10.02.1972
Neðri deild: 40. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2058 í B-deild Alþingistíðinda. (2344)

145. mál, iðnfræðsla

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Með frv. þessu er lagt til, að sú breyting verði gerð á lögum um iðnfræðslu, að aftan við 21. gr. þeirra laga komi ný mgr., svo hljóðandi um það efnisatriði þessa máls:

„Er námssamningur kemur til staðfestingar hjá iðnfulltrúa, skal hann taka ákveðið gjald af báðum samningsaðilum, er greiðist Iðnnemasambandi Íslands. Gjald iðnfyrirtækis eða iðnmeistara skal vera 1% af fyrsta árs lágmarkslaunum iðnnema í viðkomandi iðngrein, eins og það er hverju sinni, en gjald nemans 1/2% af sömu upphæð. Greiðist það í eitt skipti fyrir öll.“

Iðnnemasamband Íslands hefur í auknum mæli orðið fulltrúi iðnnemanna í þeirra málum og þá einkum og sérstaklega í öllu, er varðar framkvæmd iðnfræðslulöggjafarinnar. Það munu víst allir vera nokkurn veginn sammála um það, að ýmislegt hafi á skort um framkvæmd þeirrar löggjafar og margt hefur þar verið að breytast, og Iðnnemasambandið hefur því haft þar aukin afskipti, og Alþ. hefur fyrir nokkrum árum viðurkennt rétt sambandsins á þessu sviði, sérstaklega með því, að fulltrúi þess á nú sæti í iðnfræðsluráði.

Ég ætla ekki að fara að rekja þetta mál neitt sérstaklega nánar. 1. flm. þess, Sigurður Magnússon, sem átti sæti hér á Alþ. fyrir jólin, er gagnkunnugur þessum málum, hefur nokkur ár starfað í Iðnnemasambandinu og var forseti þess um árabil. Frv. er samið af honum og grg., og ég vil vísa til hennar um annað varðandi þetta mál, en ég vil hins vegar taka það fram, að hér er ekki verið að fara fram á stórar álögur á iðnfyrirtæki eða iðnmeistara. Það er talið, að miðað við núgildandi kaupgjald muni þetta vera nálægt 800 kr., sem iðnmeistarar eða fyrirtæki greiddu vegna hvers iðnnema. Í þessu sambandi má einnig geta þess, að með þeim breytingum, sem nú er fyrirhugað að gerðar verði á persónusköttum, falla niður tryggingagjöldin, sem iðnmeistarar hafa greitt vegna iðnnemanna, þannig að ekki yrði nú sagt, að löggjafarvaldið væri að íþyngja þeim með gjöldum, þó að þetta gjald yrði tekið upp, sem er miklu lægra en þau persónugjöld, sem meistararnir hafa orðið að greiða fram til þessa vegna iðnnemanna.

Eins og ég sagði, er 1. flm. þessum málum gagnkunnugur. Þess er getið í grg. frv., að málið hefur verið rætt við Iðnnemasambandið og stjórn þess hefur lýst sig því fylgjandi. Það mætti e. t. v. segja, að annan hátt væri hægt að hafa á fjáröflun til þessara samtaka, og víst er það þannig nú og gæti verið, en á það skal þó bent, að iðnnemar eru tiltölulega skamman tíma í þessum samtökum. Þar er um stöðuga endurnýjun að ræða, nokkuð undir hælinn lagt um starfskrafta, og félög iðnnema verða þess vegna af eðlilegum ástæðum ekki starfshæf á sama hátt og t. d. verkalýðsfélögin eða iðnsveinafélögin, þar sem menn eru félagsmenn að sjálfsögðu til miklu lengri tíma. Það hefur verið erfiðleikum bundið að halda uppi starfsemi í hinum einstöku félögum. Þau geta blómstrað ágætlega tímabundið, en síðan dalar starf þeirra oft og tíðum, þegar forustumenn, sem verið hafa, hverfa úr félögunum, en það eru einmitt félögin, sem eru undirstaða Iðnnemasambandsins, og af þessum sökum er býsna erfitt að halda uppi innheimtu og öðru slíku til starfsemi sambandsins. En ef farið væri inn á þessa braut, sem ég tel mjög ákjósanlega, þá greiða iðnnemarnir á sama hátt og meistarinn sín gjöld og ætti þá fjárhagur þessa sambands að vera mun tryggari.

Eins og ég sagði, þá vil ég að öðru leyti vísa til grg. með frv. og legg svo til, að að umr. lokinni verði málinu vísað til 2. umr. og hv. iðnn.