18.05.1972
Efri deild: 95. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1885 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)

255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Frv. til l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins hefur nú um sinn verið til umr. í hv. Nd. og verið rætt þar mjög rækilega og ítarlega, og hygg ég, að hv. Ed.-þm. hafi nokkuð fylgzt með þeim umr. Ætti því ekki að vera mikil þörf á því að útlista málið með langri ræðu, enda mun svo ekki gert, enda efni frv. mjög auðskilið.

Efnisatriðin, sem hér er um að ræða aðallega, eru þau, að í staðinn fyrir lánveitingar með vísitölukvöð, sem ákveðin er í gildandi lögum, er lagt til í 2. gr. þessa frv., að meðaltalsársvextir fyrir allt lánstímabilið skuli aldrei vera hærri en 7.5%, og jafnast þetta þannig út á lánstímanum, sem er 25 ár. Þar með er vísitölukvöðin felld niður og sams konar vaxtakjör verða hjá öllum lántakendum, sem lán fá hjá húsnæðismálakerfinu, fyrir allt tímabilið. Þetta er ekki svo auðvelt mál, en tæknifróðir menn á þessu sviði hafa fullyrt, að með notkun tölvu sé auðvelt að jafna vöxtunum þannig út yfir allt lánstímabilið. Þeir byrja með lágri prósentutölu, 4%, eru þar með fyrir neðan meðaltalsvextina fyrri hluta lánstímans til þess að auðvelda lántakendum að bera byrðarnar framan af, en á síðari hluta lánstímans fara vextirnir jafnmikið upp fyrir 7.5%, og á öllum lánstímanum er meðaltalið 7.5%. Það er svo eins og í gildandi lögum, að veðdeild Landsbankans tekur kvartprósent fyrir afgreiðsluþjónustu sína, og verður þannig sú upphæð, sem kemur út sem vaxtagreiðsla, raunverulega 73/4%.

Í 3. gr. frv. er svo lagt til, að sú upphæð, sem samkv. gildandi lögum má verja til kaupa á eldri íbúðum og er nú 50 millj. kr., megi hækka í 70 millj., og er það í samræmi við fengna reynslu, að 50 millj. upphæðin hefur ekki dugað og ástæða þykir hins vegar til að greiða sem bezt fyrir því, að menn geti keypt nothæf eldri hús og endurbætt þau og þurfi þannig ekki í þeim tilfellum að ráðast í nýbyggingar og taka á sig þær stóru byrðar, sem því fylgja. Þetta er því betri nýting, tryggir betri nýtingu á verðmætinu, sem fyrir er í þjóðfélaginu, og hafa menn ekki gert það að ágreiningsefni.

Þó að meginefnið sé þetta að fella niður vísitölukvöðina, þá er hér í 5. gr. ákvæði, sem er um það, að ráðh. geti ákveðið hærra framlag úr ríkissjóði vegna fámenns þéttbýlisstaðar, enda framlengist þá greiðsluskylda hlutaðeigandi sveitarfélags, þangað til samanlögð framlög sveitarfélagsins eru orðin jafnhá framlögum ríkisins, þ. e. til þess að auðvelda fámennum sveitarfélögum að geta ráðizt í hagfelldan byggingaráfanga, þá er flýtt greiðslum ríkissjóðs í bili og sveitarfélaginu gefinn kostur á aftur að jafna út mótframlag sitt að jöfnu við ríkið á lengri tíma, þó að byggingarnar séu komnar. Þetta er gert vegna þess, að sá agnúi er nú á kaflanum um verkamannabústaði, að fámennt sveitarfélag getur farið svo illa út úr því, að það fái ekki eina íbúð á fjögurra ára áætlunartímabilinu, sem fyrir liggur, og í öðrum tilfellum, þar sem um nokkru fjölmennari sveitarfélög er að ræða, þá getur farið svo, að ekki sé nema um eina eða tvær íbúðir að ræða, sem hægt er að taka í áfanga, en slíkt leysir á engan hátt úr þörfinni á byggingu verkamannabústaða og væri í þeim tilfellum hagfelldara að geta hlutað þetta niður í stærri byggingaráfanga, og það er hægt með þessari tilfærslu, með þessari viðbót við 20. gr. laganna.

