16.12.1971
Neðri deild: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
90. mál, fjörutíu stunda vinnuvika
Björn Pálsson:
Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. sagði þér nokkur orð. Ég hef vanalega haft ánægju af að hlusta á hann halda ræðu, þótt hann tala skynsamlega, en ég var í dálitlum vafa um það nú. Ég hef ekki heyrt það fyrr, að það hafi greitt fyrir samningunum, að þetta frv. var á ferðinni. Allir, sem ég hef talað við um þetta efni áður, hafa látið að því liggja, að það hafi verið aðalvörn vinnuveitenda, að þeir gætu ekki hækkað kaupið nema sem þessu svaraði, og gert meira úr því, hvað þetta væri mikil óbein kauphækkun, en raunverulega er. Satt að segja álit ég, að þessi vinnutímastytting sé ekki nema 5–9% kauphækkun. Ég álít, að þetta sé ekki meiri kauphækkun. En þeir töldu, að þetta væri 10–14%, þannig að ég held, að þetta hafi frekar spillt en bætt fyrir því að fá hækkað kaupið. En vera má, að það séu deildar meiningar um það.
Viðvíkjandi því, að þarna sé um vinnuvernd að ræða, þá held ég, að svo sé ekki, því að það er ekki gerð nein tilraun til að banna, að það sé unnið meira en 8 stundir. Það er því aðeins um kauphækkun að ræða, sem á að lögbjóða, óbeint. Það eru engar skorður reistar við því, að það sé unnið lengur, og þetta verður ekki nein vinnustytting nema þá í iðnaðinum, og það er ekki af því, að fólkið vilji þá vinnustyttingu, heldur vegna þess að það eru vinnuveitendurnir, sem hlífast við að láta vinna eftirvinnu og næturvinnu, og það verður því til að skaða fólkið. Íslendingar telja ekkert eftir sér að vinna, nema örfáir menn. En þeir vilja fá sem hæst kaup, og það er ekki nema eðlilegt, og það er atriði, sem ég var að benda á áðan, að ef þessar ráðstafanir hefðu ekki verið gerðar með vinnustyttinguna og lífeyrissjóðina, væri hægt að borga að skaðlausu 20% hærra kaup, og það þyrftu launþegar raunverulega að fá.
Í grg., sem var með þessu frv., var skýrt frá því, hver vinnutíminn væri í nágrannalöndum okkar. Þar búa menn yfirleitt við sómasamleg kjör á allan hátt, og vinnutíminn var alls ekki lengri hjá okkur, áður en þetta vinnustyttingarfrv. kom, og er nú orðinn styttri. Þeir eru tæknilega þróaðri en við, og við höfum nóg að gera í okkar landi. Þess vegna held ég, að það hafi ekki verið þörf á að fara niður í 37 stundir. Ég skyldi hafa greitt atkvæði með 40 stundum skilyrðislaust, því að vinnutíminn var ekki lengri, og það er hæfilegur vinnutími, átta stundir á dag, fyrir heilbrigt fólk, og það mætti gjarnan setja einhverjar skorður við því að hafa næturvinnu að óþörfu. Þótt ég telji, að það sé nauðsynlegt undir vissum kringumstæðum, þá er næturvinna óholl og leiðinleg fyrir þá, sem hana vinna. Hér er því verið að ganga inn á leið, sem ekki er hliðstæð í nágrannalöndum okkar. T.d. er eitt, sem er dálítið hættulegt í vinnulöggjöf okkar. Það er að telja það vinnu, sem ekki er annið, og þetta gera nágrannaþjóðir okkar ekki. Ég hef talað við mann, sem var í Ameríku, og hann segir, að kaffitímar séu þar alls ekki. Þeir vinna 4 stundir fyrir kl. 112, frá kl. 8–12. Þeir mega hafa kaffi með sér á geymi og drekka það við vinnuna, en þar eru ekki kaffitímar eins og hér. Það er nefnilega siðferðilega séð dálítið hæpið að reikna það vinnu, sem ekki er unnið. Það er miklu frjálslegra og ánægjulegra fyrir fólkið sjálft, að það sé ekki talið vinnutími, þegar það vinnur ekki, og það er alveg eins gott að borga fólkinu hærra kaup og reikna bara raunverulegan vinnutíma.
Það er eins hægt að finna upp á að hafa matartímann í vinnutíma. Það er betra fyrir báða, bæði þann, sem vinnur og eins vinnuveitendann, að það sé reiknaður hinn raunverulegi tími, allt í lagi þótt hann sé styttri, það er betra fyrir vinnulegt siðgæði.
Við erum þarna komnir inn á leiðir, sem eru ekki tíðkaðar í öðrum löndum, þ.e. að telja það vinnutíma, sem ekki er unnið, og lögbjóða styttri vinnutíma en nágrannaþjóðir okkar hafa. Ef þetta væri til þess, að fólkinu liði betur, þá væri allt í lagi. Þarna er verið að ákveða kauphækkun með löggjöf. Fólkið átti sannarlega skilið að fá kauphækkun, en það átti að fá hana eftir öðrum leiðum og heilbrigðari leiðum. Annars skal ég ekki gera þetta frekar að þrætumáli. Þarna eru atriði, sem ég hef bent á, sem ég tel að séu til þess að gera vinnusiðgæði okkar lakara.
Viðvíkjandi sjómönnum og húsmæðrum væri á vissan hátt meiri þörf að tala um langan vinnutíma. Húsmæður, sem ekki hafa nema húsverkin, hafa litla vinnu, en vinni þær úti allan daginn og þurfa svo að bæta heimilisverkunum á sig, þá er vinnutíminn orðinn langur. Ég hefði gaman af að sjá þessa ágætu menn skipuleggja vinnutíma sjómannanna, þannig að vel henti, bæði að hann sé ekki of langur og eins að sjómaðurinn og þjóðfélagið í heild fari atvinnulega og fjárhagslega vel út úr því. Ég held, að það sé bezt að lofa því að vera svipað og það er. Sjómennirnir telja ekki eftir sér að fiska, þegar gefur á sjóinn og vel fiskast, en þeir vilja hvíla sig og skemmta sér, þegar ekki hentar að vera á sjónum. Það fer vel á því eins og það er. Má vera, að vissa daga sé gengið of langt, menn leggi fullmikið að sér, en menn þurfa á þessum tekjum að halda, og ég er ekki viss um, að þeir yrðu sérstaklega þakklátir, ef það væri farið að lögbjóða það, hvað þeir mættu vinna margar klst. í hverri viku.
Ég er sannfærður um það, að fólkið er ekkert þakklátt fyrir þessa vinnutímastyttingu. Það vildi hærra kaup, og það var eðlilegt. Ég hef ekki heyrt það á fólkinu, og þekki þó dálítið til, að það sé þakklátt fyrir það. Ef það ætti að kjósa um það, hvort það hefði 10% hærra kaup og sama vinnutíma og það hafði, leynilegri kosningu, þá er ég sannfærður um, að það vildi heldur 10% kauphækkun og löggjafinn léti hlutlausa þessa vinnutímastyttingu. Fólkið var ekkert leitt yfir því að þurfa að vinna. Það var leitt yfir því að hafa ekki vinnu. Það taldi ekkert eftir sér að vinna. Það er ekki nema mannlegt og eðlilegt hjá öllum að vilja hafa sem mest upp úr vinnu sinni. Reynsla mín er sú, að sanngjarnast í kaupkröfum er láglaunafólkið, en ekki hálaunafólkið, og eftir því sem manninum er borgað betur og meir látið eftir honum, eftir því krefst hann meira.