17.05.1972
Neðri deild: 83. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Ellert B. Schram [frh.]:

Herra forseti. Það mætti kannske ætla, að eðlilegt væri, þegar ég held áfram ræðu minni, að ég héldi áfram, þar sem frá var horfið, en ég er ekki vanur að slíta ræður mínar svona í sundur, þannig að margir tímar líði milli upphafs og endis, og þar sem ýmsir þm. voru ekki hér í dag, er kannske rétt að rifja örlítið upp það, sem ég sagði hér í upphafi ræðu minnar.

Ég vakti í upphafi athygli á því, að mikið fjaðrafok hefði orðið hér á s. l. vori, bæði í dagblöðum og hér á þingi, út af grein, sem Þórir Bergsson tryggingastærðfræðingur birti og sendi sennilega öllum þáverandi þm., þar sem hann hélt því fram, að vísitölubinding húsnæðismálalána væri hrein ólög. Sagði jafnframt í þessari skýrslu hans, að þau jöðruðu við löghelgað okur, misrétti, og hann skoraði á hv. alþm. að leiðrétta þetta þegar í stað.

Núverandi hæstv. félmrh. ásamt tveim öðrum þm. flutti þegar í stað, greinilega að lítt athuguðu máli, þáltill., þar sem skorað var á stjórnvöld að afnema þá þegar þessi okurlög, sem vísitölubindingin væri, og fór mörgum orðum um það í grg. með þessari þáltill., og vitnaði ég m. a. til grg., þar sem sagði m. a. á þessa leið, með leyfi forseta:

„Ástæða er til að ætla, að gildandi lagaákvæði um vísitölutengingu lána Húsnæðismálastofnunar ríkisins leiði og hafi leitt til óþolandi misréttis lántaka úr Byggingarsjóði ríkisins miðað við aðra lántaka. Enn fremur, að raunvextir bindi þeim, sem fengið hafa lán úr sjóðnum á tímabilinu frá því er lán voru tengd vísitölu, nú slíka fjárhagsbagga, að þeir fái ekki undir þeim risið og þurfi hér því þegar í stað að breyta vaxtakjörum að lágmarki svo, að vextir Byggingarsjóðsins verði a. m. k. aldrei hærri en útlánsvextir banka.“

Þetta las ég upp í upphafi ræðu minnar hér fyrr í dag og væri kannske óþarfi að ítreka það, en ég geri það þó til að undirstrika þau stóru orð, sem voru viðhöfð, þegar þessi þáltill. var flutt af hálfu núverandi félmrh. á s. l. vori. Þessi þáltill. fékkst ekki afgreidd, en út af henni var gert mikið sjónarspil og það blásið upp, að þessi vísitölubinding væri mikil ólög, sem kæmu verst niður á efnalitlu og fátæku fólki, sérstaklega á launþegum, og ég leiddi rök að því hér fyrst í ræðu minni, að það væri full ástæða til að halda, að þessi áróður hefði haft mjög afgerandi áhrif í kosningabaráttunni og á kosningaúrslit í síðustu alþingiskosningum. Ég vakti líka athygli á því, að í framhaldi af þessu hefði verið tekið inn í málefnasamning ríkisstj. ákvæði eða loforð, sem gengi út á, að ríkisstj. hygðist afnema vísitölubindingu húsnæðislána. Vegna þessarar þáltill. og þessa loforðs í málefnasamningnum og hinna stóru orða þáverandi stjórnarandstöðu taldi ég eðlilegt og rétt, er líða tók á þing nú í haust, að spyrjast fyrir um það hér í þinginu, hvað liði þessu afnámi, og vitnaði þá til þess, að fyrrverandi ríkisstj. hefði farið þess á leit við Seðlabanka Íslands og Alþýðusamband Íslands að kanna, hvaða áhrif vísitölubindingin hefði á lánakjörin, og þá var sú spurning uppi, hvað þessar athuganir þessara stofnana hefðu leitt í ljós. Þessi fsp. kom til umr. hér á hinu háa Alþingi í nóv. s. l., nánar tiltekið 25. nóv. s. l., og þá upplýsti hæstv. félmrh., að þá þegar hefði borizt grg. frá Seðlabanka Íslands. Hún hefði borizt fyrir allgóðum tíma eða strax þá um haustið, en hins vegar hefði grg. Alþýðusambands Íslands ekki borizt fyrr en nokkrum dögum áður en þessi þáltill. kom til umr. á þingi. Það eitt út af fyrir sig er athyglisvert, sem ég raunar benti á í þessum umr. um fsp., að Alþýðusamband Íslands, sem á að gæta hagsmuna launþega, hefði ekki meiri hraða á athugunum sínum á þessu máli en svo, að það dróst í meira en hálft ár, að grg. kæmi frá sambandinu. Með tilliti til þess, að flm. fyrrnefndrar þáltill. voru þáverandi forseti Alþýðusambands Íslands og varaforseti og þeir drógu ekki úr því, hversu mikið misrétti þetta væri gagnvart launþegum, með tilliti til þessa var einkar athyglisvert, að ekki skyldi vera leitað frekar eftir skýrslu Alþýðusambandsins eða að Alþýðusambandið sjálft sýndi málinu ekki meiri áhuga, þegar allt. kom til alls, en svo, að það dró að skila athugunum sínum í meira en hálft ár.

Þetta upplýsti ráðh. í svari sínu sem sagt, að skýrsla Seðlabankans hefði borizt fyrir alllöngu, en skýrsla Alþýðusambandsins hefði hins vegar borizt aðeins nokkrum dögum áður. Hann taldi, að ekki væri hægt að skýra frá niðurstöðum fyrr en grg. Alþýðusambandsins hefði verið athuguð. Hún hefði verið mikið plagg, í mörgum tölum og töflum, eins og ráðh. orðaði það, en hann taldi, að það þyrfti ekki að taka svo langan tíma, viku eða 10 daga, að vinna úr því og gaf í skyn, að vænta mætti niðurstöðu, vænta mætti till. af hans hálfu innan mjög skamms tíma. Í þessum umr. og í svari ráðh. kom það fram, að samkv. athugunum Seðlabankans hefðu lánakjörin ekki verið óhagstæðari en önnur lán húsnæðismálastjórnar. Hins vegar var það játað af Seðlabankanum, eins og ráðh. tók til orða, að þegar fram í sækti og um það leyti sem lánstíma lyki, væru þessi kjör ósambærileg, þ. e. óhagstæðari en önnur lánskjör húsnæðismálastjórnar. En eins og fram kemur í þessum ummælum, lá það fyrir, að eins og útreikningar sýndu, voru lánakjörin ekki orðin óhagstæðari á þeim tíma en önnur lán með almennum vöxtum.

