13.05.1972
Efri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (2369)
273. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., fjallar um staðarmörk sveitarfélaga, þannig að með þau afréttarsvæði, sem þegar eru ekki talin heyra undir staðarmörk sveitarfélags, verði þannig farið, að þau gangi til þess sveitarfélags eða undir stjórn þess sveitarfélags, sem þar á eða hefur átt eignar- og afnotarétt. Eins og getið var um, þegar þetta mál var flutt hér á dögunum, eru ákvæði í lögum um það, að ríkið allt skuli skiptast í sveitarfélög, en af einhverjum ástæðum hefur það dregizt nokkuð að skipa ýmsum afréttarsvæðum undir sveitarfélög og því er með þessu frv. stofnað til þess, að úr verði bætt. Í frv. segir, að ef fleiri en eitt sveitarfélag eiga aðild að slíku landi (afréttarsvæði) og ekki er samkomulag um, hverju sveitarfélagi það skuli tilheyra, þá skuli sýslunefnd skera úr. Síðan megi skjóta úrskurði hennar, ef sýnist, til félmrn.
Þetta frv. var sent til umsagnar Sambandi íslenzkra sveitarfélaga og er umsögn sambandsins jákvæð, en það óskar þó eftir einni breytingu á frv. Hún er á þá leið, að sýslunefnd verði ekki látin skera úr, heldur félmrn., og þessi aths., sem sambandið hefur gert, stafar af því, að nú þegar munu einhver átök vera um afréttarsvæði milli hrepps og kaupstaðar og af því tilefni hefur sambandið óskað eftir því, að þessi breyting yrði gerð á frv., en að öðru leyti, eins og ég hef sagt, mælir sambandið með samþykkt frv. með þessari breytingu, og heilbr.- og félmn. hefur samþykkt að gera þessa breytingu á frv. og er hennar getið í nál. Að öðru leyti hefur nú einróma fallizt á að mæla með samþykkt frv.