12.05.1972
Sameinað þing: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)
Almennar stjórnmálaumræður
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Nú eru liðnir 10 mánuðir síðan núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum á Íslandi. Þótt segja megi að sá tími sé ekki langur fyrir eina ríkisstj. til að sýna þjóðinni, hvað hún ætlar sér að gera og hvernig, þá er hann nægilega langur til að hægt sé að meta gerðir hennar og afleiðingar ýmissa verka og það með fullri sanngirni. Bæði er það, að ítarlegur málefnasamningur var gerður milli stjórnarflokkanna, og því auðvelt að bera saman fyrirheit og efndir, svo og hitt, að ýmislegt hefur stjórnin gert, sem ekki stendur í málefnasamningnum, en allir hafa þó orðið áþreifanlega varir við. Ég mun, á þeim stutta tíma, sem ég hef hér til umráða, ræða nokkuð þær breytingar, sem orðið hafa hér á landi síðan hæstv. ríkisstj. tók við völdum, þær breytingar, sem beinlínis hafa orðið, ýmist vegna stefnu stjórnarinnar eða stefnuleysis. Ætlun stjórnarinnar var að tryggja 20% kaupmáttaraukningu á tveimur árum auk ýmissa annarra kjarabóta. Þetta átti að gera með því að halda verðbólgunni í skefjum, hækka laun alls almennings í landinu, draga úr sköttum, a. m. k. á sumum borgurum, eða a. m. k. ekki hækka þá. Í mesta lagi átti að verða einhver tilfærsla, þannig að hin títtnefndu breiðu bök skyldu nú loks greiða sinn hlut. Allt hljómaði þetta vel, svo vel, að flestir þeir, sem greiddu núv. stjórnarflokkum atkv. í síðustu kosningum, trúðu því, að við þessi fyrirheit yrði staðið. En hverjar hafa orðið efndirnar og hverjar eru orsakirnar fyrir því, að svo hefur farið, sem allir sjá nú? Aldrei hefur verðbólgan vaxið hraðar en á síðustu mánuðum. Skýringin er sú, að bókstaflega allar gerðir stjórnarinnar allt frá fyrstu dögum hennar til þessa í efnahagsmálum og fjármálum yfirleitt eru verðbólgumyndandi. Vissulega hækkuðu laun fjölmargra stétta við gerð kjarasamninga í des. s. l. En hver heldur því fram í dag, að með því hafi verið stigið skref til að auka kaupmátt launa? Nær því daglega verða hækkanir á vörum og þjónustu.
Fyrir nokkru var dreift til þm. svörum við fsp. eins hv. þm. um, hverjar verðhækkanir hefðu orðið frá því að kjarasamningar voru gerðir. Þetta rit er upp á hvorki meira né minna en 12 síður, fróðlegt, en ekki að sama skapi skemmtilegt aflestrar. Það hefur að geyma helztu ákvarðanir verðlagsnefndar frá 4. des. til 24. marz, helztu ákvarðanir rn. frá des. til aprílmánaðar og verðákvarðanir sexmannanefndar frá 4. des. til aprílmánaðar. Og frá því í aprílmánuði til þessa dags hafa ýmsar verðhækkanir orðið, sem allur almenningur finnur fyrir. Vísitala framfærslukostnaðar hækkaði um 1.3 stig tímabilið nóv. 1971 til febr. 1972. Á sama tíma hækkaði kaupgreiðsluvísitalan um 0.92 stig. Þetta plagg, sem ég vitnaði hér til, er sönnunargagn um ráðleysi stjórnarinnar og vanmátt hennar í því að ráða nokkuð við efnahagsmál yfirleitt. Er nema von, að menn spyrji, hvað hér sé raunverulega að gerast. Öllum almenningi er nú orðið ljóst, að