17.05.1972
Neðri deild: 82. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1744 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

268. mál, orlof húsmæðra

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég vil nú þakka hv. heilbr.- og félmn. fyrir að hafa skilað áliti um frv. um orlof húsmæðra, þó að það sé nokkuð síðbúið. En það bjargast. Það skiptir nú öllu máli.

Um þá einu brtt., sem hv. n. hefur gert á frv., vil ég aðeins segja það, að mér er heldur illa við hana, mér er heldur lítið um hana gefið og veit, að kvenfélagasamtökin í landinu, Kvenfélagasamband Íslands, sem á að hafa meginforustuna um framkvæmd þessara laga, telur, að þarna sé blandað dálítið óskyldu saman, þó að hvort tveggja fjalli um orlof húsmæðra. Hér er með frv. lagður fastur fjárhagslegur grundvöllur að starfsemi þessari, orlofi húsmæðra, sem mannréttindum þeirra, sem þær eigi rétt á, en mér skilst, að sú orlofsstarfsemi, sem mæðrastyrksnefndirnar reka, sé svona að mestu leyti líknarstarfsemi, og húsmæðrum hefur yfirleitt verið illa við að finna þann keim af því, að það væri þáttur í nokkurri líknarstarfsemi, að þær fengju að njóta orlofs. Það á það ekki að vera heldur. Þess vegna finnst mér þetta vera dálítið óskylt og hefði heldur kosið, að breytingin hefði ekki verið gerð. Það er rétt, að þetta ákvæði er í gildandi lögum, en mun þó hafa verið löngu fallið úr gildi í framkvæmd. En ekki vil ég láta þetta varna framgangi málsins og læt því kyrrt liggja, en aðeins læt það í ljós, að mér finnst þarna vera heldur miður en betur.