17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

10. mál, erfðafjárskattur

Auður Auðuns:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. og hv. frsm. heilbr.- og félmn. einnig drap á, hefur heilbr.- og félmn. skilað áliti og mælir með því, að frv. verði afgr. á þinginu, en hins vegar áskildu einstakir nm. sér rétt til þess að flytja brtt. við frv. eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.

Eins og allir hv. þm. vita og viðurkenna, verður ekki hjá því komizt eftir gildistöku hins nýja fasteignamats að færa ákvæðin um bæði skattþrep og skattprósentu erfðafjárskatts til samræmis við það, sem orðið er, breytt verðlag. Eins og þetta frv., sem liggur nú fyrir, gerir ráð fyrir, er ætlunin að gera það á þann hátt að hækka skattheimtuna um 260%, hvorki meira né minna, og til viðbótar má nefna, að það búast sjálfsagt allir við því, að fasteignamatið verði hækkað nú um væntanlega 20%, þannig að þá yrði orðin ferföld skattheimtan á við það, sem nú er. Ég tel, að þó að vel hefði komið til greina að hækka skattheimtuna nokkuð, þá sé hér allt of langt gengið með slíkum till. sem í frv. eru, að ferfalda hana. Þessi skattheimta hefur verið mikið rökstudd með því, að erfðafjársjóði, sem skatturinn rennur til, sé fjár vant til þess að standa undir þeim verkefnum, sem hann á að sinna. Ég geri ráð fyrir, að allir hv. þm. geti verið sammála um að það hlutverk er nauðsyn, að rækt verði, og eins og nú standa sakir þyrfti erfðafjársjóður, ef hann einn ætti undir að standa, miklu meira fé. Það fé tel ég, að ætti að koma eftir öðrum leiðum en þeim að hækka skattinn svo gífurlega sem hér er gert ráð fyrir.

Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið. Mér er ljóst og okkur öllum. að frv. þarf að fá afgreiðslu, hvernig sem hún verður. Ég skal ekki fjölyrða um réttmæti erfðafjárskatts almennt, enda á ég ekki von á því, að horfið verði frá þeirri skattheimtu í okkar þjóðfélagi, a. m. k. varla á næstunni, en henda má á það, hve harkalega slík hækkun getur komið niður a einstaklingum og hve mikla erfiðleika hún getur skapað t. d. fyrirtækjum, sem mörg eru smá í okkar landi og hafa ekki getað myndað eigið fjármagn, svo að neinu verulegu nemi til rekstrar. Það hefur t. d. verið á það bent, þegar eigandi bújarðar fellur frá og einn af erfingjum tekur kannske við jörðinni, að þá gefur auga leið, hve það getur torveldað slíka yfirtöku, ef hlutaðeigandi á að borga svo háan erfðafjárskatt sem hér er gert ráð fyrir.

Ég skal þá víkja örlítið að þeim brtt., sem ég flyt á þskj. 796. Þessar brtt. eru samhljóða brtt., sem fluttar voru í hv. Nd. af fulltrúum Sjálfstfl. í heilbr.- og félmn. þeirrar hv. d. Ég vil þá fara örfáum orðum um fyrstu brtt. en efni hennar er það, að erfðafjárskattur verði ekki heimtur af erfðahluta eftirlifandi maka. Þetta má rökstyðja með því, að sú eignamyndun, sem átt hefur sér stað í hjúskapnum, verður til fyrir atbeina beggja hjónanna. Einnig má á það benda, að þarna er um tvísköttun að ræða og verður áfram skv. frv., því þetta hefur ávallt verið svo í okkar erfðafjárskattslögum reyndar, að þarna hefur verið um tvísköttun að ræða í 1. erfð. Við skulum t. d. setja upp dæmið þannig, að annað hvort hjónanna fellur frá, hitt borgar erfðafjárskatt af sínum erfðahluta eftir hinn látna, síðan kannske læzt hitt hjóna, sem eftir lifði, skömmu síðar og þá er tekinn aftur erfðafjárskattur af þessum erfðahluta, sem rennur þá til barnanna.

Þegar maki deyr, er það að sjálfsögðu mikið áfall fyrir þann makann, sem eftir lifir, og það skapast yfirleitt fjárhagserfiðleikar, alltaf einhverjir og oft kannske miklir í því sambandi, og ég vil þá sérstaklega nefna það til, ef það er ekkja, sem um er að ræða. Það er svo í okkar landi, að hér er það langtum tíðara heldur en annars staðar, sem maður þekkir til. að fólk eigi það húsnæði. sem það býr í. Það eykur að sjálfsögðu þá erfiðleika, sem oft eru í því sambandi að halda húseigninni eða íbúðinni, þegar þarf að fara til viðbótar öðrum áföllum og erfiðleikum að greiða erfðafjárskatt af erfðahluta eftirlifandi makans. Það er oft sem íbúðarhúsnæðið er kannske eina verulega verðmætið, sem til er í búinu, þegar maki fellur frá. Mér finnst þetta vera það sterk rök fyrir því, að ekki skuli leggja skattinn á erfðahlut eftirlifandi maka, að það hljóti að finna hljómgrunn hjá hv. þm., og það gladdi mig að heyra, að hv. frsm. heilbr.- og félmn. virtist skilja mjög vel þessa röksemd, þegar hann vék að því, að þetta væri mál, sem þyrfti að kanna í sambandi við heildarendurskoðun löggjafar um erfðafjárskatt.

Það hefur verið vitnað til þess í umr. um þetta frv„ að okkar löggjöf um erfðafjárskatt væri að mörgu leyti svipuð dönsku löggjöfinni. Og í Danmörku er það svo að erfðahluti eftirlifandi maka er að vísu ekki skattfrjáls, en hann er skattfrjáls upp að vissu marki, og í till., sem danska ríkisstj. boðar um breytingar á lögunum um erfðafjárskatt þar í landi, kemur það fram, að þeir ætla að hafa fyrstu 100 þús. kr. af erfðahluta eftirlifandi maka skattfrjálsar, fyrstu 100 þús. kr. danskar, sem mun nú vera um það bil 1200 þús. kr. íslenzkar. Þetta hefur verið þar í lögum og þeir hafa ekki uppi fyrirætlanir um. að frá því verði horfið.

Um brtt. að öðru leyti þarf ég ekki að fara mörgum orðum. Þær skýra sig sjálfar og eru allar til lækkunar á prósentunni og hækkunar á skattþrepunum. Það skal að vísu tekið fram, að ekki hefur verið unnt að gera sér þá grein fyrir, hver skattheimtan yrði, ef þær till. yrðu samþykktar, að maður þori að nefna ákveðnar tölur, en hitt mun þó óhætt að fullyrða, að skattheimtan mundi tvímælalaust lækka frá því, sem nú er.

Ég hafði nú hugsað mér að flytja brtt. við B-lið 2. gr. frv. eins og það liggur nú fyrir, orðalagsbreytingu, en vegna þess að ég tel, að það sé rétt að fá fram í atkvæðagreiðslu vilja hv. þd. um, hver skattprósentan skuli vera, svo að samræmi verði þá í þeirri brtt., sem ég hafði ætlað mér að flytja, þá geymi ég mér rétt til þess að gera það til 3. umr.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um frv., a. m. k. ekki nema frekara tilefni gefist til, og vænti þess, að brtt. þær, sem ég flyt á þskj. 796, fái góðar undirtektir hjá hv. þdm.