Samkv. beiðni las ráðh. upp frekari niðurstöður Seðlabankans, og sagði hann svo í svari sínu og las þá upp úr skýrslu bankans, með leyfi forseta: „Niðurstöður Seðlabankans og ályktanir þær, sem þeir draga af sínum útreikningum, eru á þessa leið: Hingað til, þegar liðin eru sjö ár af lánstímanum, eru lánskjörin enn ekki óhagstæð, en það er játað sem sé í svarinu, að þegar á lánstímann liði, þá standist þau ekki samjöfnuð við önnur lánskjör. — Ég tek þá þetta úr svörum seðlabankafulltrúanna, sem könnuðu málið“, sagði ráðh. „Þeir segja í fyrsta lagi: Greinilegt er, að greiðslubyrði lántaka vegna lána húsnæðismálastjórnar hefur létzt við þær breytingar á lánakjörum, sem framkvæmdar voru 1964, og enn frekar við breytingarnar frá 1968. Þetta er um liðna tíð. En sé litið á allt lánstímabilið og ekki aðeins fyrstu sjö árin, sbr. 1. lið að ofan, kemur í ljós, að lánskjör nr. 1, þ. e. þau lánskjör, sem giltu fram til ársins 1964, munu reynast lántaka hagstæðari en kjör þeirra þriggja lánaforma, sem reynd hafa verið frá þeim tíma. Samkv. lánskjörum nr. 1 bera um 4/5 hlutar lánsupphæðarinnar 81/4% nafnvexti, án allrar vísitölutengingar. Tenging 1/5 hluta láns við breytingar á framfærsluvísitölu að fullu ásamt 53/4 nafnvöxtum megna hins vegar ekki að hækka meðalvexti samkv. þessum lánskjörum upp fyrir meðalvaxtakjör annarra lánsforma húsnæðismálastjórnar, hvort sem þau hafa verið tengd vísitölu að fullu eða hálfu leyti.

Í þriðja lagi. Á þeim tímamótum, þegar vaxandi vísitöluáhrifa fer að gæta og raunverulegar vaxtagreiðslur nálgast það að fara upp fyrir vaxtagreiðslur, sem miðast við nafnvexti eina, t. d. 81/4%, eykst óánægja lántakenda, sem við slík lánskjör búa. Samanburðurinn við aðra lántakendur verður óhagstæður og vill þá oft einnig fyrnast yfir, að vaxtabyrðin var hlutfallslega hagstæðari framan af lánstímanum, sem í byrjun lánstímans var talið mikill kostur.

Í fjórða lagi. Til þess að forðast slíkan samanburð virðast a. m. k. tvær leiðir koma til greina, sem hefðu þann tilgang að jafna lánskjör á íbúðalánamarkaðinum í heild.

A. Annars vegar kemur til greina, að vísitölutenging yrði almennt tekin upp gagnvart slíkum lánum. Felur sú leið í sér, að lífeyrissjóðir og aðrar þær lánastofnanir, sem slík lán veita, byðu upp á sömu lánskjör og húsnæðismálastjórnin. Þetta er fyrri kosturinn.

B. Hins vegar gæti húsnæðismálastjórn afnumið alla vísitölutengingu lána, tekið upp nafnvexti eina, eins og lífeyrissjóðir og aðrar íbúðalánastofnanir gera í dag. Ef þessi leið yrði farin, yrði einnig að telja eðlilegt, að nafnvextir húsnæðismálastjórnarlána mundu ákvarðast af og verða þeir sömu og hjá öðrum lánastofnunum; eins og þeir eru á hverjum tíma, en af 1. flokks verðbréfum fara vextir allt upp í 9.5% í dag. Væru nafnvextir húsnæðismálastjórnarlána lægri en hinir almennu markaðsvextir, mundi það að sjálfsögðu hafa sín áhrif á útlánagetu Byggingarsjóðs ríkisins í framtíðinni. Á árinu 1970 námu vaxtatekjur sjóðsins 317.3 millj. kr. eða 26.3% af heildarráðstöfunarfé hans á því ári. — Þetta er úr svari fulltrúa Seðlabankans, sem könnuðu málið frá þeirri hlið“, segir ráðh. síðan.

Eins og ég hef bent á, var ekki hægt að vitna til skýrslu ASÍ á þessu stigi málsins, og enda þótt ráðh. hafi upplýst, að sú skýrsla hefði borizt viku eða 10 dögum áður en þessi fsp. var borin fram, þá hef ég ekki heyrt í umr. hér, — það má vel vera, að það sé misskilningur hjá mér eða misheyrn, — en ég hef ekki heyrt vitnað til skýrslu ASÍ, heldur hefur hæstv. ráðh. einkum og sér í lagi stuðzt við upplýsingar Seðlabankans. Þess vegna er mér nú spurn, hvort ekki sé hægt að fá upplýsingar um það, að hvaða niðurstöðu ASÍ hafi komizt, hvort niðurstöður þess séu svona í aðalatriðum þær sömu og Seðlabankinn kemst að eða hvort niðurstöðurnar séu þær, sem hæstv. ráðh. leyfði sér að fullyrða fyrir kosningar, að hér væri um ólög að ræða, hér væri um okurvexti að ræða, sem bindu lántakendum slíka fjárhagsbagga, að þeir fengju ekki undir þeim risið. Hver sem niðurstaða ASÍ hefur orðið, sem ég vildi nú gjarnan fá upplýst, þá hefur ráðh. vitnað til skýrslu Seðlabankans og reyndar tekið fram sjálfur, — ég lít á það sem hans persónulegu skoðun og reikna með, að það séu réttar niðurstöður, — að lánskjörin voru nú í haust a. m. k. ekki óhagstæðari en önnur lán, en yrðu síðan hugsanlega óhagstæðari, þegar fram í sækti. M. ö. o.: sú niðurstaða, sem fengizt hefur við þessa athugun, hefur leitt í ljós, að öll þau gífuryrði, sem viðhöfð voru fyrir kosningar, voru ekki á rökum reist og voru blekkingar einar, blásnar upp í þeim leiðinlega tilgangi að afla sér atkvæða til þess að komast til valda.

