18.05.1972
Efri deild: 95. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1901 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég má nú víst gæta mín á því að vekja ekki nýjar umr. um málið, þegar svona seint er á ferðinni verið með það, og skal ég nú forðast það.

Það er talað um það í fyrsta lagi, að óþarft sé að vera að knýja þetta mál fram nú. Það kann að vera, að einhverjir hafi þær skoðanir, en svo mikið er víst, að verkalýðshreyfingin hefur lagt mjög þunga áherzlu á það, að því væri ekki slegið á frest að afnema vísitölukvöðina á húsnæðismálalánunum. Og þar sem allir eru nú að rannsókn lokinni orðnir sammála um það, að vísitölukvöðin leiði til óhæfilega hárra vaxta á síðari hluta lánstíma, þá ber auðvitað að verða við þeirri kröfu verkalýðshreyfingarinnar, að lánakjörunum sé breytt í skaplegt horf, þannig að þetta séu lán með tiltölulega hagstæðum vöxtum. Það er gert með þessu frv. Vísitölukvöðinni er létt af og ákveðnir meðaltalsvextir fyrir allan lánstímann, 7.5%, og við það bætist svo 1/4% þóknun til veðdeildarinnar fyrir afgreiðslustörfin. Þetta er stórkostlegt mál þó að hægt sé að orða það í stuttu máli, og þessu liggur á, en sannleikurinn er sá, að málið er flókið. Það tók fulltrúa Alþýðusambands Íslands og Seðlabankans langan tíma að kanna þetta mál hvernig það blasti við nú, og síðan voru settir menn frá Alþýðusambandinu og félmrn. til þess að gera tillögur um vaxtakjörin. Og það var heldur ekki auðhlaupið að því. Það var því hliðarmálið. Það þurfti að athuga, hvernig hægt væri að koma á sömu vaxtakjörum hjá öllum þeim sem hefðu tekið lán frá 1965, þegar vísitölukvöðin lagðist á lánin, og þessi lánakjör yrðu þau sömu og hjá þeim, sem tækju lánin nú og framvegis eftir gildistöku þessara laga. Það þóttu ófullnægjandi allar tillögur, sem komu fram um það að setja bara á fasta vexti frá gildistöku þessara laga. Og að síðustu fundu menn út, að meðaltalsársvextir yfir allan lánstímann leystu þetta. Og eftir að sú tillaga kom fram, var að því ráði hallazt, og hef ég ekki heyrt neina koma með snjallari hugmyndir um lausn á þessu vandamáli fram til þessa og þætti mér leiðinlegt, ef hv. 5. þm. Vestf. lumar á einhverju þjóðráði til lausnar á þessu. Mér þætti vænt um, ef hann kæmi fram með einhverja tillögu, sem leysti þetta betur. (Gripið fram í.) Tillagan er um meðaltalsársvexti fyrir allan lánstímann. (ÞK: Frá 1970.) Frá 1970, frá því að vísitölukvöðin byrjaði. Hv. þm. segir, að þessu liggi sem sé ekkert á. Ég tel hins vegar, að því liggi á, og er þar að verða við kröfum verkalýðshreyfingarinnar. Ég tek meira mark á því heldur en á kröfum hans.

Engin fjárútvegun er í frv. Það er alveg rétt. Það mál var ekki tekið með og á ekki að bögglast fyrir brjósti á neinum manni í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Það er ekkert um það fjallað. Og af hverju ekki? Af því að það var verið að vinna að því sérstaklega og í miðjum klíðum, þegar frv. fór í prentun og var lagt fram á Alþ. Þá var verið að vinna að lánsfjárútveguninni alveg án tillits til afgreiðslu frv. Og það er unnið að þeirri fjárútvegun. Ef ekki verður útvegað fé, þá lendir allt í vandræðum, segja hv. þm. hér. Ætli það verði ekki að sjá til, hvernig það fer, og vona, að takist að útvega fé. Það er mikið fé, sem þarf að útvega, og af hverju þarf að útvega svona mikið fé núna? Af því að fráfarandi ríkisstj. var búin að eyða öllum tekjum þessa árs til húsnæðismálakerfisins að undanskildum 50.4 millj. kr., samkv. skýrslu húsnæðismálastjórnar sjálfrar. Þess vegna þarf að útvega svona mikið fé. Væri allt það fé, sem fellur til húsnæðismálakerfisins frá ári til árs, óskert í byrjun þessa árs, væru það smámunir einir, sem þyrfti að útvega í viðbót. Húsnæðismálakerfið hefur núna í fasta tekjustofna rétt um 1 milljarð kr., rétt um 1000 millj., og lánveitingarnar hafa farið svona lítils háttar yfir það núna allra seinustu árin. Að fjárútveguninni er unnið og við verðum að vænta þess, að málið leysist.

