27.10.1971
Neðri deild: 6. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2383)
25. mál, siglingalög
Flm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Á þskj. 25 hef ég leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á siglingalögum, ásamt hv. 10. þm. Reykv. Shlj. frv. var flutt á síðasta þingi. Að lokinni 1. umr. var því vísað til hv. sjútvn., en lengra komst málið ekki að því sinni. Nú er það endurflutt og fylgir því shlj. grg. og í fyrra.
Að dómi flm. og fjölmargra annarra, sem að þessum efnum hyggja, eru meginrök málsins þau, að sjómenn, sem verða fyrir slysum við störf sín, njóti ekki nægjanlegrar réttarverndar samkv. gildandi skaðabótareglum. Á þetta atriði hefur oft og iðulega verið bent. Það hefur verið ofarlega á baugi hjá sjómönnum og samtökum þeirra. Um það hafa margar ályktanir verið gerðar. Reglur um fébótaábyrgð á þessu sviði er að finna í siglingalögum nr. 66 frá 1963, sbr. lög nr. 14 frá 1968. Samkv. þeim ákvæðum er fébótaábyrgð útgerðar á kröfum út af lífs- eða líkamstjóni skipverja eða annarra, sem í þágu skips vinna, háð því, að útgerðarmaður eigi sjálfur sök á tjóninu, þ. e. sé valdur að því af ásetningi eða gáleysi eða kenna megi um yfirsjónum eða vanrækslu vissra starfsmanna hans. Hér er m. ö. o. um svokallaða „subjektíva“ skaðabótaábyrgð að ræða.
Ég ætla ekki að fara að taka þingheim í tíma í skaðabótarétti, enda ekki sérfræðingur á því sviði né heldur í tryggingafræði, sem hér kemur mjög til álita. Reglur um þetta efni eru og að nokkru raktar í grg. Meginmáli skiptir, hversu þær reynast í framkvæmd. Þar er um mörg dæmi að velja. Margir dómar eru til, sem snerta þetta málefni, bæði héraðs- og hæstaréttardómar. Í mörgum tilvikum fá sjómenn að sjálfsögðu bætur ákveðnar með dómi. En hin málin eru einnig mörg, sem fara á annan veg. Ég vel einn dóm til skýringar, til að bregða upp stuttri svipmynd, og vitna í registur hæstaréttardóma frá 1965. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Togari var hinn 5. jan. 1960 að veiðum út af Vestfjörðum. Um kl. 20.30 var stjórnborðspoki dreginn inn. S. háseti var við gilsinn og stóð við þilfarsvinduna bakborðsmegin. Er pokanum hafði verið lyft sem skyldi, hugðist S. slaka á gilsinum. Slóst þá bragð af gilsvírnum um fætur honum. Kipptist S. við það á loft og fram í fiskkassa með þeim afleiðingum, að hann fótbrotnaði. Eigi var leitt í ljós, að slysið yrði rakið til vanbúnaðar skips, handvammar skipverja né annarrar áhættu, er eigandi togarans bar ábyrgð á. Var honum því dæmd sýkna af kröfum S. um bætur.“
Í þessu máli hlaut hinn slasaði sjómaður engar bætur. Þarna voru t. d. engir sjónarvottar, hálka á þilfari af olíu og fiskúrgangi ekki talin meiri en gerist og gengur, sjór ekki svo ókyrr, að ógætilegt gæti talizt að láta menn vera við slík störf. Umrætt slys var flokkað undir óhappatilviljun. Dómkrafan nam um 450 þús. kr., en bætur fengust engar, eins og áður segir. Hvað tóku málaferli þessi langan tíma? Slysið varð í jan. 1960. Dómur sjó- og verzlunardóms Reykjavíkur gekk í jan. 1963. Dómur hæstaréttar féll í febr. 1965. Það er ljóst, að auknum tryggingum fylgja aukin útgjöld. Iðgjöld sjómannatrygginga hvíla þegar þungt á útgerðinni. Sjómenn njóta, að sjálfsögðu sem aðrir slysabóta almannatrygginga. Samningsbundnar viðbótartryggingar tíðkast í ýmsum samböndum. Hvað sem því líður, skortir mikið á nægilegt öryggi sjómanna í þessum efnum að mati flm.
Frv. þetta stefnir að því marki, að lögfest verði „objektiv“, hlutlæg fébótaábyrgð á þessu sviði. Öðlast hinn slasaði þá bótarétt án tillits til þess, með hvaða hætti tjónið hefur að höndum borið, nema hann sé meðvaldur þess eða meðábyrgur. Með hliðsjón af þessu er frvgr. orðuð af dr. juris Þórði Eyjólfssyni fyrrv. hæstaréttardómara. Að sjálfsögðu þarf að skoða þetta mál vel og meta þá hagsmuni, sem í húfi eru af allra hálfu. Og svo sannarlega ætti hin nýríka, íslenzka þjóð ekki að telja eftir að verja ögn af fé sínu og tíma sérfræðinga sinna á hraðfleygri stund til að skoða þetta mál, sem svo mjög snertir hag og heill íslenzkra sjómanna.
Ég legg svo til. að máli þessu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.