Nú hef ég ekki borið fram þessa fsp. né heldur verið að tjá mig um þetta mál vegna þess, að ég sé á móti því að afnema vísitölubindingu húsnæðismálalána. Þvert á móti, ég taldi strax og imprað var á þessum málum í framhaldi af skýrslu tryggingastærðfræðingsins rétt, að þetta mál yrði kannað og gengið yrði úr skugga um það, hvort hér væri um okurvexti að ræða, og ef svo væri, ef þessi lán, þó að jafnvel væri ekki um að ræða okurvexti, en ef þessi lán leiddu til þess, að þessi lánskjör yrðu miklum mun óhagstæðari en önnur lán til fasteigna vegna verðbólgunnar, þegar fram í sækti, þá þyrfti að afnema þessa vísitölubindingu. Með þessu var ekki neinn dómur lagður á tilgang vísitölubindingarinnar. Ég veit, að góður hugur stóð að þeim breytingum og þeim ákvörðunum, sem gerðar voru í samráði við og jafnvel fyrir tilstuðlan launþegasamtakanna, og menn voru þá í þeirri góðu trú, að hægt væri að halda verðbólgunni svo í skefjum, að þessi vísitölubinding færi ekki úr hófi fram, en reynslan hefur sýnt annað. Því miður hefur þetta mistekizt, og þess vegna verðum við að læra af reynslunni og við verðum að horfast í augu við þær staðreyndir, að þetta hefur ekki þjónað nógu góðum tilgangi, og með tilliti til þess hvors tveggja er rétt að afnema þessa vísitölubindingu. Þá ákvörðun og þá afstöðu studdi ég. Þó að það skipti ekki miklu máli, hafði ég þá skoðun sem sagt fyrir kosningarnar, en án þess að vera með einhver gífuryrði. Og ég tel í rauninni, að þarna sé um að ræða mikið hagsmunamál, sérstaklega fyrir ungt fólk, sem er að hefja byggingar eða kaupa fasteignir í upphafi búskapar síns, og þetta komi harðast niður á ungu og efnalitlu fólki. Þess vegna gaf ég þessu sérstaklega gætur og var þeirrar skoðunar, að það þyrfti að gera þarna breytingar á. (Gripið fram í.) Þetta er mjög athyglisverð spurning, sem ráðh. setur fram, og ég get í sjálfu sér alveg tekið undir það, því að ekki stendur á mér að samþykkja breytingar á vísitölubindingunni og gera það tafarlaust, en þá skora ég á ráðh. að breyta svo þessu frv., sem hér liggur fyrir, að sérstaklega sé tekið út úr þetta um vísitölubindinguna, og þá skal ég með ánægju greiða því atkvæði, en þegar það hangir saman við önnur ákvæði og aðrar breytingar á þessum lögum um Húsnæðismálastofnunina, þá gegnir öðru máli. (Gripið fram í.) Ég skal nú koma betur að því, hversu mikil smáatriði það eru, ég geri það seinna í kvöld.

Þótt ég sé sammála ráðh. um að afnema vísitölubindinguna og sé hlynntur þeirri stefnu, þá er ég ekkert endilega viss um það, hvort sú till., sem hér liggur fyrir um það að hinda vextina við 7.5%, sé rétt, hvort sú tala sé rétt og hvort hún komi betur út en það, sem nú er, eða einhver önnur vaxtabyrði. Ég hef enga aðstöðu til þess að dæma um það og reyndar er tekið fram af ráðh., að fyrir liggi miklir útreikningar og flóknar töflur og línurit hafi þurft til þess að sannfæra hann um, að þetta gæti staðizt. Þessa útreikninga, þessar töflur og þessi línurit hef ég ekki séð. Fulltrúar Sjálfstfl. í þeirri nefnd, sem hafði með þetta að gera, hafa sett fram aðra till., sem ég held að sé mjög athyglisverð. Ég get ekki heldur um það sagt, hvort hún sé endilega sú eina rétta, en það sýnir, að ýmsar hugmyndir eru uppi um það, hvernig skuli breyta þessu, og ég tel fulla ástæðu til þess að skoða það vel niður í kjölinn, og það segi ég vegna þess, að ég tel sem raunar er rétt, nægilegan tíma til þess að láta þessa athugun fara fram. Staðreyndin er nefnilega sú, hvort sem það var nú viljandi eða ekki gert, að dregizt hefur svo að leggja þetta mál fram, að það lá fyrir, að það mundi ekki nást í gegn, þannig að það kæmi til framkvæmda á þessu ári. Frv. var, að ég held, meira að segja lagt fram eftir að húsnæðismálalánin féllu í gjalddaga á þessu ári, og skal ég ekki gera því skóna, en ég tel það frekar slælega frammistöðu af hæstv. félmrh. að hafa nú ekki þann þrótt og kraft, sem hann er þó manna líklegastur til að hafa, til þess að leggja þetta mál fram fyrr, sérstaklega vegna þess, að skýrsla Seðlabankans lá fyrir nú þegar s. l. haust samkv. hans eigin upplýsingum og skýrsla ASÍ barst í nóv. s. l. Þá sagði ráðh. í umr. í nóv., að það tæki viku til 10 daga að fara yfir þessa skýrslu, og þá taldi hann ekki ósennilegt, að hægt væri að leggja fram einhverja till. í framhaldi af því, mjög stuttu eftir að skýrslurnar höfðu borizt, en nú er kominn miður maí og það eru liðnir sem sagt 41/2 mánuður, sennilega 5 mánuðir frá því að seinni skýrslan barst, án þess að nokkuð hafi bólað á breytingum. Ég segi, að ef það hefur verið vilji, raunverulegur vilji og áhugi hjá viðkomandi yfirvöldum að breyta þessu og bæta þarna um, hefði verið auðvelt að leggja fram þessi frv. fyrr, þannig að þau hefðu getað komið til framkvæmda strax á þessu ári. En umhyggjan fyrir lántakendum og fyrir þessu efnalitla fólki, sem átti nú að þurfa að greiða þessa vísitölubindingu og búa við þetta misrétti, var nú ekki meiri en svo, þessi umhyggja, að málið er dregið og saltað svo lengi, að það reynir ekki á framkvæmd þessara laga, ef þau verða samþ., fyrr en næsta ár, fyrr en 1. maí næsta árs. Allir þeir, sem búa við þessa óskaplegu vísitölubindingu í ár, þurfa að sæta henni áfram og greiða samkvæmt þessum lögum og þessum ákvæðum, sem nú gilda, vegna þess að lánin eru fallin í gjalddaga. Af þeim ástæðum í og með tel ég enga sérstaka ástæðu til þess að rjúka með þetta mál í gegn núna, að ég held frekar að óathuguðu máli.

Nú getur vel verið, að niðurstaðan verði sú, þegar búið er að athuga þetta mál betur, að rétt sé að mæla með 7.5% vöxtum, en við skulum bara fá tækifæri til að skoða það, og ég tel það vera í samræmi við þingræðislegar reglur og jafnvel skyldu framkvæmdavaldsins að virða þjóðþingið það mikið, að það fái tíma til þess að skoða svo stórt mál sem þetta er og hafa til þess tíma. Það er nefnilega svo í þessu máli eins og allt of mörgum öðrum, að málin eru látin dragast og ekkert bólar á þeim, þótt þau séu að margra manna mati mjög mikilvæg og snerti mjög margt fólk í þessu landi. En síðan þegar ráðh. og stjórnendum þóknast, demba þeir frv. hér yfir Alþ. og ætlast til þess, að þau séu samþ. og jafnvel nánast á einni nóttu. Þessi vinnubrögð fordæmi ég. Ég hafði haldið, þegar ég kom hingað inn á þingið, að ég væri hingað kominn til þess að vinna að málum og skoða þau ofan í kjölinn og afgreiða ekki neitt frá þinginu, nema ég væri sannfærður um það sjálfur, að það væri skynsamlegt og til bóta í þessu þjóðfélagi. Eins er það með þetta mál. Þetta er stórt mál, þetta snertir mjög margt fólk, þetta skiptir mjög miklu máli, hvernig kjörum húsnæðismála er varið, og þess vegna held ég, að það sé full ástæða til þess að skoða þetta mál virkilega og það sé gert af tilheyrandi nefndum hér í þinginu. Þær fái til þess góðan tíma, þær fái til sín öll þau gögn, sem um er að ræða, skýrslur, töflur, línurit og hvað eina.

