08.05.1972
Efri deild: 77. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)
250. mál, Háskóli Íslands
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Menntmn. d. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum um Háskóla Íslands. Hér er um að ræða 8 brtt. Segja má, að þetta séu í raun og veru 5 eða 6 sjálfstæðar brtt., sem þarna er komið fram með, sem standa nokkuð sjálfstætt hver um sig, en tækifærið hefur verið notað til að láta þessar lagfæringar fylgjast að, þó að kannske megi segja, að það liggi mismunandi mikið á því að koma þessum breytingum fram.
1. gr. snertir skipan háskólaráðs, og hún er flutt að ósk stúdenta. Um þessa till. mun vera alger samstaða innan veggja Háskólans og menntmn. mælir eindregið með því, að þessi gr. verði samþ. óbreytt.
2. gr. fjallar svo aftur á móti um óskylt atriði, sem Háskólann varðar, en það er það atriði, að gerð er þarna tilraun til þess að opna leiðir til þess að mögulegt sé að tengja kennarastöðu við Háskólann tiltekinni stöðu eða starfsaðstöðu við stofnun utan Háskólans. Þarna er sem sagt um það að ræða, að menn séu skipaðir í stöðu dósents eða lektors, en jafnframt því gegni þeir svo stöðu á öðrum vettvangi eða við aðra stofnun utan Háskólans. Þarna mun vera um að ræða, að upp hafi komið erfiðleikar og vandamál, vegna þess að ekki tekst að fá færa menn til að sækja um þær stöður innan Háskólans, sem þörf er á að ráða menn til starfa í, og þá er gripið til þess ráðs að tengja saman stöðu utan skólans og stöðu innan skólans. Svo að farið sé fljótt yfir sögu, þá varð menntmn. strax vör við, að um þessa brtt. ríkir talsverður ágreiningur innan Háskólans og háskólamenn, bæði margir prófessorar og aðrir kennarar, telja, að þarna sé farið inn á mjög varhugaverða braut. Þeir telja, að önnur ráð séu vænlegri til þess að leysa úr þessum vandamálum heldur en þau að blanda þannig saman starfi manns innan Háskólans og svo aftur starfi hans í sjálfstæðri stöðu utan Háskólans. Þeir telja, að hægt sé að leysa þetta með því að ráða t. d. stundakennara, en þá þurfi að hækka laun þeirra og skapa þeim betri starfsaðstöðu og með ýmsum öðrum úrræðum. Menntmn. hefur ekki treyst sér til að fella neinn dóm um það, hver sé eðlilegastur framgangsmáti í þessum efnum í framtíðinni og hvernig þessu skuli hagað framvegis. En með hliðsjón af því, hve áliðið er vors og þingi fer senn að ljúka, en ekki hefur gefizt mikið tóm til að hugleiða þessi mál ítarlega, þá telur n. eðlilegast, að reynt sé að leysa úr brýnustu vandamálunum, sem þarna eru á ferðinni, en að öðru leyti sé ákvörðun um þetta efni frestað til næsta þings. Á fund hjá n. kom m. a. rektor Háskóla Íslands og hann tjáði n., að þessi brtt. væri fyrst og fremst fram komin vegna vandamála, sem upp hefðu komið í verkfræðideild Háskólans. Þar væri verið að bæta við nýjum deildum og auka námið og miðað við þá áfanga, sem fyrirhugaðir væru næsta haust, þá sýndist mönnum ógerlegt að yfirstíga þá erfiðleika, sem þar væru fram undan við ráðningu kennara, öðruvísi en að heimild væri veitt af því tagi, sem hér er gerð till. um.
Með hliðsjón af þessum upplýsingum hefur n. orðið sammála um að mæla með því, að heimild verði veitt verkfræði- og raunvísindadeild Háskólans til þess að ráða menn með þessum hætti, en þó gerir n. nokkrar enn frekari takmarkanir en fólgnar voru í frv., eins og það var lagt fyrir. N. leggur til, að 3. málsl. 10. gr. háskólalaganna, þ. e. 3. málsl. 2. gr. frv., eins og það liggur fyrir, verði þannig orðaður:
„Nú hefur Háskólinn ekki tök á að koma upp rannsóknaaðstöðu í verkfræði í tiltekinni kennslugrein og má þá samkv. till. háskólaráðs og verkfræði- og raunvísindadeildar tengja slíka kennarastöðu tiltekinni stöðu eða starfsaðstöðu við opinbera stofnun utan Háskólans, enda sé slík tilhögun heimiluð í reglum stofnunarinnar eða samþykkt af stjórn hennar.“
Þarna er sem sagt um að ræða þrjár veigamiklar breytingar. Í fyrsta lagi það, að þessi heimild er skilyrt og bundin því, að Háskólinn hafi sjálfur ekki tök á því að koma upp rannsóknaaðstöðu í greininni, og þess vegna sé óhjákvæmilegt að hafa þessa sérstöku tilhögun. Í öðru lagi er sú staða, sem kennara við Háskólann sé heimilað að sitja í utan Háskólans, bundin við opinberar stofnanir, en það var ekki í frv. eins og það var lagt fyrir þingið. Og í þriðja lagi er heimildin aðeins látin ná til verkfræði- og raunvísindadeildar Háskólans.
