17.05.1972
Efri deild: 86. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

249. mál, Bjargráðasjóður

Frsm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er stjfrv. borið fram í Nd. og hefur hlotið þar einróma samþykkt án breytinga frá þeirri gerð, sem það var í, þegar það var lagt fyrir. Þetta frv. hefur legið alllengi fyrir þingheimi, þannig að ég geri ráð fyrir því, að ekki sé ástæða til að fara út í þær breytingar, sem þar eru gerðar á gildandi lögum. Þær eru engar mjög stórvægilegar, eins og raunar má sjá, þegar ég les aths. við frv. Hér er ekki um að ræða neina nýja gjaldheimtu af neinu tagi heldur ýmsar breytingar, sem hafa verið gerðar á fyrri lögum, m. a. í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga.

Ég sé ekki ástæðu til að rekja efni frv. Heilbr.- og félmn. hefur athugað málið og leggur einróma til, að það verði samþ.