17.12.1971
Efri deild: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (1952)
131. mál, bann gegn veiðum með flotvörpu og botnvörpu
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt að tilhlutun nefndar, sem skipuð var til þess að endurskoða þá löggjöf, sem hér er rætt um. Efni frv. er í rauninni mjög stutt. Það er, að lagt er til að framlengja um eitt ár eða út næsta ár þær veiðiheimildir fyrir botnvörpu innan fiskveiðilandhelginnar, sem í gildi hafa verið nú um rúmlega tveggja ára skeið. Þessi nefnd, sem skipuð var fimm alþm., þeim Gils Guðmundssyni, Guðlaugi Gíslasyni, Ingvari Gíslasyni, Karvel Pálmasyni og Jóni Árm. Héðinssyni, hefur haft þetta mál til athugunar nú um nokkurt skeið og komst að þeirri niðurstöðu, að þó að almennt væri talið, að það væri nauðsynlegt að taka þær reglur, sem hér um ræðir, til endurskoðunar og breytingar í ýmsum efnum, þá væri þannig ástatt nú, að það væri ekki rétt að efna til þeirra deilna, sem óhjákvæmilega verða í sambandi við nýjar ákvarðanir um veiðileyfi innan fiskveiðilandhelginnar, og því þætti rétt að framlengja þessar veiðiheimildir óbreyttar um eins árs skeið eða fram yfir það tímabil, þegar fiskveiðilandhelgin verður stækkuð á næsta hausti, og vinna á þann hátt að því að reyna að skapa sem bezta samstöðu landsmanna um það stóra átakamál.
Ég veit, að allir hv. þm. þekkja mætavel þetta mál og það er alveg óþarft að rekja það í löngu máli. Þetta mál fékk mjög greiða afgreiðslu í Nd., og ég vona, að svo verði einnig í hv. Ed. Þar sem þetta frv. er flutt af sérstakri þingmannanefnd og samið af þingmannanefndinni, urðu menn ásáttir um það í Nd. að vísa málinu ekki til n. og greiða þannig fyrir því. Ég vænti þess, að menn geti einnig fallizt á það hér að hafa þann hátt á, en fer hins vegar ekki fram á það, að málið sé afgreitt á þessu kvöldi. Það er sjálfsagt, að 2. og 3. umr. yrðu þá ekki fyrr en á morgun, en ég vænti þess, að þetta mál fái greiða afgreiðslu hér, og legg því ekki til, að málinu verði vísað til n., heldur fái hliðstæða afgreiðslu og í Nd., og ég vænti þess, að hér geti orðið fullkomin samstaða um afgreiðslu málsins.