17.05.1972
Neðri deild: 83. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1777 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
237. mál, lögreglumenn
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Það kemur í ljós við umr. um þetta frv., hvaða afleiðingar sú stefna hefur, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur tekið upp, að ganga yfirleitt fram hjá samtökum íslenzkra sveitarfélaga við undirbúning þeirra mála, sem lögð eru fram á þingi og þau snerta. Þetta kom alveg greinilega fram í sambandi við tekjustofnalögin. Það sýndi sig þá, að um þau urðu hér á Alþ. miklu meiri umr. heldur en þurfti að vera, ef farin hefði verið sú venjulega og sjálfsagða leið að hafa samráð við Samband ísl. sveitarfélaga, áður en frv. var lagt hér fram á Alþ. Ég verð að telja það næsta furðulegt, að ríkisstj. á Íslandi skuli telja sig þess umkomna að standa þannig að málaundirbúningi, sem varðar jafn veigamikinn þátt í stjórnsýslu landsins og sveitarfélögin eru. Ég hygg, að það sýni sig, þegar til lengdar lætur og til framkvæmda kemur, að ákaflega erfitt er fyrir nokkra stjórn hér á landi að ætla að halda áfram þeirri stefnu, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur markað í þessum málum. Sveitarfélögin munu ekki láta bjóða sér þetta, og ég tel það ekki eðlilegt. Þau vilja af eðlilegum ástæðum nokkuð fá að segja til um, hvernig staðið er að þeim málum, sem eru kannske í grundvallaratriðum þeir málaflokkar, sem þau byggja starf sitt á. Ég er sannfærður um, eins og ég sagði hér áðan, að ef ríkisstj. hefði við undirbúning tekjustofnalaganna farið þá sjálfsögðu leið að hafa samráð við þessa aðila og skipa menn frá þeim í þá nefnd, sem undirbjó lögin, eða gefa þeim kost á að skipa menn í þá nefnd, sem undirbjó lögin, þá hefði málið verið allt miklu auðveldara og auðleystara og það hefði ekki þurft að taka marga mánuði að fá það samþykkt hér á Alþ. En ef hæstv. ríkisstj. vill viðhafa þessi vinnubrögð, þá verður hún auðvitað að taka afleiðingunum af því, að hér hljóta að verða miklar umr. um þessi mál. Þetta eru viðkvæm mál fyrir marga þm. Það eru margir þm., sem eru sveitarstjórnarmenn og hljóta að gæta hagsmuna sveitarfélaganna og hljóta því mjög að gagnrýna, þegar staðið er að málum eins og gert hefur verið, bæði í þessu tilfelli og því tilfelli, sem ég vitnaði til hér áðan í sambandi við tekjustofnalögin.
Af einstökum greinum þessara laga hefur mest verið rætt um 13. og 14. gr., og er það eðlilegt. Þetta er það, sem snertir beint fjárhagshlið sveitarfélaganna. Ég verð nú að segja, að mig furðar nokkuð á því, að það skuli vera gert ráð fyrir því í frv., að sveitarfélögin eigi að leggja út allan lögreglukostnaðinn, þar til ríkisstj. þóknast að endurgreiða hann. Ég vil benda á í þessu sambandi, að orðið var við þeim tilmælum sveitarfélaganna, sem þau lengi eru búin að hafa á stefnuskrá sinni, að vinna að því, að lögreglukostnaður yrði að fullu greiddur úr ríkissjóði. Þegar orðið var við þeim tilmælum og gert ráð fyrir því í fjárlögum, að ríkissjóður yfirtæki allan lögreglukostnaðinn, var um leið gerð ráðstöfun til þess með tekjustofnalögunum að skerða tekjur sveitarfélaganna í samræmi við þau útgjöld, sem ríkið yfirtók og tók inn á fjárlög ríkisins. Það þýðir, að sveitarfélög hafa ekki við samningu sinna fjárhagsáætlana gert ráð fyrir neinum útgjöldum af lögreglukostnaði. Ef þau nú eiga að svara þessu út, þó að það sé ekki nema um einhvern óákveðinn tíma, þá verða þau að draga í land með önnur útgjöld hjá sér, annaðhvort verklegar framkvæmdir eða annað, sem hjá verður