18.10.1971
Sameinað þing: 3. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2122 í B-deild Alþingistíðinda. (2451)

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég tel raunar alveg ástæðulaust, að samstarfsflokkarnir í ríkisstj. lýsi yfir sérstaklega úr ræðustóli á Alþ., að við styðjum þá ríkisstj., sem við erum þátttakendur í, en það skal ekki fara á milli mála, að Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru aðili að þessari ríkisstj. og styðja þann merka stjórnarsáttmála, sem okkur tókst á liðnu sumri að gera. Ég vitna til stjórnarsáttmálans. Forsrh. las hann upp, birti hann fyrir hv. Alþ, og túlkaði hann á sérhvern þann hátt, sem ég get undirstrikað og tileinkað mér og mínum flokki. Ég vil aðeins vona það, að sú merka stefna, sem mótuð er með stjórnarsáttmálanum, fái glæsilega framkvæmd af núv. ríkisstj. og mun leggja mig fram um það fyrir hönd flokks míns og flokkur minn mun þar ekki liggja á liði sínu.

Ég fer ekkert efnislega út í þær umr., sem hér hafa farið fram, tel, að ef umr. hefði verið hagað á þann hátt að fresta þeim, þá hefði gefizt ærið tilefni til þess, vegna þess, sem fram hefur komið af hendi stjórnarandstöðunnar, en tel, að næg tilefni muni þá gefast til þess síðar. Ég fagna því, að stjórnarandstöðuflokkarnir báðir hafa lýst því yfir, að þeir í mesta örlagamáli ríkisstj., landhelgismálinu, muni láta markmið málsins ráða afstöðu sinni og ekki gera aukaatriði að ágreiningsefni. Það eitt vil ég segja efnislega um málið á þessu stigi. Ég tel, að hér sé mörkuð þjóðarstefna, sem eigi að sameina alla stjórnmálaflokkana á Íslandi um framkvæmd þeirrar stefnu, svo að enginn af andstæðingum okkar úti í heimi geti sagt, að íslenzka þjóðin sé sjálfri sér sundurþykk um það mál. Það er örlagaglíma okkar og það ríður á því, að við stöndum saman um það mál.