Ég held, að óhætt sé að segja, að sýnd hafi verið óvenjumikil tilhliðrunarsemi til þess að reyna að ná samkomulagi um þau atriði, sem menn vissu, að ágreiningur var um. Ég hafði upphaflega lagt til, að fækkað yrði í húsnæðismálastjórn um tvo menn, og taldi það alveg nægilegt til þess að tryggja starfshæfni stofnunarinnar, að stjórnin yrði fámennari. Mjög var deilt út af þessu, bæði af hv. sjálfstæðismönnum og Alþfl.-mönnum í hv. Nd., og þá var gengið til móts við þá og fallizt á óbreytta tölu í húsnæðismálastjórn, þó að ég teldi það hins vegar þarfleysu eina og stjórnin gæti eins vel og ekki síður unnið sitt verk, þó að hún væri fámennari, en ég hélt, að þetta mundi nægja til samkomulags. Þá hef ég einnig talið það vera óhóflega mikinn mannfjölda, sem til þess væri settur í gildandi löggjöf að sjá um stjórn verkamannabústaða, byggingu verkamannabústaða í hinum ýmsu sveitarfélögum, sem eru sjö aðalmenn og sjö til vara, og þarf þar nú tilnefningu 14 manna í hverju byggðarlagi til þess að lögunum sé fullnægt. Ég hafði lagt til þarna fækkun, en það reyndist líka verða deiluefni, og þá gekk ég til móts við þá, sem óánægðir voru með þetta, með því að bjóðast til þess að fella þá grein niður. Ekki náðist samkomulag þrátt fyrir þetta, og menn virtust vera því óánægðari með frv. sem ég gekk lengra til móts við þá um aðaldeiluefnið, sem þeir höfðu eytt löngum tíma í að deila um. En í þessari mynd er frv. hér komið til hv. Ed., að gengið hefur verið inn á, að tala manna sé óbreytt í húsnæðismálastjórn og sjö aðalmenn og sjö varamenn verði áfram stjórnendur verkamannabústaða í hinum einstöku byggðarlögum.

Það hefur nokkuð dregizt inn í þessar umr., að ég hafði hreyft þeim hugmyndum, þegar ég hafði framsögu fyrir málinu í hv. Nd., að ég teldi nú æskilegast, að horfið væri frá því að kjósa pólitíska stjórn yfir stofnun eins og Húsnæðismálastofnunina og æskilegast væri, að með einhverjum hætti væru tilnefndir til þess að stjórna henni menn, sem valdir væru til þess með ópólitískum hætti. Og enn fremur hafði ég látið það í ljós, að ég teldi, að óþarft væri að hafa tvær stofnanir til afgreiðslu á húsnæðismálalánum, það væri hægt að láta eina stofnun framkvæma þetta, og nefndi í því sambandi þann aðila, sem frá byrjun hefur verið afgreiðslustofnun í húsnæðismálunum, veðdeild Landsbankans, og impraði á því, að e. t. v. væri hægt að tengja afgreiðslu málanna úti um landið við hin ýmsu bankaútibú þar og færa afgreiðsluna meira út fyrir Reykjavíkursvæðið og út um byggðirnar, menn þyrftu ekki endilega að hafa sína umboðsmenn hér, heldur fengju þeir lánin afgreidd í næsta banka. En veðdeild Landsbankans væri afgreiðslustofnunin og við hana væri teiknistofa með svipuðum hætti eins og teiknistofa er í tengslum við Búnaðarbanka Íslands einmitt fyrir hinar dreifðu byggðir. Þessar hugmyndir mínar virtust fá mikinn og góðan hljómgrunn úti um landsbyggðina, en minni innan þingveggjanna, þar sem fulltrúar hinna ýmsu flokka sitja. Þeir virðast vilja einmitt, að stjórnin sé flokkspólitísk, og verður því ekki raskað, a. m. k. ekki að þessu sinni, og því óþarft um það að deila.

Ég held, að ekki sé ástæða til þess að hafa þessi orð miklu fleiri um frv. Meginbreytingarnar eru um meðaltalsársvextina í 2. gr., nánar kveðið á um það í 4. gr., þar sem þjónustuviðbót veðdeildarinnar er lögð við, hækkun um 20 millj. kr. til kaupa á eldri íbúðum samkv. 3. gr. og svo ákvæði, sem ég hygg, að ekki verði um deilt, að er til hagræðis fyrir um fámennu sveitarfélög í landinu til þess að geta tekið fyrir hagfelldari byggingaráfanga og það gert mögulegt með því að flýta greiðslum ríkissjóðs og gefa þannig sveitarfélögunum meira svigrúm til þess að leggja fram sitt framlag að íbúðunum sjálfum fengnum og þannig er í raun og veru ekki raskað hinum upphaflegu ákvæðum laganna, að framlag ríkissjóðs annars vegar og framlag sveitarfélags, þegar upp er staðið, skuli vera jöfn.

Ég legg til, herra forseti, að málinu verði að umr. lokinni vísað til hv. heilbr.- og félmn.