settir í þjóðfélaginu, og þjónustu þjóðfélagsins sjálfs til þess að nýta vinnuafl þess fólks, sem án aðstoðar frá þjóðfélagsins hendi getur ekki neytt krafta sinna, andlegra eða líkamlegra. Hér á erfðafjársjóðurinn að koma til. Með lögum frá 1970 voru sett ákvæði um endurhæfingu, og ef þessi lög eiga að ná markmiði sínu, þarf að fá miklar fjárupphæðir úr erfðafjársjóði. Í lögunum var um það talað, að reynt skyldi að koma upp endurhæfingarstöðvum í samstarfi við Landsspítalann og Reykjalund. Þau mál hafa verið til athugunar hjá stjórn sjóðsins. En niðurstaða allra í endurhæfingarráði er sú, að hér verði, ef þetta eigi að ná að fullu tilgangi sínum, að setja upp sérstaka endurhæfingarstöð, sem vitað er nú þegar, að kosti margar millj. kr. Þetta er eitt af því, sem bráðnauðsynlegt er að gera undir eins á næsta ári, til þess að tilgangi erfðafjársjóðsins verði náð og hann sinni því hlutverki að koma upp endurhæfingarstöðvum. Auk þess verður svo að sjálfsögðu haft fullt samráð við Landsspítalann um alla aðstoð við þetta hlutverk.

Ég held því að þó að mörkin um skattlagninguna séu ekki hækkuð frá því, sem nú er, þá fái sjóðurinn mikið aukið fé með þessari lagasetningu, og ég held, að sé hin fyllsta þörf á því, að Alþ. geri ráðstafanir til þess. Og þið, sem segizt vilja, að sjóðurinn nái tilgangi sínum og endurhæfingarhlutverkinu sé þjónað, hljótið held ég í framhaldi af því að staðnæmast við það, að tekjumöguleikar sjóðsins eigi að aukast við lagasetninguna.

Það er líka rökstutt í nál. minni hl., — þó að ræða hv. 11. landsk. þm. væri næstum slík, að hann væri á móti erfðafjárskatti yfirleitt, þá er hér getið um þá röksemd, — að þjóðfélagið taki í æ ríkari mæli að sér að tryggja lífsafkomu aldraðra og öryrkja, og er gengið inn á þetta sem góð og gild rök fyrir því, að þá sé ekki óeðlilegt, að afgangsfé falli til ríkisins, fari í að inna þetta hlutverk af hendi, þegar fólk deyr. Ég sé ekki annað en að í nál. sé gengið inn á skattlagningu erfðafjár og færð fram gild rök fyrir réttmæti þess. Niðurstaðan er líka sú, að þau leggja ekki til í minni hl., að erfðafjárskattur sé felldur niður. Aðeins er um að ræða nokkra lækkun á gjaldstigunum. Þar sem í 1. erfð er lagt til, að hámarkið verði 10%, hjá meiri hl. n. og í frv., leggur minni hl. til, að staðnæmzt sé í 1. erfð við 7%. Þar sem í frv. er hámarkið í 2. erfð 25%, þar leggja þau í minni hl. til, að hámarkið verði 14%. Og þar sem í frv. er lagt til í 3. erfð, að hámarkið sé 50% af arfahlut, leggja þau til, að það sé 35%, þ. e. þau vilja fara svolítið vægara í sakirnar um skattlagningu erfðafjár. Um þennan skoðanamun er ekkert að segja. En ég tel, að við verðum að líta á það hlutverk, sem erfðafjársjóðsins bíður, og í framhaldi af því og í samræmi við það hljótum við að standa að till. um, að hann sé efldur, og það er gert á þann hátt, að það eru ekki hækkuð þau skattlagningarmörk, sem gilt hafa í lögum hér, 10%, 25% og 50% í 3. erfð og er þetta mjög hliðstætt, eins og hér var játað áðan í ræðu, hliðstætt því, sem er í þeim löndum, þar sem erfðafjárskattlagning er hvað hófsamlegust, og var Danmörk nefnd í því sambandi.

Ég vil vænta, að hv. d. sjái sér fært að afgreiða nú þetta mál, þegar það er loksins til hennar komið, fljótt og vel og gangi frá afgreiðslu þess nú innan fárra daga.