01.03.1972
Efri deild: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2013 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

112. mál, sala Holts í Dyrhólahreppi

Frsm. meiri hl. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins undirstrika aftur það, sem ég tel að sé aðalatriði þessa máls. Um leið vil ég segja það, að ég tel, að raunar sé óeðlilegt í alla staði, að ríkið eigi eyðijarðir í sveitum, enda undirstrikuð stefna Alþ. á undanförnum árum, og alþm. hafa litið þannig á, að það væri eðlilegt, að ef óskað væri eftir kaupum á slíkum jörðum, þá stæði ríkið ekki í vegi fyrir þeim sölum. Og ég vil benda á eitt jarðasölumál, sem ekki alls fyrir löngu var afgreitt hér á Alþ. Það var jörð í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi. Þar hagaði þannig til, að það var einmitt fólk, sem átti uppruna sinn á þeirri eyðijörð, sem óskaði eftir kaupum á jörðinni, og það var talin eðlileg ósk, var talin eðlileg afgreiðsla, að ríkið stæði ekki í vegi fyrir því, að þetta fólk eignaðist þessa jörð.

Ég get ekki skilið þær röksemdir, að um ofbeit á þessari jörð geti verið að ræða frekar, ef hún er í eigu einstaklings heldur en ríkisins, þar sem sú ofbeit ætti alveg eins að geta orðið núna með sameiginlegri notkun, þegar jörðin er í leigu. Og ég vil undirstrika, að ég tel mikilvægast í þessu máli, að það er einmitt samþykkt sveitarstjórnarinnar, sem er punktur í svona málum að mínum dómi, og ég álit, að ef sveitarstjórnir óska einróma eftir því að fá keyptar eyðijarðir í eigu ríkissjóðs innan sinnar sveitar, þá eigi Alþ. alls ekki að standa í vegi fyrir því.