03.12.1971
Neðri deild: 21. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (194)
90. mál, fjörutíu stunda vinnuvika
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég skil það svo, að hæstv. félmrh. vilji koma þessu frv. í n., áður en þm. fara í ferðalag hér á eftir, og þess vegna get ég orðið við því að tala á undan honum. En ég hefði heldur viljað tala á eftir, ef öðruvísi hefði staðið á.
Það er nú ekki meiningin að þessu sinni að hefja hér neina stranga ræðu út af þessu frv., sem hér er til meferðar. Ég er að sjálfsögðu fylgjandi því, að vinnutíminn sé samræmdur og að hann sé sem eðlilegastur og þess vegna er ekkert óeðlilegt, þótt verkamenn og allir launþegar, sem ekki hafa enn fengið 40 stunda vinnuviku, fái það eins og aðrir starfshópar, sem hafa fengið slíka vinnuviku án lögfestingar með frjálsum samningum. Og það er vitanlega engin þörf á því að lögfesta 40 stunda vinnuviku, ef um það næst samkomulag á milli aðilanna.
Ég tel það mjög óheppilegt, að hæstv. ríkisstj. skyldi lýsa yfir því í málefnasamningi sínum, að hún ætlaði sér að lögfesta 40 stunda vinnuviku og lengingu orlofsins, — tilkynna þetta, áður en á það hafði reynt, hvort þetta næðist með frjálsu samkomulagi. Hæstv. ríkisstj. hafði í hendi sér að vinna að þessu, ef frjálst samkomulag hefði ekki fengizt. Ég tel einnig óheppilegt, að hæstv. ríkisstj. skyldi í upphafi göngu sinnar lýsa yfir því, að hún ætlaði að beita sér fyrir því, að kaupmáttur launa skyldi hækka um 20% á næstu tveimur árum,. l;g tel óheppilegt að koma með slíkar yfirlýsingar langt fram í tímann, sem engin vissa er fyrir, hvort unnt er að standa við. Ég held, að það hefði verið miklu skynsamlegra fyrir hæstv. ríkisstj. að lýsa yfir því, að hún ætlaði að beita sér fyrir því að bæta hag launþega og allra landsmanna eftir því, sem efni stæðu til og unnt væri að gera. En með því að koma með þessar yfirlýsingar um styttingu vinnuvikunnar, lengingu orlofsins og 20% kaupmáttaraukningu, þá lítur þannig út eins og hæstv. ríkisstj. hafi farið í kapphlaup við forustumenn launþeganna. Og þegar þetta liggur fyrir frá hæstv. ríkisstj. og enginn veit, hvað 20% kaupmáttaraukning þýði, hvað þurfi margra prósenta kauphækkun til þess að ná því, þá er það svo, að forustumenn launþeganna verða, þegar þeir ganga að samningaborðinu, að krefjast a.m.k. þeirra kjarabóta, sem ríkisstj. hefur boðið, og helzt meira, til þess að forustumenn launþegasamtakanna geti haldið andlitinu, eins og það er kallað, gagnvart sínu fólki. Þessar yfirlýsingar hæstv. ríkisstj. hafa áreiðanlega spillt fyrir samkomulagi milli vinnuveitenda og launþega og tafið það, að samningar hafi fengizt.
Nú er það alveg vitað, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki ætlað sér að tefja samninga eða spilla fyrir þeim. Það verður að segja, að þetta hafi verið klaufaskapur hjá hæstv. ríkisstj., en ekki að hún hafi meint illa með því.
Þetta er staðreynd, 40 stunda vinnuvíka. Það er æskilegt í tækniþróuðu þjóðfélagi, þar sem lífskjörin eiga að vera góð og geta verið góð, að vinnutíminn sé takmarkaður. En vitanlega þarf að stilla þessu í hóf.
Hv. þm., sem talaði hér áðan, talaði um, að vinnutíminn væri oft of langur, og þetta mun vera rétt undir mörgum kringumstæðum, kannske hættulega langur. En þetta frv., þótt að lögum verði, tryggir það ekki, að vinnutíminn geti ekki orðið of langur, vegna þess að fjöldi manna mun sækjast eftir því að fá eftirvinnu og mikla eftirvinnu til þess að auka tekjur sinar, ekkert síður þótt 40 stunda vinnuvika hafi verið lögfest. Ég held, að það hefði verið miklu æskilegra, að það hefði á það reynt, hvort ekki hefði verið unnt að ná frjálsu samkomulagi um 40 stunda vinnuviku og lengingu orlofsins.
