22.03.1972
Efri deild: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)
41. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. til laga um breyt. á lögum nr. 72 28. maí 1969, um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, hefur verið til athugunar í hv. sjútvn., og leggur n. einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt. Lög um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins eru ekki gömul. Þau voru samþ. á Alþ., eins og fyrr segir, á árinu 1969. Svo sem kunnugt er, er hlutverk Verðjöfnunarsjóðs að jafna á milli ára verðsveiflur, sem því miður allt of oft eiga sér stað á aðalútflutningsafurðum okkar, sjávarútvegsframleiðslunni.
Öllum er enn í fersku minni sú geysilega verð- og aflasveifla, sem átti sér stað í síldveiðunum á árunum 1960 til 1965. Þá fór það saman, að jafnhliða óvenjumiklum síldarafla var útflutningsverð afurðanna einnig mjög hagstætt. Þá var oft um það rætt, hvort ekki væri rétt með tilliti til þeirrar góðu afkomu, sem sjávarútvegurinn þá bjó við, að leggja eitthvað af heildarverðmætinu til hliðar og geyma til erfiðari ára, sem reynsla fyrri ára vissulega gaf tilefni til að ætla, að enn gætu komið. Á þetta var því miður ekki hlustað þá. Það var ekki fyrr en verðfallið og aflabresturinn, sem síðan skall á, hafði enn einu sinni kennt okkur Íslendingum að skilja, að valt getur verið að treysta um of á stöðugleika verðlags og sjávaraflann. Á árunum 1967 og 1968 fór það saman, að um alvarlegan aflabrest var að ræða og jafnhliða var afurðaverðið í algjöru lágmarki. Á árinu 1969 fór svo aftur að rofa til, og þá voru, sem betur fer, sett lög um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Áhrifa þessa sjóðs, sem mun um s. l. áramót hafa numið um eitt þús. millj. kr., hefur þegar gætt á verðlag sjávaraflans. Segja má, að sá hluti, sem þegar var kominn í Verðjöfnunarsjóð vegna loðnuaflans, hafi tryggt það verð, sem talið var nauðsynlegt að fá fyrir aflann á nýlokinni loðnuvertíð. Hitt er svo annað mál, sem vissulega hlýtur að vera nokkurt umhugsunarefni fyrir okkur Íslendinga, að það skuli eiga sér stað, að í slíkri metaflavertíð, sem nú hefur verið, og með því verðlagi, sem verið hefur á afurðunum, sem engan veginn verður talið það lágt, að slíkt geti ekki átt sér stað hvenær sem er, hafi veiðarnar ekki haft fjárhagslegan grundvöll án sérstaks stuðnings frá Verðjöfnunarsjóði eins og nú hefur átt sér stað.
Eins og ég gat um áðan, mun bundið fjármagn í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins hafa verið um eitt þús. millj. kr. um s. l. áramót. Samkv. gildandi lögum er eign Verðjöfnunarsjóðs á hverjum tíma bundin í Seðlabankanum, að svo miklu leyti sem henni hefur ekki verið ráðstafað til verðbóta samkv. 6. gr. laganna. Með tilliti til þess, að allt það fjármagn, sem hér um ræðir, er afhent Seðlabankanum í erlendum gjaldeyri og verður þar sem geymslufé, þar til til þess kemur, að það verður notað svo sem lög mæla fyrir um, er það í alla staði eðlilegt, að höfuðstóll Verðjöfnunarsjóðs verði þannig tryggður, að hann sé í samræmi við skráð gengi íslenzkrar krónu á hverjum tíma og í samræmi við þetta frv., sem hér er flutt. Það var einróma samþ. í hv. Nd. og sjútvn. þessarar hv. d. mælir einnig einróma með samþykkt frv. Ég víl því leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.