25.10.1971
Neðri deild: 5. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (2149)

17. mál, atvinnu- og þjónustufyrirtæki sveitarfélaga

Bjarni Guðnason:

Herra forseti. Ég verð að játa það, að ég er ekki fyllilega sannfærður um ágæti þessa lagafrv. af þeirri grg., sem því fylgir. Mér er mætavel ljóst, að flm. koma hér fram af áhuga á því að bæta aðstöðu sveitarfélaga til þess að reka fyrirtæki, sem oft eru nauðsynleg til að tryggja atvinnu og þjónustu í byggðarlögum þeirra.

Það eru einkanlega tvö atriði, sem ég ætla bara að varpa fram til athugunar, án þess að ég hafi verulega ígrundað þau. Með því að sveitarfélögin fái ein heimild til að reka fyrirtæki með takmarkaðri ábyrgð, þá fæli það í sér, að áhvílandi skuldir, ef fyrirtækið yrði gjaldþrota, skyllu vafalaust á lánasjóðum og ríki. Ég hygg, að það sé dálítið atriði að gera sér grein fyrir því, að með þessu er viðbúið, að stofnuð verði kannske óábyrg fyrirtæki, ef það má orða það svo, í trausti þess, að ef til vandræða kemur síðar meir, þá lendi skellurinn á lánastofnunum og ríki.

Spurningin er sú, hvort í nútímaþjóðfélagi sé ekki hægt að ætlast til þess, að ríki og bæjarfélög reki fyrirtæki, þar sem þau, ríki og bæjarfélög, beri fulla ábyrgð. Hver á að standa skil á þeim skuldum, sem kynnu að verða, ef ekki bæjarfélög og ríki? Og er þetta ekki í raun og veru framhald af því fjárhagslega ábyrgðarleysi eftirstríðsáranna í rekstri fyrirtækja, sem ríkt hefur í íslenzku þjóðfélagi og hefur kallað fram endurskoðun á hlutafélagalögunum, sem nú eru víst orðin hálfrar aldar gömul og hafa verið í endurskoðun, að mér skilst, í nokkur ár? Allir eru sammála um það, að þeim er í mörgu ábótavant, en menn geta ekki komið sér saman um, á hvern hátt eigi að bæta þau. En ég hygg, að rekstrarform fyrirtækja hér á Íslandi sé meira og minna í upplausn og glundroða og með þessu frv. yrði bætt við enn einni tegund af slíku rekstrarformi, sem gæti leitt til ýmiss konar ábyrgðarleysis, ef svo ber undir. Og ég endurtek, að ég er nú svo barnalegur í viðhorfum mínum, að ég tel, að bær og ríki eigi ávallt að standa skil á skuldbindingum sínum, þegar þau standa í því að stofna fyrirtæki. Ég vil því spyrja að því, hvort ekki væri rétt að bíða með enn eina tegund af rekstrarformi, þar til endurskoðun hlutafélagalaganna væri búin. Í öðru lagi langar mig til að spyrja flm. um það, hvort slíkt rekstrarform, eins og hér er gert ráð fyrir, tíðkist nokkurs staðar á Norðurlöndum. Ég tel það mjög mikilvægt vegna þess, að löggjöf okkar um rekstrarform fyrirtækja er að mörgu leyti sótt þangað, og mér þætti æðiforvitnilegt að vita, hvort það væri þar finnanlegt.