18.05.1972
Neðri deild: 88. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1884 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)
255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Forseti (GilsG):
Úrskurður minn í sambandi við það, hvernig bera skuli upp brtt. á þskj. 914, er sá, að þar sem um 3. umr. máls er að ræða, fái það raunar staðizt, þótt heldur óvenjulegt sé, að bera upp brtt. við brtt., sem fjallar um aðra grein en hin fyrri brtt. fjallar um. Mun ég því bera upp fyrst brtt. á þskj. 914, frá Matthíasi Á. Mathiesen, við brtt. á þskj. 913. Það er óskað nafnakalls, og fer það fram.