Ég skal þá ekki dvelja lengur við þetta — já, það var nú mjög ánægjulegt að fá þetta línurit. Ég veit nú ekki, hvort ráðh. er það glöggur maður, að hann geti áttað sig á svona línuriti, þó að þau séu nú mjög einföld, en við getum kannske skoðað það sameiginlega hér í pontunni, úr því að það er verið að rétta þetta að mér. Er ætlazt til þess, að ég átti mig á því núna í pontunni? Má ég kannske fá tíma til að skoða það? (Gripið fram í.) Ég skal ekki vera að tefja tímann meira með því að velta þessu línuriti fyrir mér allt of lengi. Ég veit, að mönnum liggur á að fá þetta mál afgreitt. Ég skal ekki vera að skoða það mjög mikið hérna, enda þarf ég að ræða ýmis önnur mál, sem snerta húsnæðismál. Ég ætlaði að fara að segja það, að ég mundi ekki dvelja lengur við vísitölubindinguna, og ég vil taka það aftur fram, að ef ráðh. getur sætzt á það að leggja fram þá till. og það ákvæði sérstaklega, jafnvel þó að ég hafi ekki skoðað þetta ákvæði um 7.5% ofan í kjölinn, þá mundi ég samt sem áður þora að samþykkja það hér og telja vera mikinn vinning í því einu sér.

En það eru nefnilega fleiri ákvæði í þessu frv., sem ráðh. kallar smámál, en í mínum augum skipta þó nokkru máli og eru reyndar kjarni þess og ástæðan til þess að þetta frv. er borið fram. Ég leyfi mér að halda því fram, að það sé allt annað en þessi vísitölubinding, sem hafi ráðið ferðinni á þessu frv. og valdið því, að þetta er keyrt í gegn, þvingað í gegnum þingið núna á síðustu dögum, fram á nótt, og það séu ástæður, aðrar og jafnvel ómerkilegri. Þegar ég talaði um önnur ákvæði, þá á ég einkum við skipan húsnæðismálastjórnar og skipan stjórnar verkamannabústaða. Ég vil nú, vegna þess að það er kjarni þessa máls, geyma það þangað til í lok ræðu minnar, en víkja áður að húsnæðismálum almennt og láta í ljós óánægju mína yfir því, að ekki skuli vera lagðar fram, nú þegar loksins kemur eitthvert frv. frá hæstv. félmrh. um húsnæðismál ítarlegri eða merkilegri tillögur um lausn á húsnæðismálum eða aðrar hugmyndir en raun ber vitni.

Eins og fram hefur komið í þessum umr., þá er ekkert minnzt á það, hvernig leysa skuli fjármagnsþörf þessarar stofnunar. Þó virtist hæstv. félmrh. vera ljóst strax í haust, að við blasti mikið vandamál. Hann hefur reyndar vikið sjálfur að því hér í umr., en hann gerði það hér í ræðu sinni 23. nóv. s. l., þar sem hann vakti athygli á því, að á árinu 1970 hafi vaxtatekjur Byggingarsjóðsins numið 317.3 millj. kr., eða 26.3% af heildarráðstöfunarfé hans á því ári, og vissulega velti hann því fyrir sér með réttu, hvernig leysa skyldi fjármagnsþörf þessa sjóðs, ef lánskjörum yrði breytt, vegna þess að með afnámi vísitölubindingarinnar og breytingu á vaxtakjörum mundu hugsanlegar tekjur sjóðsins rýrna, og eitthvað þyrfti sannarlega að koma þar á móti. En að þessu er ekki vikið í frv. og þrátt fyrir fsp. frá hv. þm. hér í umr., þá hafa ekki fengizt glögg svör við því, hvernig hæstv. félmrh. hygðist leysa þennan vanda. Hann hefur einfaldlega sagt: Þegar ég tók við sjóðnum, var hann næstum því tómur. Og þetta er allt saman arfur frá viðreisninni. Hvernig ég leysi það, er annað mál. — Hann talar um, að hann sé í viðræðum við lífeyrissjóðina og óski eftir samningum við þá m. a., en allir mega þó sjá, að þrátt fyrir eitthvert hugsanlegt samkomulag við þá, leysir það ekki þá fjármagnsþörf, sem blasir við Húsnæðismálastofnuninni, Byggingarsjóðnum.

Vissulega kemur fleira til athugunar, þegar maður ræðir um húsnæðismál. en fjármagnsþörfin ein og fjárþörf sjóðsins. Húsnæðismál hafa verið til umr. áður hér á landi svo lengi sem ég man eftir. Að vísu er ég nú ekki gamall maður, en mér skilst, að um það hafi verið eilíft karp og eilífar umræður svo lengi sem elztu menn muna, hvernig leysa skyldi húsnæðismál þjóðarinnar og ráða við stöðuga verðbólgu á fasteignamarkaði. Enn fremur hafa menn haft áhyggjur af stöðugt hækkandi húsnæðiskostnaði, byggingarkostnaði, viðhaldskostnaði og sköttum á húsnæði. Menn hafa haldið því fram, að frumorsakir fyrir háum húsnæðiskostnaði hafi verið skortur á grundvallarrannsóknum og miðlun á þeim, fjármagnsmyndun og lánakerfi hafi ekki verkað örvandi á viðleitni til lækkunar. Verðbólga og skortur á verðvitund hafi stuðlað að kröfum neytenda umfram kaupgetu og ekki hvað sízt hafi skort á valmöguleika almennings til arðbærrar eignamyndunar, sem hafi stuðlað að umframfjárfestingu íbúðarhúsnæðis.

