20.05.1972
Neðri deild: 90. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)
255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Eyjólfur K. Jónsson:
Herra forseti. Ég kom nú hingað í púltið aðallega til þess að votta hæstv. samgrh. samúð mína. Hæstv. iðnrh. var hér rétt áðan að lýsa því yfir, að hæstv. samgrh. væri innilega sammála sér í öllum atriðum. Ég veit ekki betur en að sá ágæti maður, hæstv. samgrh., hafi verið mjög eindreginn andstæðingur svo til allra kenninga hæstv. iðnrh. frá því, að hann gerði sér grein fyrir því, hverjar væru hinar raunverulegu skoðanir þess ráðh. og flokks hans.
Hæstv. ráðh. Hannibal Valdimarsson lenti í þeirri ógæfu að verða samstarfsmaður þessara manna um alllangt skeið. Hann kynntist þeim mjög náið og þegar hann gerði sér grein fyrir eðli þess flokks og starfsaðferðum, sagði hann skilið við þann flokk og hefur ötullegast allra manna túlkað fyrir okkur, sem hér sitjum, og landslýð öllum, hvers konar flokkur það væri og hvers konar stefna það væri, sem hann fylgdi. Nú kemur hæstv. iðnrh. hér í ræðupúlt á Alþ. og lýsir yfir því, að þeir séu innilega sammála um alla hluti, þar sé eining andans og elskulegheit á alla vegu. Ég votta hæstv. samgrh. samúð mína. Ég býst ekki við, að hann fari hér á þessum stað og þessari stundu að afneita hæstv. iðnrh., en ég hygg, að hann muni gera það einhvern tíma síðar að launa honum þessa kveðju, sem honum var nú send.
Að því er varðar fréttina í Morgunblaðinu má kannske segja, að það sé tímabært, að þessi hæstv. ráðh., iðnrh. fari að gera sér grein fyrir réttri og sannri blaðamennsku. Hann hefur stundað blaðamennsku um alllangt skeið, og ég hygg, að allir geti verið sammála um það, að heiðarleika hafi ekki gætt hjá því blaði, sem hann ritstýrði, og sízt í því, sem hann sjálfur skrifaði. Að því er frétt Morgunblaðsins varðar, lýsi ég því hér og nú yfir, að hún er rétt í öllum atriðum. Það vitum við ofurvel. Það er ekki eining andans í þessari ríkisstj. Það veit hver einasti þm., að þar er hver höndin upp á móti annarri, og ég hygg næstum því, að hæstv. samgrh. muni vilja staðfesta það, að þar sé ágreiningur og hafi verið. A. m. k. er ég sannfærður um, að hann kemur ekki hér í púltið til að taka undir það, sem hæstv. iðnrh. sagði, að enginn ágreiningur væri í ríkisstj., að enginn ágreiningur væri á milli hans og hæstv. iðnrh. um eitt né neitt. Ef hann gerir það, þá er hann á ný kominn á mála hjá þeim flokki, sem hann hefur lýst svo rækilega. Hvernig er t. d. með varnarmálin, eru þeir sammála um eitt og annað í því sambandi? Er þar eining andans? (Gripið fram í: Það er nú dálítið annað heldur en . . .) Dálítið annað? Hæstv. iðnrh. lýsti því yfir, að það væri enginn ágreiningur. En ég ætla ekki að halda hér uppi málþófi. Ég endurtek það, að það, sem í þessari frétt stendur, er allt satt.