Ég vil taka undir það, sem einn hv. þm. sagði hér áðan, að það er galli á þessu frv., að það nær ekki til alka landsmanna. Það nær ekki til bátasjómanna. Og hv. þm. hefði getað á það minnzt, að það nær ekki heldur til bænda. Þegar nú á að lengja orlof og stytta vinnuvikuna, þá vítanlega þarf að hugsa um það, hvernig eigi að tryggja bændum og bátasjómönnum það, að þeir verði ekki afskiptir. Við erum allir þeirrar skoðunar, að það eigi að vera sem mestur jöfnuður á meðal þjóðfélagsþegnanna og menn eigi ekki að vera afskiptir og sízt af öllu, þegar lög eru sett. Ég vil benda á, að það er nauðsynlegt að athuga það í n. í sambandi við þetta frv., hvernig eigi að tryggja það, að engar stéttir í þjóðfélaginu verði afskiptar, þegar þetta frv. verður lögfest.
Ég get ekki annað en glaðzt yfir því, að hæstv. ríkisstj. leit svo á, þegar hún tók við völdum um miðjan júlímánuð, að það væri unnt að bæta kjör almennings í þessu landi eins mikið og hún lofaði. Það lítur þannig út, að staða atvinnuveganna hafi verið sérstaklega góð og úttekt þjóðarbúsins, sem hefur farið fram, sennilega í júlíbyrjun, hafi sýnt það að áliti hæstv. ríkisstj., að óhætt væri að lofa jafnmiklum kjarabótum og ríkisstj. gerði.
Ég vil segja það, að hæstv. forsrh. hefur vitnað í þessu máli í ræðu 15. nóv. s.l. Það var, þegar hann var spurður að því, hvort hæstv. ríkisstj. hefði athugað það, hvort það hefði verið óhætt að lofa þeim kjarabótum, sem hæstv. ríkisstj. gerði. Í tilefni af því sagði hæstv. forsrh., með leyfi hæstv. forseta:
„Að sjálfsögðu var ríkisstj. búin að kynna sér þau gögn, sem lágu fyrir, og þær upplýsingar, sem hún fékk í hendur frá ýmsum aðilum, áður en hún gaf sína yfirlýsingu út. Þetta var hennar mat á þeim gögnum, sem fyrir lágu, að þannig væri hægt að standa að málum, að því markmiði, sem þar var sett fram, yrði náð.“ Og enn fremur segir hæstv. forsrh. í sömu ræðu: „Vitaskuld geta menn svo alltaf lagt mismunandi mat á gögn og upplýsingar, sem fyrir liggja, og það má vel vera, að aðrir, t.d. atvinnurekendur, hefðu viljað meta þetta á einhvern annan veg en við gerðum. En þessi stefnuyfirlýsing okkar byggðist auðvitað á því mati, sem við gerðum þá, þegar verið var að mynda stjórnina, og á grundvelli þeirra gagna og þeirra upplýsinga, sem við þá gátum aflað okkur um ástand og horfur um stöðu atvinnuveganna.“
Þetta er ágætt, að hæstv. ríkisstj. fékk slík gögn í hendur í júlímánuði s.l., sem hún taldi fært að byggja hin glæstu loforð á. Og ég verð nú að segja það, að það gæti greitt fyrir samningum og samkomulagi, ef vinnuveitendur fengju þessi gögn í hendur. En fyrir tveimur dögum höfðu þeir ekki séð þau gögn, sem loforð hæstv. ríkisstj. eru byggð á.
Við skulum vona, að allsherjarverkföllum verði afstýrt núna um helgina, og þá má segja, að það sé ástæðulaust að vera að tala um orðinn hlut. Við skulum vona það. Það vona það allir, að verkföllum verði afstýrt núna um helgina. En eigi að siður tel ég sjálfsagt, að alþm. fái þessi gögn, þessa úttekt, sem ríkisstj. hafði undir höndum um miðjan júlí s.l., því að það er fróðlegt fyrir alþm. að fá þessi gögn í hendur, enda þótt verkföllunum verði aflýst. Og ég vil ennfremur taka undir það, sem ýmsir þm. sögðu hér fyrir tveimur vikum, þegar þeir óskuðu eftír því að fá þau gögn, sem samninganefndirnar hafa frá Efnahagsstofnuninni um stöðu atvinnuveganna og stöðu þjóðarbúsins. Það er sagt, að þetta sé trúnaðarmál, en það eru þó a.m.k. 100 menn, sem eru með þessi gögn í höndunum. Og það er alveg hættulaust að láta hv. alþm. fá þessi gögn sem trúnaðarmál. Það er nauðsynlegt fyrir alþm. að fylgjast með og fá þau gögn í hendur, sem þannig er safnað og fyrir liggja, því betra eiga alþm. með það að setja sig inn í málin og taka afstöðu til málanna. Hæstv. forsrh. er hér ekki viðstaddur, en ég bið hæstv. félmrh. að koma þessu á framfæri, og ég óska eindregið eftir því, að það verði orðið við ósk minni og annarra þm., að við fáum þessi gögn í hendur, bæði frá Efnahagsstofnuninni og einnig þau gögn, sem ríkisstj. fékk um miðjan júli s.l. og byggði loforð sín á.
Ég vil svo að lokum segja það, að ég vil ekki setja fótinn fyrir þetta frv., enda þótt ég hefði talið eðlilegra að þetta væri samningamál á frjálsum grundvelli.