21.04.1972
Neðri deild: 64. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)
255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ýmsar aths. komu fram hér áðan frá 11. landsk. þm. Hann hélt því m. a. fram, að breytingin í frv. á skipun húsnæðismálastjórnar færði vald til Reykjavíkur, færði saman valdið. Það er einmitt lagt til, að flokkslegir fulltrúar, sem sitja hér í húsnæðismálastjórn suður í Reykjavík, hafi ekki lengur rétt til þess að tilnefna þrjá menn í stjórn verkamannabústaðanna úti um landsbyggðina. Þar með er fært meira vald út um byggðirnar til þess að ráða þessum byggingarmálum fólksins. Breytingin fer því í þveröfuga átt við það, sem hv. þm. vildi halda fram. Það er alveg rétt hjá honum hins vegar, að eitt stærsta atriðið í húsnæðismálunum er náttúrlega fjármálin. Tekjur Byggingarsjóðs núna, Húsnæðismálastofnunar í heild, losa milljarð. Talið er, að þær muni vera 1 milljarður og 13 millj. kr. á árinu 1972. En viðskilnaðurinn var slíkur hjá fráfarandi stjórn, að það var ekki eftir af þessa árs tekjum annað en 50.4 millj. kr., hitt var búið að éta fyrir fram. Það er af því, sem fjárskortur Húsnæðismálastofnunar stafar á árinu 1972. Það hafði líka verið rækilega gerð grein fyrir því, að þegar nýja löggjöfin var sett 1970, voru áform uppi um það að útvega Húsnæðismálastofnun tekjustofna, en það varð minna úr en skyldi. Það átti að ákveða henni þá samkv. frv., eins og það var lagt fram, 25% af ráðstöfunartekjum lífeyrissjóðanna. Það varð hins vegar 90 millj. kr. í eitt ár, svo féll það niður. Önnur fjáröflun til sjóðsins þá var lán, sem tekið var til tveggja ára og á að greiðast á árinu 1972. Hitt er hins vegar rétt, að útgjöld Húsnæðismálastofnunar voru þá stórkostlega aukin, almennu lánin hækkuð upp í 600 þús. kr. og framlögin til verkamannabústaða sömuleiðis hækkuð verulega, en ekki var séð fyrir tekjuhliðinni.
Ég játa fúslega, að það er ekki nægilega vel séð fyrir tekjuhliðinni og alls ekki í frv. Hins vegar hefur ríkisstj. staðið í samningum við stjórn lífeyrissjóðanna um það, að þeir féllust á, að fastur hundraðshluti af ráðstöfunarfé þeirra, sem nú er orðið mikið fé, á annan milljarð líklega, færi til húsnæðislánakerfisins. Þessu hafa þeir tekið treglega og ég þori ekki að gefa aftur bjartar vonir um það, að þetta verði til þess að byggja á á þessu ári, en líklegar hafa þeir tekið í annað tilboð, að lána Byggingarsjóði 250–300 millj. kr. á þessu ári með sérstökum kjörum. Lánin yrðu til 10 ára og þeir fengju vísitöluuppbætur á lánin. Það má segja, að slíkt sé neyðarúrræði, en þetta er mjög lokkandi fyrir lífeyrissjóðina, sem óttast mjög rýrnun á stofnfé sínu, einkanlega eftir visst árabil, þegar kemur að því, að þeir eiga að greiða út lífeyrisbætur. Mér virðist þó, að það mál horfi svo, að það megi kannske telja líklegt, að þeir semji við ríkisstj. um 250–300 millj. fjárframlög með sérstökum vaxtakjörum til 10 ára. Það er sú fjáröflun, sem við höfum leitað eftir að fá og mundi þá nokkuð vera komið til móts við fjárþörf Byggingarsjóðs á þessu ári, þrátt fyrir það að hann var félaus í ársbyrjun að kalla.
