17.05.1972
Neðri deild: 82. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)
255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. minni hl. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Við fulltrúar Sjálfstfl. í heilbr.- og félmn. höfum gefið út sérstakt nál. á þskj. 827. Þar leggjum við til, að frv. þessu verði vísað frá með rökstuddri dagskrá, svo hljóðandi:
„Þar sem einsýnt er, að breytingar þær, sem frv. gerir ráð fyrir, eru ekki svo aðkallandi, að þær megi ekki bíða til næsta hausts, telur Nd. Alþ. rétt, að skipuð verði nefnd, sem í eigi sæti fulltrúar frá hverjum þingflokki og tilnefndir af þeim. Hafi nefndin það hlutverk að endurskoða lögin um Húsnæðismálastofnun ríkisins. einkum með tilliti til fjárþarfar Byggingarsjóðs, afnáms vísitölubindingar o. fl., og verði endurskoðun lokið í haust.“ — Það hefur fallið þarna niður: „og frv. lagt fyrir næsta Alþingi.“
Ég vil fara nokkrum orðum um þetta mál. Satt að segja var erfitt að átta sig á því, hver yrðu örlög þessa frv. í heilbr.- og félmn., þar til í gærmorgun, og mæðan var orðin talsverð og nokkuð löng. En niðurstaðan varð samt sú, sem kannske mátti búast við, að um síðir hefur tekizt, með einhverjum þvingunum sjálfsagt, að beygja fulltrúa stjórnarflokkanna í n. til fylgis við þetta frv. Það verður að ætla, að allir hv. alþm. geri sér grein fyrir því sjónarspili, sem hæstv. félmrh. hefur hér í frammi. Þetta hefur orðið ljósara á þeim fáu dögum, sem liðnir eru síðan þetta frv. var lagt fram. Það er t. d. ómótmælanleg staðreynd, að veigamesta ákvæði frv. um afnám vísitölubindingar lána getur ekki komið til framkvæmda á þessu ári einfaldlega vegna þess, að lánin eru þegar gjaldfallin. Því liggur ekkert á að flaustra þessari breytingu af. Það hefur ekki heldur verið upplýst, hver áhrif 3. gr. frv. raunverulega hefur á tekjur Byggingarsjóðs ríkisins.
Eins og ég tók fram við 1. umr. þessa máls, styður Sjálfstfl. það, að vísitölubinding af afborgunum og vöxtum af lánum Byggingarsjóðs verði afnumin. Hins vegar viljum við ekki taka þátt í neinum flausturslegum ákvörðunum, en þær eru einmitt viðhafðar hér. Þessi regla, sem sett er fram hér, er þannig, að erfitt verður fyrir allan almenning að skilja hana. Menn vita raunverulega ekki, að hverju þeir ganga. Þetta kemur einkum fram, þegar menn kaupa íbúðir, sem þessi lán fylgja. Við viljum þess vegna taka undir þá hugmynd, sem kemur fram í umsögn húsnæðismálastjórnar, að setja vextina fasta, en hafa þá þó breytilega, ef svo má að orði komast. Ég á við það, að í fyrstu, þegar lánið er tekið, verði vextirnir lágir, t. d. 4%, og þeir haldist þannig um eitthvert tiltekið árabil. Síðan hækki þeir stig af stigi, þar til því hámarki er náð, sem talið verður eðlilegt. Hér er ekki sett fram ákveðnari tillaga vegna þess að þetta er mál, sem þarf ítarlegrar athugunar við. Það þarf að taka tillit til hagsmuna lántakenda annars vegar og hagsmuna Byggingarsjóðs ríkisins hins vegar. Með ákvæðum 3. gr. frv. er ekki tekið tillit til hagsmuna Byggingarsjóðs, en slíkt er brýn nauðsyn, ef sjóðurinn á að verða þess megnugur að sinna þeim umsóknum, sem honum ber að sinna samkv. lögum. Ég ítreka það, að það liggur ekki á, nú á síðustu dögum þingsins, að afgreiða þetta mál vegna þess að þetta kemur hvort eð er ekki til framkvæmda fyrr en á næsta ári. Þess vegna er skynsamlegt að fresta þessu og fara að þeirri tillögu okkar, að nefnd, sem í eigi sæti fulltrúar allra þingflokka, athugi málið í sumar og hafi tilbúið frv. fyrir næsta þing.
Þá vil ég geta þess, að samkv. upplýsingum, sem ég hef getað aflað mér, eru aðeins fjórir lánaflokkar komnir yfir það mark, sem 3. gr. gerir ráð fyrir, yfir 73/4%. Það eru fyrstu fjórir lánaflokkarnir, sem gefnir voru út. Hæstu meðalvextir eru á skuldabréfum, sem gefin voru út um áramótin 1964–1965, og eru 8.1%. Þessi hugmynd, sem hér hefur verið hreyft, um fasta vexti, sem hækki þó með árunum, er í sjálfu sér ekki ný. Hún er t. d. notuð nú við útgáfu spariskírteina ríkissjóðs. Þannig eru vextir af þeim 3%, ef þau eru innleyst innan þriggja ára frá útgáfu, síðan fara þeir hækkandi. Þetta mætti alveg eins útfæra í sambandi við lán Byggingarsjóðs.
