21.04.1972
Neðri deild: 64. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Bjarni Guðnason:

Herra forseti. Ég fagna mjög því frv. til l. um breytingu á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins, sem hér liggur fyrir. Eins og hæstv. félmrh. gerði grein fyrir, er megininntak þessa frv. afnám vísitölubindingarinnar alræmdu. Ég hef leyft mér að koma hér með örlitla brtt. við 1. gr. frv., um að hún hljóði svo, eins og segir á þskj. 601:

„Í húsnæðismálastjórn eiga sæti þrír menn, einn tilnefndur af félmrh., og er hann formaður, einn af Sambandi ísl. sveitarfélaga og einn af Alþýðusambandi Íslands.“

Ég fagna því einnig mjög, hvernig hæstv. félmrh. fórust orð um þessa 1. gr., að hann taldi óeðlilegt, að þuklað væri flokkspólitískt á umsóknum þeirra aðila, sem þurfa á lánum til íbúðabygginga að halda, og ég er fyllilega sammála hæstv. félmrh. Það má segja, að þessi till. mín sé borin fram í anda hans. Ég vænti því, að þessi brtt. fái nokkurt brautargengi hér á Alþ., og mun hún væntanlega koma til umr. í þeirri n., sem um þetta mál fjallar.