08.05.1972
Efri deild: 77. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2027 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)
150. mál, sala Markúsarsels, Tunguhlíðar og Veturhúsa í Geithellnahreppi
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Hreppsnefnd Geithellnahrepps hefur farið fram á það, að þm. Austurlandskjördæmis beittu sér fyrir því, að leitað yrði lagaheimildar til þess, að hreppurinn fengi að kaupa þær 3 jarðir, sem um er rætt í þessu frv. Af þessu tilefni var frv. það, sem hér er nú til 1. umr., borið fram í Nd. nokkuð snemma á þessu þingi. Efni frv. er það, að ríkisstj. skuli veitt heimild til að selja Geithellnahreppi jarðirnar Markúsarsel, Tunguhlíð og Veturhús í Geithellnahreppi í Suður-Múlasýslu. Þessar jarðir eru allar langt inn til dala og hafa lönd þeirra í reynd sameinazt afréttarlöndum hreppsins, svo að landsnytjar eru einungis til beitar að heita má.
Markúsarsel er eyðijörð innarlega í svonefndum Flugustaðadal. Jörð þessi hefur verið í eyði um 30 ár, og engin hús eru þar uppistandandi, en allmiklir sumarhagar eru þar fyrir sauðfé í landareign jarðarinnar, og auk þess á Markúsarsel veiðirétt í Hofsá, sem kann að gefa þessu býli nokkurt gildi.
Tunguhlíð er ekki mjög langt frá Markúsarseli. Það er einnig eyðijörð á mótum svonefnds Flugustaðadals og Hofsdals. Þar eru engin hús uppistandandi, en landið er sumarbeitiland fyrir sauðfé þeirra jarða, sem eru byggðar þar í grennd. Einnig fylgir þessari jörð veiðiréttur í Hofsá.
Þriðja býlið, sem hér er um fjallað, er Veturhús. Það er eyðibýli í Hamarsdal, nokkuð innarlega í dalnum, og þetta býli hefur einnig verið í eyði mjög lengi. Engin nothæf hús geta talizt vera uppistandandi á Veturhúsum.
Eins og ég tók fram, hefur hreppsnefnd hreppsins leitað eftir því að fá heimild til að kaupa þessar jarðir, svo að haga megi nytjum þeirra með því móti, sem bezt samræmist þörf hreppsbúa, eins og komizt er að orði í bréfi frá hreppsnefnd.
Landbn. Nd. sendi þetta mál til umsagnar bæði jarðeignadeild ríkisins og landnámsstjóra og í umsögn landnámsstjóra kemur það m. a. fram, að það sé skoðun landnámsins, að eigi komi til þess, að þessar 3 jarðir verði endurbyggðar sem bújarðir og þess vegna verði lönd þeirra framvegis nytjuð sem sumarhagar fyrir búfé hreppsbúa, svo sem verið hefur undanfarna áratugi. Einnig segir landnámsstjóri: „Vera má, að ár þær, sem um Hofsdal og Hamarsdal falla, búi yfir möguleikum til fiskiræktar og að hreppsnefnd þyki skynsamlegt að ná eignarhaldi á þeim af þeirri ástæðu.“ Umsögn landnámsins er því jákvæð, og hið sama er að segja um umsögn jarðeignadeildar ríkisins.
Ég legg svo til, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.