24.04.1972
Neðri deild: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (2205)
112. mál, sala Holts í Dyrhólahreppi
Frsm. meiri hl. (Ágúst Þorvaldsson):
Herra forseti. Hv. frsm. minni hl., hv. 5. þm. Norðurl. v., hefur nú haldið hér langa framsöguræðu fyrir nál. sínu og komið allvíða við. Ég ætla ekki að halda langa ræðu um þetta í viðbót við það, sem ég áðan sagði, en vil þó minna á vissar staðreyndir. Hann byrjaði á því að rekja það, að umsagnir um þetta frv. frá jarðeignadeild ríkisins hafi jafnan verið neikvæðar og jafnvel frá Landnáminu, og það væri ekki venja, að þm. gerðu samþykktir, sem ekki væru í samræmi við slíkar umsagnir. Ég held, að þetta sé mesti misskilningur. Umsagna er ekki fyrst og fremst leitað til þess, að þm. séu með því að skapa sér vissa skoðun á málinu eða láta umsögnina ráða fyrir um það, hvernig þeir greiði atkv., heldur eru þeir að kynna sér ýmis atriði í málum með því að leita umsagnanna. Og umsagnir, sem berast, eru ekki nærri alltaf samhljóða. Hv. alþm. greiða atkv. eftir samvizku sinni hér á þingfundum, en ekki eftir því, hvernig einhverjir, sem hafa verið spurðir um álit á málunum, hafa lagt til, að þau yrðu afgreidd. Það er alger misskilningur, að þm. séu nokkurn hlut bundnir við umsagnir, sem berast frá ýmsum stofnunum, og jafnvel þó að þær séu ríkisstofnanir.
Þá gat hann þess, að í nýjum lögum um Landnám ríkisins sé orðin stefnubreyting, það sé horfið frá smábýlastefnu og nú sé stefnt að því að stækka býlin og auka möguleika til þess að bændur geti búið stórum búum. Ég álít, að þessi stefna sé alveg hárrétt, og er hv. frsm. algerlega sammála um þessa stefnu. Hún er rétt. Við eigum að hverfa frá mjög smáum búum. En nú stendur þannig á þarna í Mýrdalnum í þessu efni, að bóndi sá á Nikhól, sem ég hef minnzt á og er afkomandi Þorsteins Einarssonar og Jóhönnu Sæmundsdóttur, býr á smárri jörð, en býr hins vegar stórbúi af miklum dugnaði, og það byggist m. a. á því, að hann nýtur ættarjarðar sinnar Holts, meðan móðir hans er á lífi, vegna þess að hún hefur lífstíðarábúð á jörðinni. En um leið og þessi aldraða kona dæi, væri þessi réttur fyrir bí. Og þá mætti gera ráð fyrir því, að þessi dugnaðarbóndi yrði annaðhvort að draga mjög saman búskap eða hverfa algerlega frá búskap. Hreppsnefndin í Dyrhólahreppi sér þessa hættu og mælir þess vegna eindregið með því, að Jóhanna Sæmundsdóttir fái að kaupajörðina.
Það eru líka önnur rök, sem mæla mjög með í þessu máli. Þau eru ekki fjárhagslegs eðlis, þau eru hreinlega siðferðislegs eðlis. Ég get ekki annað séð en Jóhanna Sæmundsdóttir eigi fullkomlega siðferðislegan rétt á því að fá þessa ættarjörð sína keypta, þegar við hér á Alþ. samþykkjum hvert jarðasölufrv. yfirleitt um það að selja bændum jarðir, sem aldrei hafa átt nokkurt tilkall til þeirra samkv. ættartengslum eða fyrri ábúð. Þess vegna finnst mér það mikið óréttlæti að neita þessu fólki nú, að það fái að kaupa þessa jörð. Hann segir, að með sölunni yrði rekinn fleygur inn í einhverja torfu ríkisins. Þessu vil ég algerlega mótmæla. Ég veit ekki til þess, að þarna hafi nokkurn tíma verið um nokkra sérstaka torfu að ræða, sem ríkið á þar. Ríkið átti Fell og Álftagróf, sem lágu sitt hvorum megin við Holt. Holt var ekki í þessari torfu. Það var sérstök eign, þó að beitiland hafi verið óskipt eins og víða er enn í dag. Þarna eru óskipt beitilönd. Það er sjálfsagt erfitt að skipta þeim, sem oftast nær hefur nú tekizt að skipta jörðum, þegar það hefur verið reynt.
Ég veit, að þarna liggur Holt á milli tveggja ríkisjarða, en ég sé enga ástæðu til þess, að allt þetta svæði þurfi endilega að vera ríkiseign, úr því að við höfum yfirleitt haft þá stefnu, að bændur ættu að eiga jarðirnar. Hann segir, að Jóhanna Sæmundsdóttir eigi kost á leigusamningi. Hún hefur leigusamning, lífstíðarábúð á jörðinni, lífstíðarábúðarrétt á jörðinni, og ég geri ekki ráð fyrir, að hún geti átt kost á neinu öðru heldur en þessum lífstíðarábúðarsamningi eða ég veit ekki til þess.
Þá segir hv. 5. þm. Norðurl. v. um Álftagrófarmenn, að hagsmunir þeirra mundu mjög skerðast við það, ef Holt yrði selt. Þetta þykir mér alleinkennileg röksemdafærsla, þar sem þeir hafa aldrei haft nein afnot af Holti. Þeir hafa aldrei haft nein afnot af Holti, þessir ágætu menn. Þeir búa í Álftagróf og Keldudal, en til viðbótar hafa þeir svo fengið til ábúðar eða afnota höfuðbólsjörðina Fell. Og ég get ekki annað séð en þeir hafi þarna góða möguleika til þess að búa á þessum jörðum öllum, Álftagróf, Keldudal og Felli, þó að þeir fái ekki Holt einnig til viðbótar, svo að ég held ekki, að hagsmunir þeirra séu á nokkurn hátt skertir, því að þeir hafa aldrei haft afnot af þessari jörð. Ég vildi benda hv. alþm. á það, að hér er ekki um neina hagsmunaskerðingu að ræða gagnvart Álftagrófarmönnum. Þeir hafa alla sömu möguleika eftir sem áður, sem þeir hafa haft.
Ég ætla svo ekki að orðlengja frekar um þetta mál, en ég vænti þess, að hv. alþm. líti á þau rök með skilningi, sem ég hef hér flutt um þetta mál.