komizt að greiða meðan þessi skuld stendur óbætt frá ríkissjóði. Það er ekki eðlilegt, að sveitarstjórnarmenn vilji una svona aðför að sér, því að það er beinlínis verið að grípa inn í starf þeirra. Sveitarfélögunum er ætlað að gera fjárhagsáætlanir um hver áramót, og taka þau þá að sjálfsögðu tillit til þeirra útgjalda, sem þau vita um, að þau þurfa að inna af hendi. Nú hafa, hygg ég, öll sveitarfélög reiknað með því, að þau þyrftu ekki að leggja út þennan kostnað, lögreglukostnaðinn. A. m. k. veit ég um það, að í þeirri sveitarstjórn, sem ég á sæti í, var þessi liður, sem var allhár, sem eðlilegt er á þeim stað, felldur niður gjaldamegin í fjárhagsáætluninni í þeirri vissu, að bæjarsjóður þyrfti ekki að leggja þetta út. Ég hygg, að þannig sé því einnig varið með önnur sveitarfélög, að þau hafi einnig farið þannig að. Ég tel því mjög eðlilegt, að þegar Sambandi ísl. sveitarfélaga er sent þetta mál til umsagnar, þá mótmæli það mjög harðlega svona aðför að sveitarfélögunum. Þetta er gert til þess að torvelda þeim það starf, sem þeim samkv. lögum er ætlað að inna af hendi, og torvelda þeim kannske þær framkvæmdir og þá fyrirgreiðslu, sem allur almenningur ætlast til að þau standi fyrir. Þetta er, eins og ég sagði, dæmi um þá afleiðingu, sem stefna núv. ríkisstj. hefur í för með sér, að ganga fram hjá þessum málum við undirbúning þeirrar löggjafar, sem hér er lögð fram og snertir þessa aðila beinlínis og í mörgum tilfellum kannske í grundvallaratriðum. Það hlýtur að tefja alla fyrirgreiðslu mála hér á þingi og verða til þess að skapa ríkisstj. ekki eingöngu óþarfa fyrirhöfn, heldur er þetta beinn kostnaður, þegar þannig er staðið að málum, að þau eru miklu lengur til umr. hér á Alþ. Störf Alþ. beinlínis tefjast vegna þess, hvernig staðið er að undirbúningi málanna. Þetta kostar ríkissjóð auðvitað allverulegt fé, þegar þingstörf eru beinlínis tafin, vegna þess að ekki er staðið með eðlilegum hætti að undirbúningi mála, og sýndi það sig kannske einna greinilegast, eins og ég sagði áðan, í sambandi við afgreiðslu tekjustofnalaganna hér á Alþ. Þau þurftu að vera hér í þessari d., ef ég man rétt, í nokkra mánuði, og þó að þau að lokum færu út úr þinginu sem lög, vita allir, að þar var að sumu leyti um, ég vil segja hálfgerðan óskapnað að ræða og mjög vont að átta sig á því, hvernig þau mundu koma út í framkvæmd, og hygg ég, að enginn, hvorki þm. né sveitarstjórnarmaður viti það fyrr en búið er að jafna niður útgjöldum í sveitarfélögunum eða álögum í sveitarfélögunum, hvernig lögin munu raunverulega verka. Það má vel vera, að hæstv. félmrh. haldi, að þetta komi allt miklu betur út heldur en við hinir, en ég er alveg sannfærður um það, eftir því sem ég þekki til, að í mörgum tilfellum er þetta mjög misráðið, og ég hygg, að það komi út á allt annan veg heldur en þeir aðilar hafa gert ráð fyrir, sem lögin sömdu. En um þetta þýðir auðvitað ekki að deila. Þetta á eftir að koma í ljós, og þegar það liggur fyrir, sýnir það sig, hvort við höfum ekki haft rétt fyrir okkur, sem höfum haldið því fram að þarna hafi ekki verið rétt að staðið. Ég er sannfærður um, að það hefði verið hægt að ná mjög góðu samstarfi við sveitarfélögin við að breyta tekjustofnalögunum, ef það hefði bara verið farið fram á það við þau og þau fengið fulltrúa í þá nefnd, sem þetta gerði, og fengið að segja sitt álit á hlutunum, áður en það var lagt hér fram á Alþ., þannig að ríkisstj. er beinlínis að skapa sjálfri sér erfiðleika og tafir í störfum þingsins með því að standa þannig að málum og hljóta þm. að harma og víta það.