Fyrst og fremst standa yfir viðræður og samningar við lífeyrissjóðakerfið um að lána fé, og Atvinnuleysistryggingasjóðurinn hefur gert samþykkt um að veita 60 millj. kr. á þessu ári. Þegar atvinnuleysistryggingarnar fjölluðu um málið, er mér tjáð, að stjórnin hafi sagt, að hún mundi sætta sig við 71/2% vexti af lánum til húsnæðismálakerfisins og sætta sig þannig við niðurfellingu vísitölunnar, sem var auðvitað tekjuauki fyrir Atvinnuleysistryggingasjóðinn sem lánveitanda. En ég geri nú ráð fyrir, að menn séu með hjartað á réttum stað í stjórn þess sjóðs, þannig að þeir vilji ekki taka okurvexti af húsbyggjendum í landinu, en telji sig þjóna þeim málstað bezt með því að fallast þar á hóflega og eðlilega vexti, og það hef ég fengið skilaboð um. að þessi sjóður geri. Hinn aðilinn, sem á mest af veðskuldabréfunum, er svo Byggingarsjóður ríkisins og ætti að vera nærtækara að ná samkomulagi við hann.

Menn tala um, að málið sé hér á síðustu stundu, og það er rétt. En þetta mál var lagt fram á Alþingi Íslendinga 17. apríl, og ef ekki hefði verið þvælzt og vafizt fyrir málinu, þá hefði mátt vera fyrir löngu búið að afgreiða það á Alþ. Það er rúmur mánuður síðan. Hverjir eiga sök á þessum drætti? Þeir, sem hafa beitt málþófi í báðum þd. til þess að tefja málið. (Gripið fram í: Hefur verið málþóf í þessari þd.?) Það er nú svona, ég held, að það verði að segja, að þetta hafi ekki verið stuttaraleg ræða, sem hérna var haldin áðan. Það voru alls konar bollaleggingar um sögu málsins frá ýmsum skeiðum, síðan húsnæðismálakerfið var stofnað. Það var verið að rekja sögu skyldusparnaðarins. Það var nú heldur saga. Ég játa það, að ég er upphafsmaður skyldusparnaðarins í þessu húsnæðismálakerfi. Það er ekki uppfinning íhaldsins. Íhaldið hamaðist á móti þessu og rógbar mig vel og rækilega, þegar ég setti á 6% skyldusparnað, en hækkaði síðan skyldusparnaðinn sjálft upp í 11 og síðan 15%. En unga fólkið hefur kunnað að meta skyldusparnaðinn. Það hefur fengið hærri vexti heldur en með nokkru öðru móti greidda á það fé, sem það hefur lagt fram. Féð notaðist í þjónustu íbúðarmálanna í landinu. Unga fólkið átti að sitja fyrir lánum, það átti að fá hærri lán, 25% hærri lán og fékk þannig mikil fríðindi fyrir það að leggja fram sitt fé og binda það eins og eðlilegt og rétt var. Þetta var á tímabili mikill tekjuauki fyrir húsnæðismálakerfið og hitt er launaskatturinn, og það er megintekjustofninn. Í gegnum launaskattinn hefur komið það fé, sem er meginstofninn af eigin fé sjóðsins. Og hvernig er það komið til? Það er komið til í stéttarfélagasamningum við atvinnurekendur og er í raun og veru klipið af launum verkafólksins. Þannig er það tilkomið. Það er verkalýðshreyfingin, sem hefur byggt upp húsnæðismálakerfið fyrst og fremst.

Hér var verið að gagnrýna lánstímann. Hann er 25 ár. Það má vel segja, að það sé of stuttur tími fyrir fólk til að endurgreiða byggingarkostnað dýrra og vandaðra íbúða, og væri æskilegt að dreifa greiðslum á lengri tíma. En Sjálfstfl. og Alþfl., sem stjórnuðu landinu s. l. 12 ár, gerðu ekki breytingu á þessu. Þegar verið er að gagnrýna þetta, hvað lánstíminn sé stuttur, þá eru þeir að gagnrýna sjálfa sig. Það væri mjög æskilegt að geta lengt lánstímann í 30–35 ár, helzt kannske 40 ár. En það kostar fé.

