14.04.1972
Efri deild: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)
250. mál, Háskóli Íslands
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um breytingar á nokkrum greinum háskólalaganna. Þær breytingar eru að mínu viti þannig lagaðar, að þær skiptast nokkuð í tvo flokka, tvær þeirra eru þýðingarmiklar, en þrjár aðrar ekki jafnstefnumarkandi og hinar tvær. Sú breytingin, sem ég tel mestu máli skipta til stefnumörkunar um mál Háskóla Íslands og þróun hans, er sú, sem felst í 5. gr. frv. Það er um það að ræða að gera þá breytingu á háskólalögunum, að Háskóli Íslands sé í fyrsta skipti formlega opnaður námsmönnum öðrum en þeim, sem lokið hafa hinu hefðbundna stúdentsprófi frá menntaskólum.
Þess hefur gætt á undanförnum árum, ekki sízt í hópi háskólastúdenta sjálfra, að þeir telja hin þröngu inngönguskilyrði í Háskólann, einskorðunina við stúdentsprófið, alls ekki lengur eðlilega. Og hér er komin frá Háskólanum sjálfum, frá háskólaráði, tillaga, þar sem gengið er til móts við þessar óskir stúdenta og að sjálfsögðu ýmissa annarra námsmanna, sem gjarnan vildu eiga þess kost að stunda nám við Háskólann.
Að vísu hafa menn getað fengið að sækja kennslustundir í Háskólanum hingað til, án þess að vera stúdentar, og þess eru nokkur dæmi, en próf hafa menn ekki getað þreytt. Hér er um að ræða ákvæði, sem veitir þeim námsmönnum öðrum en stúdentum, sem fallizt er á að taka til náms í Háskólanum, sama rétt og stúdentsprófsmönnum bæði til náms og til að fá námsárangur sinn staðfestan með prófum. Nú kann einhver að segja, að hér sé þó of skammt gengið. Greinilegt er, að hér er ekki gert ráð fyrir miklum hópi námsmanna, þar sem ákveðið er, að háskóladeildir, háskólaráð og síðan rektor fjalli um umsóknir annarra námsmanna en þeirra, sem hafa stúdentsprófið. En það er ekki óeðlilegt eins og sakir standa, bæði vegna þess að enn eru í deiglu réttindi manna að ýmsum prófum loknum frá mismunandi skólum, og sömuleiðis vegna þess, að fyrir eru í Háskólanum mjög mikil þrengsli, aðsóknin að Háskólanum hjá þeim, sem stúdentspróf hafa, er það mikil, að það leyfir ekkert af, að Háskólinn hafi bolmagn til að taka við þeirri aðsókn. En með þessu frv. eru þó tvímælalaust opnaðar dyr fyrir hæfum námsmönnum úr öðrum skólum, og þar er ekki sízt um að ræða Tækniskóla Íslands. Til að mynda liggur það fyrir, að því ég bezt veit, að háskólar í öðrum löndum væru reiðubúnir að taka við námsmönnum úr Tækniskólanum með fullum réttindum til náms og prófa, og úr því að svo er, er að mínu viti hneisa, þó ekki kæmi annað til að Háskóli Íslands sé þrengri inngöngu fyrir þessa námsmenn heldur en erlendar háskólastofnanir.