Í sambandi við 14. gr., sem hér hefur einnig verið mjög mikið til umr., verð ég að segja, eins og hér hefur komið fram áður, að ég efast um, að þetta sé hægt að gera, þetta standist samkv. stjórnarskránni, að með einfaldri lagasetningu sé hægt að taka stórar eignir af félagssamtökum manna, því að sveitarsjóðirnir eru auðvitað sameign íbúa hvers sveitarfélags, og löggjafinn ætlar að semja um það lög, án þess að hafa við þau samráð, og taka þarna af þeim stórfelldar eignir. Ég efast um, að þetta standist, en ég skal nú ekki um það dæma. Ég er ekki lögfróður maður og vil ekki um það dæma, en mér sýnist, að þannig sé ekki hægt að fara að mönnum og taka af þeim eignir þeirra með lögum, ef það stangast á við stjórnarskrána. Lög nr. 21/1961 um héraðsfangelsin, þar sem ríkissjóður leggur fram tilskilinn hluta, mér sýnist, að í þeim lögum sé hægt að tala um framlög ríkisins. Ég sá nú ekki við fljótan yfirlestur, að talað væri um, að ríkissjóður væri þar eignaraðili, heldur að þarna væri um framlög ríkisins að ræða. Það má þó vel vera, að það sé þannig bókfært hjá ríkissjóði, að þetta sé talið á eignaskrá hjá honum. En þetta er vissulega talið á eignaskrá hjá sveitarfélögunum og kemur fram í þeirra reikningum og má vera, að það sé hjá ríkissjóði, en mér sýnist, að í lögunum sé þá talað um framlög til þessara mála, og ef svo er, þá er það alveg í samræmi við annað, bæði framlög til hafnarmála, framlög til skólabygginga og annað slíkt. Ég hygg, að öll sveitarfélög á landinu telji hafnarframkvæmdir sér til eignar, en ríkið geri það ekki, þannig að það fer ekki á milli mála og stendur nákvæmlega á sama, hvort það er eignfært hjá ríkinu eða ekki, þá er það a. m. k. að réttu lagi eignfært hjá sveitarfélögunum og er þeirra eign. Og þó að það stæðist lagalega að taka þetta af þeim án nokkurrar endurgreiðslu, tel ég ekki, að Alþ. sé það sæmandi að fara þannig að sveitarfélögunum að ætla að hrifsa þetta til sín. Það hefði þá a. m. k. átt að liggja fyrir, þegar orðið var við óskum sveitarfélaganna um, að ríkið yfirtæki lögreglukostnaðinn, þá hefði það átt að liggja fyrir samtímis, að sveitarfélögin ættu að afhenda þær eignir, sem lögreglan hafði til umráða. Það getur vel verið, að hægt hefði verið að ná samkomulagi um það á einhverjum grundvelli, ég skal ekkert um það segja. En hitt er óeðlilegt, að standa þannig að, eins og gert er, að verða við þessum tilmælum og koma svo með þennan bagga á eftir, ætla að hirða þær eignir, sem þarna er um að ræða og í mörgum tilfellum skipta ekki einasta hundruðum þús. kr., heldur kannske milljónum hjá sveitarfélögunum. Þetta eru engar aðfarir hjá Alþ. að standa þannig að málum og hlýtur það, eins og ég hef sagt, að torvelda mjög öll samskipti þeirrar ríkisstj., sem þannig stendur að þessum málum, við samtök sveitarfélaganna og hinar einstöku sveitarstjórnir víðs vegar um landið. Og eins og ég sagði, ef þetta er hægt, að nema burt það, sem í lögum er kallað framlög ríkisins til hinna ýmsu stofnana núna, fer ég að verða nokkuð uggandi um það, að við eigum kannske von á því síðar á þingi, ef núv. hæstv. ríkisstj. situr til langframa, að farið verði að ganga á aðrar eignir sveitarfélaganna, sem framlög hafa verið veitt til, og talið, að það sé heimild til þess að taka þessar eignir til baka, vegna þess að ríkissjóður á a. m. k. hluta ríkissjóðs, sem framlögin hafa verið notuð til taka það til baka aftur. Vonandi verður það ekki, en þetta verður þó fordæmi og væri í fullu samræmi við það, sem þessi lög gera ráð fyrir.
Ég skal nú ekki halda uppi um þetta meira málþófi, en ég vildi mjög undirstrika og leyfa mér að benda hæstv. ríkisstj. á það, að hún er með svona aðförum við samtök ísl. sveitarfélaga að baka sjálfri sér fyrst og fremst erfiðleika. Hún er að tefja störf Alþ. og valda ríkissjóði þar af leiðandi óþarfa útgjöldum og þetta ber að harma, og ég ætla að vonast til þess, að þarna verði stefnubreyting á og ef hæstv. ríkisstj. þarf framvegis að breyta einhverjum lögum eða setja lög, sem varða sveitarfélögin, þá firri hún sjálfa sig þeim vanda, sem því fylgir að skapa sér andstöðu þeirra, og hafi samráð við þau við undirbúning þeirra laga, sem í framtíðinni kunna að verða sett í sambandi við starf sveitarstjórna og aðstöðu þeirra.