Síðast þegar gerðar voru breytingar á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins, voru þær nokkuð veigamiklar og þ. á m. voru tekin inn í þau margvísleg ákvæði um hlutverk þessarar stofnunar, hvað snertir rannsóknastarfsemi og fræðslu, skipulagsmál, tæknimál, að sjálfsögðu fjármál, félagsmál og fleira. Að mínu viti er löggjöfin um Húsnæðismálastofnunina nokkuð fullkomin. Það, sem hefur skort á, er framkvæmdin, og ég átti þess von, þó að ég að vísu hafi nú ekki allt of mikla trú á þessari ríkisstj., þá hafði ég þó átt von á því, að hún stæði við þá yfirlýsingu sína í málefnasamningnum að gera ráðstafanir til að lækka óhóflegan húsnæðiskostnað almennings, m. a. með lækkun byggingarkostnaðar, hagstæðum lánum og eins og segir afnámi vísitölubindingar húsnæðismálalána. Ég hafði sem sagt reiknað með því, að gert yrði eitthvert átak til þess að bæta úr vandamálum húsnæðismála, en það er nú öðru nær. Á þessu þingi hafa meira að segja verið lagðar fram af hálfu stjórnvalda tillögur, sem hafa orðið að lögum, sem beinlínis draga úr möguleikum fólks til þess að koma sér upp eigin húsnæði. Nú var það mjög athyglisvert hér í umr. í vetur, reyndar um önnur mál um leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga, það var mjög athyglisvert, að stjórnarsinnar ýmsir, þ. á m. hæstv. félmrh., lýstu því yfir, að þeir væru mjög eindregið hlynntir þeirri skoðun, hlynntir þeirri stefnu, að almenningur á Íslandi skyldi eignast sínar eigin íbúðir og skyldi almennt búa í eigin húsnæði. Þessari yfirlýsingu fagnaði ég, vegna þess að hún er í samræmi við mínar skoðanir, og ég tel það reyndar vera eina grundvallarforsendu þess, að virkt lýðræði sé á Íslandi, að einstaklingarnir séu efnahagslega sjálfstæðir, og stærsti þátturinn í efnahagslegu sjálfstæði er einmitt það, að fólk sé sjálfs sín ráðandi og búi í eigin íbúðum. En á sama tíma sem hæstv. félmrh. og ýmsir aðrir stjórnarsinnar lýsa þessu yfir sem skoðun sinni og stefnu, að menn skuli búa í eigin húsnæði, þá eru lagðar hér fram á þingi, eins og ég sagði áðan, ýmsar tillögur, sem stefna í þveröfuga átt, og ég vil nefna aðeins örfá dæmi máli mínu til sönnunar. Þegar skattalagafrv. voru lögð fram, þá var það einn liðurinn í þeim að byggja á og miða við breytt fasteignamat, sem leiddi til þess, að fasteignaskattar á íbúðarhúsnæði m. a. hækkuðu mjög stórlega og það voru tillögur um það hér í upphafi, það var í fyrstu frv., þá voru tillögur um það, að fasteignaskattar af íbúðarhúsnæði yrðu 1%, ef ég man rétt, og það var ekki svo lítil hækkun, þegar tekið er tillit til þess, að fasteignamatið, grundvöllur fasteignaskattanna, hafði stórkostlega hækkað. Það var nú horfið frá þessu og fasteignaskattar á eigin íbúðarhúsnæði voru lækkaðir niður í 0.5%, en síðan var gefin heimild til þess að hækka mætti og leggja á þessa fasteignaskatta upp í 0.75%, ef sveitarfélögin þörfnuðust þess, og skattafrv. voru byggð þannig upp hvað þetta snerti, eins og ég benti á í umr. hér í vetur, þau voru byggð þannig upp, að sveitarfélögin voru knúin til þess að nýta sér þessa heimild til hækkunar eða til álagningar, vegna þess að í þessum skattafrv. var tekið fram, að ef tekjustofnarnir eins og þeir lágu fyrir mundu ekki duga upp í fjárþörf eða rekstrarkostnað viðkomandi sveitarfélaga, mætti sækja um aðstoð m. a. úr jöfnunarsjóðnum, en ekki þó fyrr en þessar álagsheimildir hefðu verið nýttar, þannig að það fór ekki á milli mála, að það var mjög hvatt til þess og knúið á um það að nýta þessar álagsheimildir, en hvað sem þeim líður, þessum álagsheimildum, eru þessir fasteignaskattar vissulega ekki til þess fallnir að örva fólk til þess að eignast sínar eigin íbúðir, til þess að hvetja fólk til þess að festa kaup á eigin íbúðarhúsnæði. Sömuleiðis var fellt niður í frv. ríkisstj. það ákvæði, sem hefur verið í skattalögum til þessa tíma, að vaxtagreiðslur vegna lána, fasteignalána af húsnæði, væru frádráttarbærar frá sköttum. Þetta var fellt niður hvað snertir útsvörin, og hvað þýðir þetta? Það þýðir, að ungt fólk, sem hefur ráðizt í að byggja sér íbúðir og hefur ekki sízt gert það einmitt með tilliti til þessara frádráttarmöguleika, hefur núna enga möguleika til þess að draga vexti frá, og sést bezt og mjög ljóst, hversu þetta er veigamikið spor eða alvarlegt spor aftur á bak einmitt fyrir þennan hóp þjóðfélagsins. Ég leyfði mér við afgreiðslu á þessum skattafrv. ásamt hv. 3. þm. Sunnl. að bera fram mjög hóflega brtt., sem gekk út á það, að vextir af fasteignum væru frádráttarbærir og ekki þó, að það væri opið í alla enda, heldur var þessi brtt. bundin við það, að lánin væru tekin út á eigin íbúðir eingöngu, og líka var gerð sú takmörkun á þessari brtt. okkar, að eingöngu var um að ræða fasteignalán, þ. e. lán frá húsnæðismálastjórninni og lán frá lífeyrissjóðum, sem eru sérstaklega veitt út á fasteignir og með veðum í viðkomandi fasteign. Þessi hóflega till., sem vissulega fór ekki fram á mikið, var kolfelld hér af stjórnarsinnum, sem sýndu þar með hug sinn til hins unga fólks, sem hefði getað notað þetta ákvæði hvað bezt. Þessi afgreiðsla á þessari till. var enn eitt sporið frá þeirri stefnu, sem þó er rekin í orði, að allir eigi að búa í eigin húsnæði.

Nú í vetur hefur hæstv. ríkisstj. líka tekið ákvarðanir, sem draga úr möguleikum til þess að örva húsnæðisbyggingar og gera fólki mögulegt að eignast eigin íbúðir, og það er sú ákvörðun ríkisstj. að takmarka gjaldfrest á gjaldeyri hvað snertir innflutning byggingarvara, sem þýðir það, að innflytjendur á byggingarvörum, sem selja allar hinar almennu byggingarvörur, — það þarf ekki að nefna einstaka sjálfsagða hluti, sem þurfa að vera í íbúðum, — þessir byggingarvöruinnflytjendur hafa ekki lengur möguleika til þess að lána íbúðabyggjendum, þegar þessar vörur eru keyptar. Ef einhver ung hjón ganga inn í einhverja byggingarvöruverzlun og ætla að kaupa t. d. tæki í eldhúsið, þá þurfa þau nú að borga þetta út í hönd. Áður fyrr var hægt að fá gjaldfrest á þessu og það voru einmitt afborgunarskilmálarnir, sem hafa gert fólki kleift að ráða við slíkar byggingar, að þurfa ekki að greiða allt út samstundis, heldur að vinna hörðum höndum fyrir því og reyna að borga þetta niður smám saman. Það er sú stefna, sem hefur verið hér uppi og sú stefna, sem á að vera uppi, að hjálpa fólki til að byggja yfir sig. En þessar ráðstafanir allar stefna í þveröfuga átt.

