19.05.1972
Efri deild: 92. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1788 í B-deild Alþingistíðinda. (1786)

276. mál, staðfesting Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listaverkum

Auður Auðuns:

Herra forseti. Ég skal vera stuttorð. Þetta frv. er komið til hv. d. aftur vegna smábreytingar, sem á því var gerð í hv. Nd. Þar var ákvæðinu um stjórn skólans, um skólanefndirnar, breytt þannig, að í stað þess, að í upphaflega frv. er kveðið svo á, að Læknafélag Íslands skuli tilnefna einn nm., því var breytt í það, að heilbr.- og trmrh. skuli nefna aðila ... (Forseti: Mætti ég vekja athygli hv. þm. á því, að það er 2. dagskrármálið.) Nú, ég bið forseta afsökunar, ég hafði litið á dagskrá sessunautar míns og hann hafði sagt mér, að þetta mál væri á dagskrá, og rétti mér plöggin.