fyrrv. ríkisstj. verður ekki kennt um það, sem er að gerast á árinu 1972. Í dag eru það aðrir, sem ráða ferðinni, og árangurinn er þessi, þrátt fyrir eitt hið mesta góðæri, sem hér hefur komið. Um gerðir ríkisstj. í skattamálum get ég verið stuttorður. Mönnum eru í fersku minni þær umr., sem um þau mál urðu í vetur, auk þess er svo skammt til þess tíma, að hver einasti gjaldandi fær sönnun, sem ekki verður vefengd, um þá skefjalausu skattheimtu, sem vinstri stjórnum einum er svo lagið að beita. Og þið megið muna það, góðir hlustendur, að það verða mátulegir skattar, sem þið fáið að dómi hæstv. menntmrh. Hin nýju skattalög munu hafa í för með sér þyngingu skattbyrðar hjá öllum þorra gjaldenda. Einstaklingarnir hafa minni ráðstöfunarrétt á tekjum sínum eftir en áður, og skattgreiðslur atvinnurekstrarins aukast um 25%. Tekjur sveitarfélaga eru stórlega skertar. Afleiðing alls þessa er aukið miðstjórnarvald, öllu á að stjórna frá ríkinu, allt skal lúta vilja ríkisstj. Samtímis því að mönnum verður þessi staðreynd ljós geta menn svo blaðað í stjórnarsáttmálanum. Þar er talað fjálglega um dreifingu valdsins, samráð skuli haft við samtök launþega, við samtök sveitarfélaga og yfirleitt alla, sem einhverra hagsmuna eiga að gæta. Þannig á, eða átti, að dreifa valdinu.
Hv. þm. Jóhann Hafstein hefur hér þegar rakið, hverjar hafa orðið efndirnar að þessu leyti. Hin alvitra ríkisstj. hefur ekki haft nein samráð við þessi samtök. Hún hefur valdið og notar það út í æsar. Var við nokkru öðru að búast? Þetta er stjórn sósíalista og menn vita ósköp vel, að hverju slíkar stjórnir keppa. Það skiptir ekki máli, hvað sett er á blað sem stefna stjórnarinnar, ef það brýtur í bága við hina raunverulegu hugsjón. Ég veit að vísu ekki fremur en ýmsir aðrir, hverjar eru hugsjónir Framsfl. og stefna hans, en það liggur alveg ljóst fyrir um hina flokkana. Ef ekki er verið að framkvæma hér stefnu Framsfl., þá er a. m. k. enginn vafi á því, hver hefur húsbóndavaldið í stjórninni. Það heyrðum við líka hér áðan á máli hæstv. iðnrh., þegar hann var að gefa yfirlýsingar um utanríkismál. En það liggur líka ljóst fyrir, að verið er að framkvæma stefnu, sem er í hrópandi andstöðu við vilja mikils meiri hluta þjóðarinnar. Íslendingar vilja halda frelsi sínu. Frelsi til athafna, frelsi til að ráða málum sínum, gegnum sín samtök út um hinar dreifðu byggðir þessa lands, frelsi til að ráðstafa aflafé sínu, og þeir vilja þjóð sína frjálsa. Þetta frelsi er verið að skerða. En þeir, sem kusu núv. stjórnarflokka, hafa ekki við neinn að sakast nema sjálfa sig. Þeir hafa látið blekkjast af fagurgala, en þeir muna það vonandi í næstu kosningum. Þær kunna að verða fyrr en 1975. Að vísu er stór hópur manna, sem kaus Framsfl. síðast og taldi sig vera að stuðla að öðru en að leiða kommúnista til valda á Íslandi. Þeim hefur áreiðanlega ekki verið ljóst, hversu mjög aðþrengdir þm. flokksins voru orðnir. Hjá þeim gilti það eitt að komast til valda. Sennilega er það rétt, sem einn valdamikill framsóknarmaður sagði við mig fyrir nokkru, að