Þá minntist hv. þm. á tæknimálin, sem á að framkvæma samkv. húsnæðismálalöggjöfinni. En hvernig hefur það verið framkvæmt? Ég hugsa, að flest af því hafi verið svikið, ekki einu sinni hafðir neinir tilburðir til þess að framkvæma það. Kannske þurfi að fjölga húsnæðismálastjórnarmönnum upp í 11 eða 15 til þess að einhver litur væri sýndur á því? Nei, ef menn vilja halda sig við að ræða þetta frv. og láta það nægja, en ekki fara út í málþófstilburði, eins og rekið var tvær nætur í hv. Nd., þá er verkefni hv. d. það að taka afstöðu til, hvort auka eigi lánveitingar til eldra íbúðarhúsnæðis úr 50 millj. í 70 millj., hvort það eigi að sætta sig við breytingu á vaxtakjörunum frá því, að þau lúti vísitölukvöð og verði þannig óhóflega dýr húsbyggjendum á síðari hluta lánstíma eða, eins og lagt er til í frv., að 71/2% verði meðaltalsársvextir yfir allan lánstímann, en séu þó framkvæmdir þannig, að byrjað sé með 4%, síðan á miðjum lánstímanum verður þetta 7½% og fer á síðari hluta lánstímans jafnmikið upp fyrir meðaltalið eins og byrjað er neðantil við það. En þetta leysir þann vanda, að hægt er að fá sömu vaxtakjör á öll lán Húsnæðismálastofnunarinnar frá því að vísitölukerfið byrjaði og þangað til lánstíma lýkur á hverju láni um sig. Ef maður setti á fasta vexti, þá væru þyngst vísitöluálög komin á lánum, sem voru tekin 1965, síðan smáminnkandi þangað til þau, sem voru veitt á liðnu ári, væru 4%, og yrði það áfram, ef settir yrðu fastir vextir. En samkv. þessu er nú byrjað á þeim lánum, sem nú verða veitt eftir gildistöku þessara laga, byrjað með 4%, síðan kemur það hækkandi, þangað til komið er jafnmikið upp fyrir 7½% eins og lánin byrja með þar fyrir neðan. Þetta held ég, að sé eina færa leiðin til þess að allir sitji við sama borð gagnvart Húsnæðismálastofnuninni um vaxtakjör á lánum sínum. Að öðrum kosti yrði þetta með föstum vöxtum mismunandi frá ári til árs, og það er sannarlega ekki viðkunnanlegt hjá sömu stofnun.

Ég skal ekki hafa mál mitt miklu lengra. Hér er komin fram till. til breytinga á frv., till. um það að reyna að lífga við kerfi hins frjálsa sparnaðar. Það er virðingarvert, ef það væri hægt, en það er eins og hv. tillögumaður sagði, hv. 1. landsk. þm., það hefur ekki komið inn ein einasta króna í gegnum frjálsa sparnaðarkerfið. Nú vill hann gera þetta aðgengilegra með því, að þetta séu tekjuskatts- og útsvarsfrjáls framlög, og má vera, að einhverjir ímyndi sér, að það leysi vandann og fé streymi inn eftir að þessi breyting yrði gerð. En því miður geri ég mér mjög veikar vonir um, að það mundi verða til mikillar fjáröflunar fyrir húsnæðismálakerfið, þó að þessi breyting yrði gerð. Ég legg lítið upp úr henni. Hún er sjálfsagt af góðum vilja fram borin, en ég er ekki viss um, að hún leysi neinn vanda. Helzt hefði ég kosið, ef menn hafa ekki mjög mikla trú á því, að slík till. leysi vanda húsnæðismálakerfisins, að þeir hefðu tekið hana aftur, þegar svo stendur á eins og nú, og hefðu veitt frv. stuðning óbreyttu. En afleiðing af því, hve málið er seint hér í hv. d., á síðasta degi þings, er sú, eða e. t. v. er formlega réttara að breyta 6. gr., þar sem segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Alþingi kýs húsnæðismálastjórn þegar eftir gildistöku laganna, sbr. 1. gr., og fellur þá niður umboð núverandi húsnæðismálastjórnar.“ Það er á það bent, að Alþ. eigi að kjósa húsnæðismálastjórn þegar eftir gildistöku laganna. En strangt tekið eru lögin ekki komin í gildi fyrr en þau hafa verið staðfest af forseta og birt í Stjórnartíðindum. Hins vegar þyrfti kosning húsnæðismálastjórnarinnar að fara fram nú fyrir þinglausnir. Til þess að leiðrétta þennan formlega ágalla, ef menn vilja hengja sig í hann, þá þyrfti greinin að vera eitthvað á þá leið: Alþingi kýs húsnæðismálastjórn þegar eftir samþykkt laganna og fellur umboð núverandi húsnæðismálastjórnar niður, er lögin öðlast gildi.

