16.05.1972
Neðri deild: 81. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1631)

124. mál, Tækniskóli Íslands

Frsm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Frv. þetta um Tækniskóla Íslands er komið frá Ed., og menntmn. Nd. hefur fjallað um það og orðið ásátt um að mæla með samþykkt þess, þó með breytingum.

Menntmn. kom fljótlega auga á, að í þetta frv. vantar það, sem við nefnum skólalýðræði, sem nú tíðkast að setja inn í skólalög. Í 10. gr. frv. er talað um skólanefnd, en skólanefndin lýtur einkum að því að tengja skólann við atvinnuvegina og þá aðila, sem helzt láta sig mestu varða Tækniskólann. Hér vantar m. ö. o. ákvæði eða stjórnarfyrirkomulag um hinn daglega rekstur.

Einnig kom í ljós í 12. gr., þar sem talað er um, að menntmrn. setji skólanum reglugerð, og er þar kveðið á m. a. um skipan skólastjórnar, að nm. gátu ekki gert sér fulla grein fyrir því, hvað skólastjórn merkti. Við nánari könnun kom í ljós, að það er starfandi þegar við Tækniskólann sú stofnun, sem nefnist skólastjórn og lýtur einmitt að skólalýðræði. Okkur þótti einsætt í n. að lögbinda þetta stjórnarfyrirkomulag, skólastjórnina, eins og nú tíðkast almennt í öðrum lögum um skóla, þannig að við leggjum til, að við 10. gr. bætist ný mgr., svo hljóðandi:

„Við skólann starfar skólastjórn. Í henni eiga sæti rektor, sem er formaður, fastráðnir kennarar og einn fulltrúi nemenda fyrir hverja þrjá aðra skólastjórnarmenn.“

Samkv. þessu breytist einnig 12. gr. á þá lund, að 1. tölul. fellur niður, skipan skólastjórnar. Okkur þótti ekki ástæða til þess að fara nánar út í starfsemi eða starfssvið skólastjórnarinnar, þar sem gert er ráð fyrir því í lögunum, að þau atriði séu ákveðin með reglugerð.

Þrír nm. hafa skrifað undir nál. með fyrirvara, og þessir fyrirvarar lúta að staðarvali Tækniskólans, hvort skólinn eigi að vera á Akureyri einnig eða aðeins á Akureyri. Þessir þrír nm. skrifa undir á ólíkum forsendum. Um mína persónulegu afstöðu vil ég segja það, að það er dálítil skammsýni að gera ráð fyrir því, að nú þegar eða fljótlega verði starfandi tveir tækniskólar á Íslandi, á meðan aðbúnaður núv. Tækniskóla Íslands er ekki viðhlítandi. Ég hygg, að það sé meginatriðið að fá fyrst einn öflugan skóla og hlúa að honum eftir mætti, áður en farið er að dreifa fé og kröftum víðar. En það er á það að líta, að í frv., eins og það liggur nú fyrir frá Ed., segir: „Stefnt skal að því, að á Akureyri verði sjálfstæður tækniskóli, og getur ráðh. ákveðið það með reglugerð.“ Þetta er því stefnumarkandi ákvæði. Og ég vildi ekki fyrir mitt leyti fara að taka upp málþóf í sambandi við þetta, því að ella hefði það getað leitt til þess, að málið hefði stöðvazt, og þá væri illa farið.