Það hefur verið talað um, að hann vantaði 500 millj. kr., en þá hafði Atvinnuleysistryggingasjóður ofborgað 63 millj. kr. á árinu 1971 og var talið, að hann mundi láta taka það af sínu framlagi á árinu 1972, en nú hefur hann gengið inn á að greiða fullt tillag, ekki minna en 63 millj. kr., þrátt fyrir það á árinu 1972 og dregur það nokkuð úr þeirri upphæð, sem þá var talin vanta. Ég hygg þá, að ef fengist inn í sjóðinn núna 350 millj. kr. á þessu ári, 350–370 millj. kr., gæti hann staðið við allar sínar skuldbindingar. Á liðnu ári fór svo, að þá virtist vanta 163 millj. kr. til þess að hægt væri 1. nóv. að afgreiða allar þær umsóknir, sem þá áttu afgreiðslurétt. Þetta fé varð að útvega með bráðabirgðasamningi við Seðlabankann. Þannig að það voru afgreiddar allar lánsumsóknir, sem áttu rétt fram til 1. nóv., og þó dálítið betur hvað snertir Austfirði og Vestfirði, — sumarið byrjar þar síðar og byggingarframkvæmdir hefjast síðar, — þar voru afgreiddar allar umsóknir fram til 15. nóv. Síðan áttu þær umsóknir, sem þá höfðu borizt eftir 1. nóv. fram til áramóta, að fá afgreiðslu núna 1. febr. Vantaði þá 6 millj. kr. til þess að hægt væri að afgreiða þær, en með samkomulagi við Seðlabankann voru þær allar afgreiddar þannig, að Seðlabankinn leyfði yfirdrátt um 6 millj. kr. Fram að þessu er því búið að leysa fjárþörf húsnæðismálastjórnar, en á síðari hluta ársins kemur að því, að útvega þarf allmikið fé, eins og ég segi, ekki minna en 350 millj. kr. Þannig standa þessar sakir. En auðséð er bæði af því, sem úrskeiðis fór hjá fráfarandi stjórn, og þeirri fjárvöntun, sem nú er, að skjóta þarf fleiri stoðum undir tekjuöflun Byggingarsjóðsins, ef hann á að geta staðið undir skuldbindingum sínum. Það verður að vera hægt að afgreiða a. m. k. 1400–1500 lánsbeiðnir að fullu á ári hverju, það er alveg ljóst mál.
Lán að upphæð 600 þús. kr. duga hvergi nærri, þar sem menn hafa ekki að öðru að venda, þó að lífeyrissjóðirnir komi nú í mjög mörgum tilfellum til hjálpar, — sumir lána allt upp í 200–300 þús. kr. og taka þannig verulegan þátt í fjármögnun í húsnæðismálunum. En gallinn er sá, að ef þetta fer í gegnum húsnæðismálakerfið sem ákveðin lánsupphæð af fé lífeyrissjóðanna, er þetta mjög mismunandi. Sumir fá geysihá lán úr sínum sterku lífeyrissjóðum og aðrir mjög lág viðbótarlán úr þeim lífeyrissjóðum, sem veikari eru.
Fjármögnun til verkamannabústaðanna verður ærið vandamál. Ef það reynist nú, sem ég vona, að margir kaupstaðir og kauptún fari af stað með byggingu verkamannabústaða, sem eru langhagkvæmustu lánskjörin, þá þarf þar miklu meira fé en á undanförnum árum. Þar eru lánakjörin þau, að hver lántakandi fær 600 þús. kr. úr almenna lánakerfinu, hann á síðan að leggja fram 20% af byggingarkostnaði sjálfur, en bilið á að brúast með láni úr Byggingarsjóði verkamanna til 42 ára með 2% vöxtum. Þetta eru lánakjörin þar og í hverja byggða íbúð kemur þess vegna miklu meiri fjárútvegun.
Ég vil svo að síðustu segja það, að ef hv. 11. landsk. þm. eða einhverjir aðrir hv. þm. telja, að þetta frv. taki á of fáum vandamálum húsnæðismálanna og vilja auka þar við og leiðrétta fleira af því, sem leiðrétta þarf varðandi húsnæðismálin, væri það mjög vel séð af mér, og ég hygg, að ég megi segja, að það væri mjög vel séð af ríkisstj. allri.