eitt væru þm. flokksins sammála um og það væri að sitja sem fastast. Það er því ekki að undra, þótt hæstv. forsrh. segi, að það sé gaman að vera Íslendingur í dag. Þetta gera kommúnistar sér alveg ljóst, og því munu þeir hér eftir sem hingað til gera nákvæmlega það, sem þeim sýnist, a. m. k. í þeim málaflokkum, sem þeir ráða beint yfir. Og þetta er orsökin fyrir því, að gerðir ríkisstj. eru ekki alltaf í samræmi við málefnasamninginn. En hvaða málaflokkar eru þetta, sem kommúnistar ráða? Þeir ráða yfir heilbr.- og tryggingamálum, orkumálum, viðskiptamálum og öllum atvinnumálum þjóðarinnar nema landbúnaðarmálum, sem eru nokkurs konar hjáverk fjmrh., eins og glöggt kemur fram á frv. því um landbúnaðarmál, sem lagt hefur verið fram á Alþ. Þeir hafa fram til þessa ráðið furðu miklu um utanríkismál, þótt utanrrh. sé ekki úr þeirra flokki. Afleiðingarnar af valdi kommúnista í stjórninni eru þegar farnar að koma í ljós og þær eiga eftir að segja til sín frekar. En enn þá finnast menn, sem búast við einhverju öðru frá þessum mönnum. Enn þá finnast menn, sem trúa því, að Alþb. reki einhverja sér-íslenzka stefnu. Þarf virkilega að bíða þess tíma, að atvinnureksturinn komist í hendur ríkisins, frjáls viðskipti tilheyri fortíðinni og landið verði komið undir járnhæl heimskommúnismans, til þess að augu manna opnist? Þau umskipti, sem eru nú að verða í íslenzku þjóðfélagi, gerast ekki fyrir neinar stökkbreytingar. Þau eru gerð með lævísi, eitt er sagt en annað er framkvæmt. Menn finna ekki fyrir þessu fyrst í stað, alveg eins og hæstv. forsrh. sagði hér áðan, en þeir finna þeim mun meira fyrir því síðar. Það er talað um að dreifa valdinu, meðan miðstjórnarvaldið er aukið. Það er talað um persónufrelsi, meðan unnið er að skerðingu þess. Það er talað um, að nú skuli rekin sjálfstæð utanríkisstefna, meðan unnið er að því leynt og ljóst að koma landinu undir áhrifavald kommúnismans með því að gera það varnarlaust. Og hvert verður þá frelsi einstaklingsins? Svo talar hæstv. forsrh. um, að aldrei hafi ríkt meiri bjartsýni á Íslandi en nú. Vinveittum þjóðum er storkað með glæfralegri utanríkispólitík og viðskiptasamböndum okkar stefnt í hættu, allt undir kjörorðinu „sjálfstæð utanríkisstefna“. Það eru engir kotkarlar við völd á Íslandi í dag. Og þeir hafa um sig hirð vaskra ungmenna, sem eru reiðubúin að sýna utanrrh. Bandaríkjanna, að við séum sko engar undirlægjur lengur. Og við höfum hér í þingsölum menn, sem með klökkum rómi tala um það, að einn stúdent hafi slasazt vestur í Bandaríkjunum í óeirðum, sem urðu þar fyrir nokkrum dögum, er verið var að mótmæla hinu villimannlega stríði í Víetnam, en þeir sömu menn kippa sér ekkert upp við það, þótt þrif, lögreglumenn uppi á Íslandi verði fyrir meiðslum, þegar þeir eru að verja utanrrh. sinn og utanrrh. Bandaríkjanna fyrir siðlausum lýð við Árnagarð. Þetta er það, sem er að gerast á Íslandi í dag. Það eru þessi óþrif, sem við þurfum að hrista af okkur, ef við ætlum að búa sem frjáls þjóð í frjálsu landi. Þetta verða mín lokaorð í þessum umr. — Góða nótt.