17.04.1972
Neðri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (1574)

249. mál, Bjargráðasjóður

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Bjargráðasjóðslögin gera ekki ráð fyrir, að bætt verði aðeins tjón í sveitum, heldur einnig í sjávarplássum, ef tjón verður, og þess vegna tel ég ekki rétt, að í frv. væri sagt, að landbrh. skipaði nefnd, heldur ríkisstj., t. d. félmrh., ef tjónið er við sjávarsíðuna og ekki snertandi landbúnað. Það eðlilegasta væri, að ríkisstj. skipaði nefndina, en ekki sérstakur ráðh., því að hlutverk Bjargráðasjóðs er miklu víðara en svo, að það snerti aðeins landbúnaðinn. En ég þakka hæstv. ráðh. fyrir það, að hann ætlar að beita sér fyrir því, að þetta mál verði athugað nánar.