16.05.1972
Neðri deild: 81. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (1636)

124. mál, Tækniskóli Íslands

Frsm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Mér virðist nú, að vitleysan ætli ekki að ríða við einteyming í þessum staðarmálum Tækniskólans. Hvernig væri t. d. að leggja til að reisa nú einn tækniskóla á Hellu? Það væri mjög æskilegt. Ég tel þetta alveg fráleitt. Ég held, að menn verði dálítið að átta sig á þessum hlutum. Tækniskóli er ekki stofnun, sem hægt er að flytja til eða setja niður með litlum undirbúningi, heldur ærnum kostnaði, og ég vil einmitt taka undir þá till., sem Gylfi Þ. Gíslason vakti máls á: væri ekki ráð að flytja Búnaðarfélagið til Akureyrar og eitthvað af slíkum stofnunum landbúnaðarins? Ég held, að það væri dálítið viturlegra. Ég legg eindregið til að þetta frv. verði afgr. og frávísunartill. felld, og sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta lengur.