Önnur meginbreytingin á háskólalögunum, sem hér er borin fram till. um, er sú, sem felst í 2. gr. Þar er um það að ræða, að starfskraftar háskólakennara í sérhæfðum greinum, þar sem hörgull er á rannsóknaaðstöðu og þar sem rannsóknaaðstaða kann að vera dýr, séu nýttir öðrum þræði innan Háskólans, öðrum þræði hjá rannsóknastofnunum, sem lagt geta til þá rannsóknaaðstöðu, sem hlutaðeigandi kennari þarf á að halda. Þetta er að dómi háskólaráðs og þeirra deilda, sem málið snertir mest, mjög áríðandi til að afla þeirra kennslukrafta, sem þörf er, bæði við að veita vaxandi stúdentafjölda kennslu og að fjölga kennslugreinum. Það liggur í hlutarins eðli, að í smáu þjóðfélagi eins og okkar er ekki nokkur hæfa, að dýr rannsóknaaðstaða sé höfð á tveim stöðum að nauðsynjalausu, en svo yrði að vera í einstökum greinum, ef háskólakennari ætti fortakslaust að leysa rannsóknastörf og rannsóknaskyldu af hendi innan Háskólans. Við þessu er ætlunin að gera með þessari lagabreytingu, en till. er hér gerð um að tengja saman kennslu við Háskólann og rannsóknaaðstöðu utan hans, þar sem óframkvæmanlegt er eða ógerlegt vegna kostnaðar að koma upp sérstakri rannsóknaaðstöðu fyrir hlutaðeigandi kennara innan Háskólans. Og ráð er gert fyrir því, að þessu verði þannig háttað, að samningar fari fram í hverju tilviki milli Háskóla Íslands og hlutaðeigandi rannsóknastofnunar. Sömuleiðis, að Háskólinn greiði stofnuninni, þar sem svo vill til, fjárhæð sem nemur því vinnutapi, sem hún verður fyrir, vegna þess að starfsmaður hennar kennir við Háskólann.
Þá vík ég nokkuð að öðrum breytingum, sem ég tel ekki jafnstefnumótandi. Í fyrsta lagi þeirri, að lagt er til í 6. grein, að heimilað verði sem algjör undanþága að velja prófdómara innan Háskólans, þegar þess er alls enginn kostur að fá hér á landi prófdómara utan við Háskólann. Eftir því sem fjölgar kennslugreinum í Háskólanum verður þess vart, að það á sér stað í einstökum greinum, sem betur fer ekki mörgum, að þeir fræðimenn, sem í hlutaðeigandi grein eru færir til kennslu og til að fella dóma um námsárangur, eru með tölu starfandi við Háskólann. Segja má, að við þessu mætti gera með því að sækja prófdómara úr landi, en það væri æðidýrt úrræði, og frekar en hafa það úrræði eitt er lagt hér til, að heimilað verði, sem algjör undantekning, að tilnefna prófdómara, sem gegnir störfum innan Háskólans.
Þá er í 7. gr. till. um að breyta reglum um veitingu doktorsnafnbótar í heiðursskyni. Þegar Háskólinn hóf störf voru þeir kennarar, sem sæti áttu á deildarfundum, örfáir, tveir, þrír eða fjórir menn, og ákveðið, að ákvarðanir um doktorsútnefningu í heiðursskyni skyldu vera einróma. Nú skipta kennarar þeir, sem sæti eiga á deildarfundum, tugum í ýmsum deildum, og þá þykir ekki eðlilegt lengur að hver og einn hafi neitunarvald um heiðursdoktorskjör, heldur skuli atkvæði ¾ atkvæðisbærra deildarmanna nægja. Því er ekki að leyna, að þessi breyting stendur í nokkru sambandi við nýlega atburði í heimspekideild, sem ég kæri mig ekki um að rekja hér frekar.
Loks er svo till. í 1. gr. um breytingu á 1. málsgr. 4. gr. háskólalaganna, sem hnígur að því að gera starf í háskólaráði fastara í skorðum, sem sé, að þar sé sama setulengd fulltrúa stúdenta og fulltrúa kennara. Þetta gerist þannig, að kjörtímabil stúdentafulltrúanna skiptist á, svo að þar skiptir ekki um báða fulltrúana í einu, heldur sitji annar áfram, þegar hinn hverfur brott, og sé því skiptingin sú sama hjá þeim og fulltrúum kennara.
Ég mun svo ekki, herra forseti, hafa fleiri orð um þetta frv., en vil leyfa mér að leggja til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.