3. brtt., sem lögð var fram af hæstv. menntmrh. við háskólalögin, var snertandi lektorsstöður og dósentsstöður og tilflutning þar á milli, og þar sem n. er ekki kunnugt um. að um það efni sé sérstakur ágreiningur, þá sér hún ekkert við það að athuga, að sú gr. verði samþ. óbreytt. Eins er um 4. gr.
5. gr. frv. fjallaði hins vegar um það, með hvaða hætti skrásetning einstaklinga, sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, geti átt sér stað við Háskólann. Þar var gert ráð fyrir því, að einstaklingar, sem hefðu lokið öðru fullnaðarprófi en stúdentsprófi, gætu fengið heimild til þess að verða skrásettir í Háskóla Íslands að fengnum tillögum viðkomandi deildar og með samþykki háskólaráðs og með samþykki rektorsembættisins. Í öðru lagi er lagt til, að einstaklingar, sem hafa lokið öðru námi hérlendis með þeim árangri, sem sú deild, sem í hlut á, mælir með, geti haft sams konar möguleika til að komast inn í Háskólann.
Nefndin mælir með þessum brtt., sem ég hef hér nefnt, en það var skoðun hennar. að þarna væri raunverulega ekki gengið nægilega langt og n. gerir því það að till. sinni til viðbótar þessu, að raungreinadeildarpróf frá Tækniskóla Íslands veiti einnig rétt til skrásetningar til verkfræðináms með þeim skilyrðum, sem nefnd eru í 21. gr. háskólalaganna. Hér er um athyglisvert nýmæli að ræða að minni hyggju, en þetta er hins vegar atriði, sem fjöldamargir hafa mælt með og verið sammála um, að væri eðlilegt, en hefur enn ekki komizt til framkvæmda.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir því, að með reglugerð megi ákveða, að ákveðin próf frá íslenzkum skólum veiti rétt til skrásetningar við tiltekið nám við Háskólann, enda hafi prófin verið metin jafngildi stúdentsprófs til undirbúnings viðkomandi námi. Þessi gr. eða till., sem n. sjálf flytur og gengur bersýnilega heldur lengra en frv. gerir, felur það í sér, að ráðh. getur ákveðið, að sjálfsögðu með ráðum háskólaráðs, að tiltekin próf veiti almennt þessi réttindi, og þá er sem sagt heimildin ekki bundin við einstaklinga í hverju einstöku tilviki, eins og frv. gerir ráð fyrir. Þar varð hver einstakur maður, sem vildi komast inn í Háskólann, að ganga í gegnum þrefalt sigti, því að bæði háskólarað, rektor og viðkomandi deild þurfti að samþykkja hvern einasta einstakling, sem til greina átti að koma í þessu sambandi, en þarna er gert ráð fyrir því, að ef um er að ræða próf, sem er þess eðlis, að það þyki vera hliðstætt stúdentsprófi eða jafngildi stúdentsprófi, þá sé mögulegt í reglugerð að ákveða, að slíkt próf gildi almennt og veiti rétt til skrásetningar til náms við Háskóla Íslands.
6. gr. frv. hefur ekki sætt gagnrýni, svo að n. sé kunnugt um, og hún mælir eindregið með henni. Hið sama gildir um 7. gr. frv., sem fjallar um rétt háskóladeilda til að veita doktorsnafnbót. Aftur á móti er 8. gr. frv. hliðstæð þeirri breytingu, sem fólgin er í 2. gr. frv., þar sem um var að ræða að tengja kennarastöðu við Háskólann við stöðu utan Háskólans, að því leyti, að þessi seinasta brtt. snertir m. a. prófessora, en það gerði fyrri till. ekki. Þar var skýrt tekið fram, að heimild viðkomandi málsgr. næði ekki til prófessorsembætta, heldur aðeins þá til annarra embætta við Háskólann, og í 38. gr. er svo aftur á móti fjallað um prófessora og dósenta og þá hefur n. sett sömu takmarkanir á það, að unnt sé að tengja kennarastöðu við Háskólann tiltekinni stöðu utan Háskólans á þann hátt, að það nær aðeins til verkfræði- og raunvísindadeildar í fyrsta lagi og í öðru lagi nær það aðeins til opinberra stofnana utan Háskólans.
Þessum breytingum, sem ég hef nú gert grein fyrir, mælir menntmn. með og að frv. verði samþ.