05.05.1972
Neðri deild: 70. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)

111. mál, skipulagslög

Frsm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Mér er það gleðiefni að skýra frá því, að það var enginn semingur í heilbr.- og félmn. þessarar deildar við afgreiðslu þessa máls. Við erum öll einróma á þeirri skoðun, að það beri að samþykkja þetta frv., fyrst og fremst með það sjónarmið í huga, að við teljum, að með samþykkt þessa frv. sé stuðlað að því, að eigendur landssvæða sýni landi okkar þann sóma, sem það á skilið. Við teljum, að eigendur einstakra skika þessa lands séu skyldugir til að umgangast það af nærgætni og sýna fyllstu virðingu fyrir gæðum landsins, sérkennum þess og fegurð. Þetta eru þau sjónarmið, sem við fyrst og fremst höfum í huga, þegar við leggjum til einróma, að þetta mál verði samþ.