17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (2357)

145. mál, iðnfræðsla

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur haft frv. þetta til athugunar og mælir með samþykkt þess óbreytts eins og það kemur frá hv. Nd., en þar voru gerðar á frv. töluverðar breytingar.

Tveir nm., hv. þm. Geir Hallgrímsson og Þorv. Garðar Kristjánsson, skrifa undir nál. með fyrirvara.