Af því að hér er verið að ræða um húsnæðismál og ég er nú kominn hingað upp í ræðustól, þá vildi ég nota tækifærið og spjalla örlítið meira svona almennt um húsnæðismál og fitja upp á ýmsum hugmyndum, sem mér finnst alveg vera þess virði að komi til umr., þegar svo stórt og veigamikið mál er á dagskrá, hugmyndir, sem eru ekki endilega mínar og ég bara drep hér á af handahófi og ég hef fundið vera þess eðlis, að hægt væri að taka til athugunar. Það hefur t. d. verið bent á, að full ástæða væri til að rannsaka í auknum mæli notagildi byggingarefna og kynna þær niðurstöður jafnóðum, þannig að það mætti með þessum hætti bæta upplýsingaþjónustu til kynningar á nýjungum í byggingarefnum og tækni, og það er enginn vafi á því, að slíkar rannsóknir og slík upplýsingaþjónusta mundi hvetja byggjendur, bæði atvinnumenn í byggingariðnaðinum og einstaklinga, til þess að taka þessa upplýsingaþjónustu og þessar rannsóknir til athugunar og nota þær í sína þágu og það mundi áreiðanlega leiða til lækkaðs byggingarkostnaðar.

Þá hefur verið bent á, að full ástæða sé til að rannsaka skipulag í þéttbýli og í því sambandi íbúðaform við hérlendar aðstæður. Ég benti hér á það fyrr í ræðu í dag, að fyrir okkur Reykvíkinga væri frekari útþensla borgarinnar ekki sérstaklega ábatasöm og hver viðbótaríbúi hér í Reykjavík kostaði jafnvel helmingi meira en viðbót íbúa á öðrum stöðum landsins. Nú er öllum ljóst, að Reykjavík hefur þanizt út um holt og hæðir og byggð eru heil hverfi með ótrúlegum hraða, hverfi, sem sumir kalla eingöngu svefnstaði, og skipulag og arkitektúr á þessum hverfum hefur mjög verið gagnrýnt og talið, að það muni ekki þjóna nútíma félagsfræðilegum hugmyndum, hvernig þessi hverfi eru uppbyggð. Nú legg ég engan dóm á það, hvernig byggja eigi upp slík hverfi, en vissulega hlýtur það að vera eitt af stærstu verkefnum Húsnæðismálastofnunar ríkisins að taka slíkt skipulag til athugunar, bæði frá byggingarfræðilegum sjónarhóli, fjárhagslegum sjónarhóli og líka félagsfræðilegum sjónarhóli. Þetta hlýtur að vera afskaplega stórt mál sem krefst mikillar athugunar og ætti að athuga, þegar talað er um byggðastefnu hér á landi, hvort sem það heyrir undir þessa merkilegu nefnd, sem nú er búið að kjósa og á að taka til athugunar staðarval stofnana, en það breytir ekki því, að þarna er um að ræða verkefni, sem vissulega hefur verið vanrækt.

Þá hefur verið talið nauðsynlegt, að aðilar á vegum Húsnæðismálastofnunar ríkisins annars vegar og svo byggingariðnaðarins almennt hins vegar störfuðu þannig, að þeir væru hvetjandi og leiðbeinandi um nýjungar og endurbætur í byggingariðnaði. Það hefur verið bent á, að aðilar sem þessir hafi miklar skyldur, þar sem þeir hafi lykilaðstöðu til áhrifa í framfaraátt á þessum vettvangi, og það er vissulega rétt. En að mínu viti hefur mjög skort á, að nokkurt frumkvæði hafi verið sérstaklega af hálfu Húsnæðismálastofnunar ríkisins, sem ég tel að eigi að leiða í þessum efnum. Það hefur mjög skort á, að þeir hafi verið hvetjandi og leiðbeinandi um nýjungar og endurbætur í byggingariðnaði.

Þá hefur verið vakin athygli á því, að skapa þyrfti möguleika á því, að fagmenn í byggingariðnaðinum gætu endurhæft sig, og það er nú meira kannske verkefni byggingariðnaðarins sjálfs að stuðla að því, að viss endurhæfing fari fram. Það er á þessum vettvangi eins og öðrum í þjóðlífinu, að það er þörf á örum framförum, tæknibreytingum, og menn verða að hafa sig alla við, ef þeir eiga að fylgjast með þróun þeirra mála og geta tekið við öllum nýjungum og fært sér þær í nyt. En ég held, að Húsnæðismálastofnun ríkisins ætti að hafa vakandi auga með allri þeirri tækni, þeim tækninýjungum, sem eiga sér stað á vettvangi byggingariðnaðarins, og stuðla að því, að fagmenn gætu endurhæft sig svo, að þeir gætu nýtt sér þessar nýjungar.

Ég minntist hér áðan á útþenslu Reykjavíkurborgar. Ég tók hana nú sem dæmi, en það er vissulega atriði, sem þyrfti að athuga, samspil sveitarfélaga og Húsnæðismálastofnunar, vegna þess að það hlýtur auðvitað að skipta miklu máli að hafa samræmi í ákvörðunum sveitarfélaga annars vegar og Húsnæðismálastofnunar ríkisins hins vegar, þegar sveitarfélögin taka ákvörðun um það, hversu mikið fjármagn á að fara til uppbyggingar nýrra hverfa og þá nýrra byggingaframkvæmda, og svo hins vegar er Húsnæðismálastofnun að taka ákvörðun um það, hversu mikið fjármagn hún á að veita til húsnæðismálalána. Ég hef sjálfur haft persónulega reynslu af þessu, hversu óhagkvæmt og mikið ósamræmi getur oft verið í þessum aðgerðum og ákvörðun slíkra yfirvalda. (BGuðn: Hvað ætlar þú að halda lengi áfram?) Ja, ég held nú bara áfram, þangað til ég er búinn að ljúka máli mínu. (Forseti: Ekki samtal.) Nei, ekki svo lengi sem þrekið endist, því að þá þyrftum við að vera að fram á morgun. Já, ég var að minnast á samspil ríkis og sveitarfélaga og það, hversu nauðsynlegt það væri, að þar væri haldizt í hendur, og var að minnast á mína persónulegu reynslu í því sambandi vegna starfa minna hjá Reykjavíkurborg. Þar hafði ég með að gera ásamt öðrum að sjálfsögðu að undirbúa fjárhagsáætlanir hjá Reykjavíkurborg, taka ákvarðanir um það, í hvaða nýbyggingar skyldi ráðizt, og þegar ég tala um nýbyggingar, á ég við ný hverfi, undirbúning nýrra hverfa, sem felur í sér, að það þarf að leggja til fé í götur og ræsi og gera lóðir byggingarhæfar. Þessar ákvarðanir hjá Reykjavíkurborg voru teknar alveg sjálfstætt, án þess að samráð væri haft við Húsnæðismálastofnun. Það má kannske segja, að það sé sök borgaryfirvalda, en þarna á Húsnæðismálastofnun ríkisins að hafa frumkvæði og forustu í þessu samráði, sem þarna þarf að vera. Ég er ekki að halda því fram, að Húsnæðismálastofnunin eigi að segja sveitarfélögum fyrir um það, hvað þau eigi að byggja, í hvaða framkvæmdir þau eigi að ráðast, en það verður að vera samræmi í þeim ákvörðunum, sem teknar eru á þessum vettvangi. Þannig er það t. d. með Reykjavíkurborg, að ef hún tekur ákvörðun um að auka stórkostlega nýbyggingar í borginni og gera mörg hundruð lóðir byggingarhæfar, þá hlýtur það að sjálfsögðu að leiða til mjög aukinna lánsumsókna hjá Húsnæðismálastofnuninni. Þessa varð mjög vart núna eftir að við náðum okkur aftur á strik eftir efnahagsörðugleikana. Þá fylltist fólk aftur bjartsýni, — það var nú reyndar áður en þessi núverandi ríkisstj. tók við, þannig að mönnum fannst nú ágætt og gaman að lifa, þó að hún væri nú ekki tekin við stjórnartaumunum, — og bjartsýni ríkti á þessum vettvangi eins og víðar strax á vormánuðum 1969, og þá gerði borgarsjóður mikið átak til að undirbúa ný hverfi í Reykjavík. Það leiddi til þess, að stórkostlega jukust umsóknirnar hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins og það svo, að hún átti í fullum erfiðleikum með að sinna þeim umsóknum, og það er kannske ekki minnsta ástæðan fyrir því, að Byggingarsjóðurinn stendur nú höllum fæti. Samstarfs ríkis og sveitarfélags á þessu sviði er því full þörf.

