04.05.1972
Neðri deild: 69. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)

253. mál, þingsköp Alþingis

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Hér hafa tveir áhugamenn um þingsköp kvatt sér hljóðs og hvatt til þess, að þetta mál nái fram að ganga. Jafnframt hafa þeir beint þökkum til hv. allshn. fyrir hennar hlut að því að leggja fram þetta frv., eins og það liggur nú fyrir. Þessar þakkir á fyrst og fremst skilið 1. þm. Norðurl. e., frsm. þessa máls, því að hann hefur haft veg og vanda af að útbúa þetta frv. eins og það liggur fyrir.

Ég geri ekki ráð fyrir því, að það sé við hæfi nýrra manna hér á þingi að leggja mörg orð í belg. Þingsköp eða fundarsköp hér á þessum vettvangi eins og annars staðar taka mið af vissum starfsvenjum og vissri þróun í gangi funda, og því er eðlilegt, að þeir, sem lengur hafa setið hér, séu dómbærari um það en þeir, sem nýir eru, hvernig með þessi mál skuli fara. Ég ætla því ekki að flytja hér langt mál um þetta frv. Ég á sæti í hv. allshn. og á því þátt í því að leggja þetta mál fyrir hér. Mér er hins vegar engin launung á því, að ég hefði haldið, að gera þyrfti miklu róttækari og meiri breytingar á þingsköpum en fram kemur í þessu frv. Mér hefur hins vegar skilizt, að áhugi manna beinist að því að koma mjög nauðsynlegum breytingum fram, en láta róttækari lagfæringar bíða og koma þeim á framfæri smám saman. Þess vegna er áhugi á að afgreiða þetta mál, eins og að liggur fyrir í aðalatriðum nú.

Ég hefði haldið t.d., að eitt stærsta málið, þegar gerðar væru breytingar á þingsköpum Alþ., væri, hvort ekki væri rétt að breyta Alþ. í eina málstofu, en til þess þarf að sjálfsögðu meiri breytingar en breytingar á þingsköpunum einum; það er stjórnarskrármál. En vitaskuld þyrfti sú n., sem hefur með þetta að gera, að taka einmitt slík atriði til gaumgæfilegrar athugunar, þegar breytingar eru einmitt á annað borð á dagskrá.

Frsm. lýsti eftir till. við þessa umræðu, og ég vildi því ekki láta hjá líða að ítreka það, sem ég hef sagt hér fyrr í vetur um skoðun mína á fundarsókn hv. þm. við umræður í þessari d. sem og í Ed. og Sþ Mér finnst mjög á skorta, að menn sæki fundi hér með sómasamlegum hætti, og hefði haldið, að hægt væri að setja inn í þingsköpin einhver ákvæði . . . (Gripið fram f: Það er í þingsköpum.) Já, það er í þingsköpum í 33. gr. ákvæði, sem segir, með leyfi forseta: „Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi, nema nauðsyn banni.“ En ég hef ekki séð, að þessu ákvæði hafi verið fylgt í raun, og þá hafa það a. m. k. varla getað verið mjög ríkar nauðsynjar, sem hafa bannað mönnum að sækja fundi hér upp til hópa, þegar ekki nema kannske 4–5 menn sitja undir umræðum langtímum saman. Þetta skal ég ekki orðlengja frekar. Þetta er sem sé skoðun mín, og ég hefði haldið, að hægt væri að knýja betur á og kveða rækilegar á um þetta í þingsköpum Alþ. Það kæmi t. d. vel til greina, að þingfundir yrðu alls ekki settir, nema hér væri tilskilinn fjöldi manna saman kominn, og að menn sæju sóma sinn í því að tilkynna forföll, ef þeir þurfa að fara frá á miðjum fundum.

