18.05.1972
Neðri deild: 86. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1784 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)

237. mál, lögreglumenn

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég skal ekki segja, hvort það er af ásetningi gert að sneiða hjá að svara beint þeirri fsp., sem beint er til hæstv. ráðh. Ég var alls ekki að tala um eignaupptökuna í þessari ræðu minni, ég var búinn að gagnrýna hana áður. Þó að það sé eitthvert fordæmi um það hvað snertir héraðsskóla, þá breytir það ekki þeirri skoðun minni, að hér geti verið lagaákvæði, sem ekki standist gagnvart stjórnarskránni. Það getur þá farið svo, að um hitt fordæmið, sem hann nefndi, sé eins ástatt. En þetta var ég ekki að tala um og ekki að spyrjast fyrir um. Ég var að spyrjast fyrir um, hvernig væri með rekstur þess húsnæðis, sem hér er um að ræða. Og ef hæstv. ráðh. ætlar að skjóta sér undan að svara því, hvernig líta beri á þau frv. og þau lög, sem borin hafa verið fram af hæstv. ríkisstj., þá verð ég að draga þær ályktanir, að það sé ætlunin að láta þetta fara svona áfram eins og hér stendur og hér er reyndar búið að samþykkja, þó að það sé fullt ósamræmi þar á milli, þ. e. að ríkissjóður yfirtaki löggæzluna og kostnaðinn af henni, yfirtaki fasteignir, sem ekki hafa verið hingað til í eigu ríkisins, en gera síðan ráð fyrir því, að sveitarfélögin og í þessu tilfelli borgarsjóður Reykjavíkur taki áfram þátt í rekstri þessara fasteigna, eins og ótvírætt segir í þessum fjárlögum. Og þessum vinnubrögðum vil ég harðlega mótmæla, því að það er alls ekki neitt samræmi í því að bera fram frv. til laga um yfirtöku ríkissjóðs á löggæzlukostnaðinum og halda því síðan áfram til streitu, að borgarsjóður í þessu tilfelli eigi að greiða áfram helmingskostnaðinn af rekstri þeirra löggæzluhúsa, sem hingað til hafa verið sameiginlega rekin af þessum aðilum. Mér þykir miður, ef svo á að vera í framkvæmdinni og trúi því ekki að óreyndu, að þessu verði haldið til streitu, en því miður er ekki hægt að skilja svör eða svarleysi hæstv. ráðh. öðruvísi en svo, að ríkisstj. hyggist beita þessum ákvæðum á svo óskammfeilinn hátt.