Menn hafa bent á kosti útboða og þar hafa menn sett fram, að stefnt skyldi beinlínis að því, að sem flestar opinberar framkvæmdir séu boðnar út. Ég er mjög eindregið á þeirri skoðun, og ég vil minna á, að nú í vetur lagði ég fram þáltill. hér í Sþ., þar sem skorað var á ríkisstj. eða gerð till. um, að skorað yrði á ríkisstj. að breyta lögum um opinberar framkvæmdir, svo að teikningar á opinberum byggingum skyldu boðnar út.

Á þessari tillögu minni og þeirri hugmynd, að flestar opinberar framkvæmdir skuli boðnar út, er enginn eðlismunur. Það er skoðun mín, að heppilegt sé að fara þessa leið og reynslan hefur reyndar sýnt okkur það og sannað á fjölmörgum sviðum, að þegar öllu er á botninn hvolft, leiða útboð ekki aðeins til ódýrari framkvæmda, heldur líka hagkvæmari og hraðari vinnubragða og oftast nær, held ég, nema í undantekningartilfellum. betri vinnubragða.

Í þessu sambandi er vert að minnast á það átak, sem gert hefur verið hér á landi með framkvæmdanefndinni svokölluðu, því átaki sem stuðlaði að því að bæta úr húsnæðisþörf og laga kjör launþega hvað snertir húsnæðismál, og í framhaldi af því var ráðizt í hinar mjög stórfelldu framkvæmdir í Breiðholti, Breiðholtsframkvæmdirnar svokölluðu. Af þeim framkvæmdum má ýmsan lærdóm draga. Um þetta var mjög deilt hér á síðasta þingi, mönnum sýndist sitt hvað og sýnist sjálfsagt sitt hvað enn, og var þá einkum deilt um það, hvort þessar framkvæmdir hefðu verið ódýrari með því að láta framkvæma þær með þeim hætti, sem gert var, eða að snúa sér áfram til hinna einstöku byggingarframkvæmdamanna, sem fram til þessa höfðu ráðið ferðinni í byggingarmálum hér á landi. Að mínu viti leiddu þessar ráðstafanir það í ljós í fyrsta lagi, að sjálfsögðu var mikil þörf fyrir launþega að fá slíka aðstoð, það hefur ásóknin í þessar íbúðir sýnt og sannað, og þessar ákvarðanir um hagkvæmari kjör til þessa fólks hafa jafnframt sannað ágæti sitt. En þessar framkvæmdir sýndu líka, að framkvæmdir þeirra, sem höfðu staðið í byggingariðnaði, sumir hafa kallað þá braskara eða öðrum slíkum nöfnum, þessara manna, sem höfðu sætt mikilli gagnrýni fyrir eins og ég segi brask og fyrir að sprengja upp fasteignaverð, það kom í ljós, að framkvæmdir þeirra og sá byggingarmáti, sem viðhafður var af þeirra hálfu, var engu síðri en þær stórfelldu framkvæmdir, sem gerðar voru á vegum Breiðholtsáætlunarinnar, vegna þess að bæði kom í ljós, að þau hús, sem byggð voru á vegum einstaklinga, voru ekki lakari að gæðum en þau, sem byggð voru á vegum framkvæmdanefndar, og það kom líka í ljós, að þeir gátu boðið upp á íbúðir og íbúðakaup, sem voru ekki á verri kjörum heldur en framkvæmdanefnd bauð upp á. Þá er ég að undanskilja að sjálfsögðu þá sérstöku fyrirgreiðslu, sem launþegar fengu, en það, sem ég á við, er, að byggingarkostnaðurinn sjálfur var ekki meiri hjá einstaklingunum en framkvæmdanefnd, þrátt fyrir margvíslega fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera til framkvæmdanefndarinnar. Þessi reynsla okkar sýnir, að það er rangt að hverfa með öllu frá því, að einstaklingar, einstakir byggingarmeistarar eða félög á þeirra vegum byggi upp fjölbýlishús t. d. hér á landi, en hitt er annað mál að það þarf vissulega mjög að stuðla að því, að þessir menn geti haldið uppi eðlilegum rekstri og byggt með þeim hætti, að þeir þurfi ekki að búa við lakari kjör heldur en aðrir byggingaraðilar hér á landi.