Ég tel, að breytingin, sem felst í 5. gr., geti ekki orkað tvímælis, hún sé til bóta fyrir hin fámennu kauptún í landinu, sem eftir gildandi lögum geta í ýmsum tilvikum ekki fengið nema brothluta úr íbúð, jafnvel ekki heila íbúð á fjögurra ára tímabilinu. Þau kauptún eru til og þó nokkur. Þessi breyting er því tvímælalaust til bóta fyrir hin fámennu kauptún, sem mörg hver hafa mjög halda þörf fyrir að notfæra sér kafla húsnæðismálalaganna um verkamannabústaði.

Þegar skoðað er í gegnum allt moldviðrið, sem hér hefur verið þyrlað upp af hv. 5. þm. Vestf., þá held ég, að verkefnið sé ekki ýkjamikið að taka afstöðu til þessa frv., þ. e. til þriggja meginefnisþátta þess. Það er búið að koma til móts við þá, sem höfðu gagnrýnt frv. í hv. Nd., og húsnæðismálastjórnin verður að vilja þessara manna jafnfjölmenn og ákveðið er í gildandi lögum og það, sem menn höfðu hnotið um líka, verður ekki fækkað í stjórn verkamannabústaða víðs vegar úti um landið. Sú grein, sem um það fjallaði og fór fram á fækkun, hefur verið felld niður, svo að þeir ásteytingarsteinar eiga að vera í burtu. Efnisatriðin þrjú standa svo eftir og það, að kjósa eigi húsnæðismálastjórn, eftir að Alþ. hefur samþ. þetta frv. Ég verð að segja, að úr því að menn vilja endilega hafa flokkspólitíska kosningu í húsnæðismálastjórn, er ekki óeðlilegt, að sá flokkur, sem á að fara með framkvæmd þessara mála, eigi mann í húsnæðismálastjórn. Ég hygg, að svo mundi Sjálfstfl. telja, ef hann ætti að fara með þessi mál. Hann tryggði sér hins vegar með gildandi löggjöf þrjá menn í húsnæðismálastjórn. Úr því sem komið var þótti líka rétt að fallast á óbreytta tölu húsnæðismálastjórnar, svo að Alþfl. missti ekki manninn út úr stjórninni. Það var gert af tilhliðrunarsemi við hann. Ég hefði því haldið, að með þessu tvennu, að fallast á óbreytta tölu í húsnæðismálastjórninni og fallast einnig á ákvæði gildandi laga um fjöldann í stjórn verkamannabústaða, þá væru sárustu broddarnir teknir af þessu frv. og menn teldu það bæði lýðræðislega og þingræðislega rétt, að núverandi minni hl., núverandi stjórnarandstaða hefði ekki meiri hl. í þessari stjórn, heldur sætti sig við það, að þeir urðu í minni hl. í síðustu alþingiskosningum og eiga þannig ekki þingræðislegan rétt til þess að fara með meiri hl. í húsnæðismálastjórn. (Gripið fram í: Ráðh. heldur bara uppi málþófi.) Hvað heldur nú hv. þm., að ég sé búinn að tala lengi, svo lengi að hann gæti fært það undir hugtakið málþóf? Ég hygg, að ég hafi ekki talað mikið yfir 17 mínútur, eitthvað svoleiðis. En ég skal sannarlega ekki stela tíma frá hv. d., svo að þeir geti þvælt áfram í sinni málþófsstreitu. Ég skal ekki taka þátt í neinu málþófi.