19.05.1972
Efri deild: 92. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1785 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)

237. mál, lögreglumenn

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Það er yfirleitt venja, að þegar breytt er lögum, þá er getið um það í síðustu gr. laganna eða svo til, ef ekki eru bráðabirgðaákvæði sett um leið, að gildandi ákvæði laga, sem brjóta í bága við efni þess, sem verið er að samþykkja, skuli falla úr gildi. Um það er ekkert í þessu, og þess vegna tel ég, að hin fyrri löggjöf gildi á meðan ekki eru ákvæði í lögum um það beint, að hin fyrri ákvæði, sem gildi um sama efni, séu úr gildi numin.