Það, sem ég hafði hins vegar ætlað að koma hér gagngert á framfæri varðandi brtt., var, að í 5. gr. frv., sem fjallar um nefndaskipan, er gert ráð fyrir því, að fjölgað sé um eina n., þ. e. að þeim störfum, sem hingað til hafa heyrt undir heilbr.- og félmn., verði skipt, annars vegar látin heyra undir félmn. og hins vegar undir svokallaða heilbr.- og trygginganefnd, sem þá teldist ný n. Þetta tel ég til bóta. Hins vegar er gert ráð fyrir því, að áfram haldist að sjálfsögðu þær n., sem fjalla um aðalatvinnuvegina, landbúnað, sjávarútveg og iðnað, og enn fremur er sérstök n., sem fjallar um samgöngumál. Í þessu hefur að mínu viti gleymzt að taka til greina einn mjög stóran þátt í atvinnulífinu í þessu landi, sem er orðinn ríkur í öllum störfum og umsvifum þjóðfélagsins, en þar á ég við verzlun og viðskipti. Og ég get vel trúað því, að full ástæða sé til að skipa sérstaka n., sem fjallar um verzlunar- og viðskiptamál. og áskil mér rétt til að flytja brtt. þess efnis síðar í þessari umræðu. En hvað snertir nefndastörf, sem eru vissulega mjög stór þáttur í störfum Alþ., þá er ég þeirrar skoðunar, að það þurfi að gera þeirra veg meiri í þingsköpunum.

Nú vita allir, sem hafa kynnzt störfum Alþ., að fundir hér í deildunum sjálfum eru kannske ekki það, sem skiptir öllu máli. Mjög veigamikil störf fara fram annars staðar og þá ekki sízt í þingflokkunum og í n. Hins vegar hefur mér sýnzt, að þessar n. hafi í störfum sínum verið hornrekur bæði hvað tíma og vinnu snertir, og stafar það bæði af því, að þm. hafa einfaldlega ekki haft tíma og aðstöðu til þess að sinna nefndastörfum sem skyldi, og eins af því, að þróun mála er með þeim hætti, sem raun er á. (Gripið fram í.) Um það skal hv. þm. spyrja aðra þm. en mig. Ég þykist hafa sótt fundi hér með sæmilegum hætti svo og sinnt nefndastörfum. Þessu er ekki beint til eins eða neins sérstaklega og ekki sagt í neinum ásökunartón, heldur af því tilefni, að það er einmitt orðið mikið umhugsunarefni víða í þingræðislöndum, hvernig hagað er störfum og aðstöðu þjóðþinga. Með vaxandi tækni fer sú tilhneiging vaxandi að beina öllum störfum og undirbúningi til sérfræðinga, til sérfróðra manna bæði í opinberum embættum og öðrum stöðum. Vegna þessa fara möguleikar þingmanna á því að kynna sér mál til hlítar sífellt minnkandi, og þeir standa jafnvel máttvana gagnvart flóknum málum og tillögum, sem eru settar fram af sérfræðingum, þannig að þeir eiga ekki annarra kosta völ en einfaldlega að samþykkja þær tillögur og þá framsetningu, sem koma frá sérfræðingum og embættismönnum. Því hefði ég haldið, að það ætti að auka hlut n. þannig, að þær hefðu betri aðstöðu til þess að setja sig inn í mál og auka þannig völd þeirra og alla aðstöðu, án þess að ég geti endilega útskýrt það.

Sú þróun, sem á sér stað í nútímaþjóðfélagi, hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þjóðþing okkar eins og þing annarra þjóða. Þar hafa menn leitt hugann að því að efla vald n. til þess að kalla til sín aðila og rannsaka mál. hafa frumkvæði og auka allan aðbúnað fyrir þessar n. til að kynna sér og setja sig betur inn í mál en nú er. Þessari hugmynd og þessu atriði vildi ég koma á framfæri, því að ég held, að það sé vissulega þörf fyrir að taka það til íhugunar hér á hinu háa Alþ. sem annars staðar í þingræðislöndum.