Mörg atriði hafa verið nefnd til þess að veita þessum einstaklingum eða byggingarmönnum viðeigandi og réttmæta aðstoð, og þá er ég ekki að tala um neina ölmusu eða einhverja sérstaka fyrirgreiðslu, heldur bara þannig fyrirgreiðslu, að þeir geti rekið þennan atvinnurekstur með eðlilegum og heiðarlegum hætti. Og þá kemur í fyrsta lagi til fyrirgreiðsla frá Húsnæðismálastofnun ríkisins um lán til framkvæmdanna. Að vísu var ákveðið hér við síðustu breytingu húsnæðismálastofnunarlaganna að veita sérstök framkvæmdalán, en í ljós hefur komið á þeim tveimur árum, sem liðið hafa, að byggingarmeistarar hafa ekki almennt notfært sér þessi framkvæmdalán og hafa ýmis vandkvæði komið upp í því sambandi, sem ég ætla nú ekki að fara að þreyta þd. á að rekja, (Gripið fram í: Þú þreytir okkur ekkert, láttu það koma.) og þyrfti að sjálfsögðu að rannsakast miklu betur, hvers vegna. Það er svo, að byggingarmeistarar og félög þeirra taka ekki þessi framkvæmdalán í svo miklum mæli sem maður gæti haldið, að þeir mundu gera. Þá er enn fremur talað um, að það sé nauðsynlegt, að rekstrartækni í byggingariðnaðinum sé bætt, rekstrartækni m. a. þessara fyrirtækja, sem ég er að tala um, og þau gætu þá sem bezt hagnýtt sér þá sérfræðiþekkingu, sem fyrir er í þessu landi. Staðreyndin er sú því miður, að tengsl rannsóknastarfsemi og akademísks starfs eru allt of lítil við atvinnulífið, og á það hefur verið minnzt hér áður í dag, að úr því þyrfti að bæta. Það er brýn þörf, að það skapist ekki eitthvert stórt bil, gjá á milli þessara hópa í þjóðfélaginu, og það þarf að vinna svo og byggja upp löggjöfina, að hver viti af öðrum og að í svo litlu þjóðfélagi geti allir starfskraftar nýtzt sem bezt. Þess vegna minnist ég á aukna hagnýtingu á sérfræðiþekkingu í þágu byggingariðnaðarins, að þeir sérfræðingar, háskólalærðir menn, sem starfa á rannsóknastofnunum, sem starfa við Háskólann og á öðrum vettvangi, sem er ekki í neinum tengslum við byggingariðnaðinn, þyrftu að nálgast hann betur og þyrftu að nýtast betur í þágu þeirra fjölmörgu einstaklinga, sem stunda þennan atvinnurekstur.

Ein hugmynd í þessu máli, húsnæðismálunum, er kannske ofar flestum öðrum, hugmynd, sem komið hefur fram frá m. a. ráðstefnu, sem haldin var á vegum Sjálfstfl. um húsnæðismál hér fyrir 2–3 árum síðan. Hún gengur út á það, að stofnaður verði nýr flokkur spariinnlána við innlánsstofnanir, sem „veiti innlánaaðilum forgangsrétt til byggingarlána, enda verði komið á almennu verðtryggingarkerfi“, eins og segir í þessari ályktun ráðstefnunnar. Ég tel þessa hugmynd mjög athyglisverða, að veita því fólki forgang til byggingarlána, sem hefur lagt fé inn í innlánsstofnanir, lagt fé þar inn sem sparifé og það mundi þjóna því hvoru tveggja að stuðla að auknum sparnaði í þessu landi og gæti hugsanlega orðið einn liðurinn í því að draga úr verðbólgunni og svo hins vegar að veita því fólki, sem sýnir slíkt fordæmi, forgangsrétt til lánanna, þegar að því kemur, að það þurfi að fara að koma sér upp sínu eigin húsnæði.

Eitt af því, sem hefur verið mest áberandi í húsnæðisbyggingarmálum Íslendinga, er, hversu einstaklingarnir eða húsbyggjendurnir hafa tekið haldan þátt sjálfir í að byggja húsin, það hefur fólkið gert í sínum frítímum og unnið hörðum höndum að byggingu hússins, húsbóndinn og húsmóðirin, börnin, jafnvel vinir og vandamenn, og það hefur satt að segja oft sett mjög sérkennilegan og skemmtilegan blæ á þau fjölmörgu hverfi, sem hafa risið hér upp í Reykjavík á síðustu árum, að sjá hið iðandi líf um helgar og á kvöldin þessa fólks, sem þannig vinnur að sínum eigin húsbyggingum. Nú er það aftur rétt, að það er slæmt, að fólk þurfi að slíta sér út og eyða frítíma sínum í það að hýrast niðri í húsgrunnum og þræla sér kannske út með þeim afleiðingum að sitja uppi með magasár loksins þegar það kemst inn í stofuna. Enda þótt það hljóti að vera tilfinningalega afskaplega skemmtilegt fyrir fólk að geta þannig raunverulega byggt hús sín sjálft, þá er það um leið slæmt, ja, bæði heilsunnar vegna og eins líka vegna hins, að fólk nýtur að sjálfsögðu ekki á meðan annarra þátta í menningarlífi, menntalífi og öðru, sem það ella gæti notið í sínum frítímum. Um leið og ég hef ekkert í sjálfu sér á móti því, að fólk geti unnið að eigin húsbyggingum og ætti jafnvel að geta gert það þannig, að það fái þá eigin vinnu til frádráttar við skattframtal, sem er nú reyndar ekki lengur hægt, þá þyrfti að stuðla að einhvers konar hagræðingu og einhvers konar fyrirgreiðslu á þann máta, að það drægi úr þeirri óskaplegu nauðsyn, sem er á því í dag, að einstaklingarnir stundi svo mikið eigin íbúðarbyggingu. Þetta er þjóðfélagslegt vandamál vildi ég segja, sem hefur sína kosti og sína galla, sem dregur ekki úr þeirri meginstefnu, að fólkið eignist sínar eigin íbúðir, en er þó fyrir hendi engu að síður, og þyrfti vissulega að finna leiðir út úr þeim ógöngum, ef svo má að orði komast.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að lánveitingar til eldri íbúða hækki úr 50 millj. upp í 70 millj. Að vísu er þar ekki um verulega hækkun að ræða miðað við þá heildarupphæð, sem þessi byggingarsjóður lánar á ári hverju. En þetta er að vísu spor í rétta átt, og ég tel hiklaust, að það eigi stórkostlega að auka lánveitingar til eldri íbúða, það eigi að auðvelda fólki í gegnum lánakerfið að kaupa eldri íbúðir. Þetta er augljóst, þegar við lítum yfir bæi og borg hér á landi, þegar við sjáum, hvernig þróunin er, ávallt á þá leið, að bæirnir þenjast út, ný hverfi rísa á sama tíma sem eldri hús standa jafnvel auð eða á kannske með eina eða tvær manneskjur. (Forseti: Ég vil nú öðru sinni fara þess vinsamlega á leit við hv. ræðumann, að hann geri hlé á máli sínu og að frestað verði um stund umr. um þetta mál, ef hann getur á það fallizt, einkum ef hann á eitthvað að ráði eftir af ræðu sinni.) Já, já, ég er ekki farinn að sjá fyrir endann á þessum ræðuflutningi, en ég vil hafa gott samstarf við forseta. Hefur hann óskað eftir því, að ég . . .? (Forseti: Já, ég væri hv. ræðumanni þakklátur fyrir það að verða við þeim tilmælum. Þá er umr. um málið frestað og það tekið af dagskrá.) [Frh.]