Um 2. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir að hækka um 20 millj. kr. framlag til lána vegna kaupa á eldri íbúðum, vil ég aðeins fara nokkrum orðum. Það er í sjálfu sér góðra gjalda vert að hækka þessi framlög til lánveitinga út á eldri íbúðir. Fjárþörfin til þeirra þátta er alveg örugglega miklu meiri en þetta. En þar sem Byggingarsjóði er ekki séð fyrir auknum fjárframlögum úr ríkissjóði, hafa ákvæði þessarar greinar þau áhrif að draga úr lánum til nýbygginga. Ef til vill er það ætlun ríkisstj. Ef svo er, væri mjög æskilegt að fá það upplýst. Það hefur komið í ljós á þeim skamma tíma, sem þessi heimild hefur verið í lögum, að nauðsyn ber til að hafa framlögin hærri. Í lögunum eru hámarkslán ákveðin 250 þús. kr., en það hefur ekkert lán verið afgreitt með svo hárri fjárhæð til þessa.
Þeir Alþb.-menn munu hafa staðið fast á móti 4. gr. og því hefur meiri hluti n. lagt til, að hún falli niður, og orðið þar einnig við tilmælum eða ábendingum húsnæðismálastjórnar. Þessa tillögu styð ég. Ekki svo að skilja, að fyrirkomulag það, sem nú gildir um skipan stjórnar verkamannabústaða, sé hafið yfir alla gagnrýni, heldur hitt, að ég get ómögulega stutt hæstv. félmrh. í þeirri viðleitni hans að koma hinu pólitíska þuklarakerfi sínu á með þeim sérstæða hætti, sem 4. gr. gerði ráð fyrir.
Þá er eftir að líta aðeins á 1. gr. frv., ákvæði 1. gr., þar sem gert er ráð fyrir að fækka þingkjörnum fulltrúum í húsnæðismálastjórn úr sjö í fimm. Samkv. upplýsingum hæstv. ráðh. er það gert til þess að draga úr þessu pólitíska þukli. Það á víst að minnka eftir því sem höndunum fækkar. Húsnæðismálastjórn lýsir sig andvíga þessari breytingu í umsögn sinni og bendir á aukin verkefni stjórnarinnar á síðari árum og þá ekki sízt vegna hinna nýju laga frá 12. maí 1970, er húsnæðismálastjórn var fengin varzla Byggingarsjóðs verkamanna og yfirstjórn verkamannabústaðakerfisins, svo og lánveitingar til kaupa á eldri íbúðum, auk víðtækra heimilda til framkvæmdalána o. fl. Til að anna hinum auknu verkefnum hefur stjórnin skipt sér í starfsnefndir. Húsnæðismálastjórn bendir á, að fækkun í stjórn mundi ekki verða til hægðarauka. Nú vill svo til, að núv. hæstv. félmrh., Hannibal Valdimarsson, hefur áður gegnt sama embætti. Ef maður athugar afskipti hans af löggjöfinni um Húsnæðismálastofnun ríkisins á hinum fyrri velmektarárum og ber þau saman við ráðagerðir hans nú, auðveldar það satt bezt að segja ekki skilning á þessum athöfnum hans. Í febrúar 1957 setti þessi hæstv. ráðh. brbl., sem fólu í sér breytingu á skipan húsnæðismálastjórnar. Þetta er sem sagt ekki í fyrsta skipti, sem það liggur á að breyta þessum lögum. Með þessum brbl. var fjölgað í stjórninni úr fimm í sjö. Nú á að fækka úr sjö í fimm. Jafnframt því að fjölga í húsnæðismálastjórn fólu þessi brbl. í sér skipun þriggja manna úr stjórninni til þess að hafa á hendi stjórn allra framkvæmda á vegum hennar eftir nánari fyrirmælum í reglugerð, eins og sagði í lögunum. Tilgangurinn með þessum brbl. var alveg augljós. Það þurfti að koma í veg fyrir, að fulltrúi Sjálfstfl. í húsnæðismálastjórn tæki þátt í úthlutun lána. Það þótti sem sagt ekki gott, að hið pólitíska þukl færi fram fyrir augum þáverandi stjórnarandstöðu. Þetta voru sem sagt febrúarlögin 1957. En svo komu ný lög í júní sama ár. Og hvað skeður þá? Þá er aftur fækkað um tvo í stjórninni og ákvæðin um framkvæmdanefnd felld niður. Vegna tengsla veðdeildar Landsbanka Íslands og Byggingarsjóðs ríkisins hafði ráðh. fengið heimild til að skipa einn mann í stjórn samkv. tilnefningu bankans. Með júnílögunum 1957 er þessi fulltrúi sviptur atkvæðisrétti sinnum um lánveitingar, eða eins og segir í lögunum: „Skal hann eigi hafa atkvæðisrétt um lánveitingar.“ Þannig var nú traust hæstv. félmrh. á bankavaldinu í þann tíð. Nú talar sami hæstv. ráðh. um, að í rauninni sé sjálfsagt að leggja Húsnæðismálastofnunina niður og fela veðdeild Landsbankans að annast þessi mál. Er nú nokkur furða, þótt ýmsum sýnist, að ástæða væri til að gefa hæstv. félmrh. tíma yfir sumarið til þess að athuga þessi mál betur? Það gæti komið í veg fyrir áframhaldandi hringl með fjölda stjórnarmanna í húsnæðismálastjórn og m. a. losað ráðh, við að skipta um skoðun opinberlega eftir hálft ár. Hlutur Alþfl. í afgreiðslu þessa máls er nú kannske kapítuli út af fyrir sig. Formaður flokksins skrifar undir nál. með fulltrúum stjórnarflokkanna. Hann skrifar undir það, að tekjur Byggingarsjóðs séu rýrðar og hann skrifar væntanlega undir það, að Alþfl. missi fulltrúa sinn í húsnæðismálastjórn. Eða hefur e. t. v. verið samið um eitthvað annað? Kannske fáum við að vita það á eftir.