18.05.1972
Neðri deild: 87. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1801 í B-deild Alþingistíðinda. (1820)

77. mál, veiting ríkisborgararéttar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs um þetta mál, ég held um hálffjögurleytið í dag. Síðan hefur margt gerzt, nokkrar ræður verið fluttar um málið og það athugað í n. Eigi að síður ætla ég að nota tækifærið og segja um það örfá orð.

Við erum öll sammála um að bjóða hinn víðfræga listamann Ashkenazy velkominn í íslenzkt samfélag sem ágætan kjörson Íslands, en þá rekumst við á ákvæði 2. gr. frv. til l. um ríkisborgararétt, sem er mjög ótvírætt og erfitt að komast fram hjá. Þetta mál hefur verið lengi á döfinni hér á hv. Alþ., þó að það hafi ekki verið rætt til hlítar nú um langan tíma. Um það eru mjög skiptar skoðanir. Það er ekki furða, þó að endurskoða þurfi lögin um mannanöfn, sem nú eru orðin nær hálfrar aldar gömul. Við vitum, að fyrir liggur nú þegar saminn lagabálkur eða samið frv. um þetta efni, sem ekki hefur enn verið rætt eða fjallað um á Alþ. Ég verð að segja, að ég tel það ekki vansalaust að láta þetta frv., sem virðist vera vel og rækilega undirbúið, liggja í dái svona lengi, án þess að við tökum rögg á okkur og ræðum það mál til hlítar og ákveðum, hvað gera skuli. Vandamál á borð við þetta, sem við rekum okkur á núna, geta hæglega endurtekið sig hvenær sem verða vill.

Ég hef oft undrað mig á því, hve skoðanir eru skiptar um þetta mál og verð að segja, að ég var mjög sammála mörgu því, sem fram hefur komið hér í ræðum manna, ekki sízt hjá hv. 2. þm. Vestf. Hér liggja fyrir ýmsar brtt. til að greiða úr þessum hnút, til að leysa þennan vanda. Hv. 7. þm. Reykv. lýsti till. sinni og ég held þriggja annarra hv. alþm. í dag, en þar er bent á þá leið að taka eina gr. úr hinu samda frv. upp sem brtt. við þetta frv. og samþykkja hana. Ég verð að segja, að þótt mér lítist að sumu leyti nokkuð vel á þessa leið, þá finnst mér þó dálítið varhugavert að taka eina gr. út úr frv.-bálkinum sem fyrir liggur og gera hana nú að lögum. Ég er ekki svo kunnugur því frv. Þess vegna verð ég að taka til greina varnaðarorð hv. 1. þm. Austf., sem benti á, að varasamt gæti verið að taka þessa einu gr. og gera að lögum, þar sem frv. byggði að nokkru a. m. k. á öðrum forsendum en við höfum gert til þessa á sviði mannanafnalöggjafar. Það munu liggja fyrir fleiri brtt. Hæstv. forsrh. gaf ákveðna yfirlýsingu í þessu máli og við erum öll sammála henni að vissu leyti, en jafnvel hæstv. ráðh. verða þó að fara að ótvíræðum lögum. Það er vitað mál að um þetta efni eru mjög skiptar skoðanir, þannig að við útkljáum það ekki á þessari kvöldstund, sem eftir er af þinginu. Ég held því, að það sé langauðveldasta lausnin á þessu stigi málsins að heita á sjálfa okkur að taka þetta frv. um mannanöfn til rækilegrar skoðunar þegar á næsta hausti, deila um það og skera úr þeim deilum og koma því í lög sem nýrri löggjöf um mannanöfn. En eins og málið stendur nú, tel ég langeðlilegast og auðveldast að leysa það með því móti að samþykkja till. á þskj. 915 frá hv. 5. þm. Reykv. og slá því þar með föstu að veita hæstv. forsrh. og dómsmrh. ótvíræða lagaheimild til þess að gera það, sem hann ætlaði sér að gera samkv. því, sem hann lýsti yfir í ræðu sinni fyrr í dag.