12.05.1972
Sameinað þing: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2236 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
Almennar stjórnmálaumræður
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Formaður Alþfl., dr. Gylfi Þ. Gíslason, var að ljúka máli sínu. Hann var bæði sár og reiður eftir þá hirtingu, mér liggur við að segja flengingu, sem Magnús Kjartansson, iðnrh., veitti honum og öðrum viðreisnarráðherrum í ræðu sinni á föstudaginn var. Ég skil þessi sárindi Gylfa Þ. Gíslasonar. Ég finn til með honum. Óneitanlega hefði verið ánægjulegra, að hann bæri sig ögn karlmannlegar en hann gerði, þótt hann kenndi vissulega til.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason var hneykslaður niður í tær í ræðu sinni hér áðan yfir gerðum núv. ríkisstj. Það var nú heldur betur á málum haldið, fannst hv. þm., meðan hann fékk að toga í stjórnartaumana fyrir náð og undir leiðsögn Sjálfstfl. Einhverjum hlustendum kann að hafa fundizt það kynlegt, hve ádeila Alþfl.-foringjans var nauðalík málflutningi talsmanna Sjálfstfl., t. a. m. Ingólfs Jónssonar. En okkur, sem fylgzt höfum með þingstörfum í vetur, kemur slíkt ekki á óvart. Hér í gamla daga lék það orð á, að þessi hv. þm., dr. Gylfi Þ. Gíslason, væri stundum fljótur að skipta um skoðun. Hafi svo verið, þá er það löngu liðin tíð. Nú er það sýnt, að dr. Gylfi ætlar að verða sú Bergþóra, sem ung var gefin sjálfstæðis-Njáli og hyggst láta eitt yfir bæði ganga.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason og aðrir stjórnarandstæðingar finna núv. ríkisstj. að vísu margt til foráttu, en þó má segja, að þeir gagnrýni hana einkum fyrir eftirtalin atriði: Ógætilega stefnu í utanríkismálum, of há fjárlög og of miklar opinberar framkvæmdir, of lítið viðnám gegn hækkuðu verðlagi og sem afleiðingu af öllu hinu síðar talda háskalega verðbólguþróun.
Um hina breyttu stefnu í utanríkismálum vil ég aðeins segja þetta: Þar hafa verið stigin nokkur fyrstu skrefin, en að vísu mikilvæg skref á braut sjálfstæðrar og óháðrar utanríkisstefnu í stað þeirrar hörmungar, sem löngum einkenndi meðferð þessara mála áður og helzt verður lýst með orðum, sem naumast þykja þinghæf. Að hinum atriðunum skal ég víkja nokkru nánar.
Það er rétt og fyrir því gerir ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar sér fulla grein, að í þjóðfélaginu ríkir mikil spenna, mikil eftirspurn eftir fjármagni og vinnuafli til margvíslegra framkvæmda. Hér er um að ræða rökrétta afleiðingu góðs árferðis, bjartsýni og þeirra kappsmuna að gera sem mest á sem skemmstum tíma. Vitanlega er ekki hægt að gera allt í senn og vel má vera, að okkur hætti til að flýta okkur helzt til mikið. En ég veit, að enda þótt reynt verði að koma til móts við framkvæmdahug manna og framfaraþrá, svo sem kostur er, hefur ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar fullan skilning á því, að hér má ekki fara lengra en á fremsta hlunn. Og í ljósi þessa má vissulega hlýða á aðvörunarorð stjórnarandstöðunnar, þau, sem af heilindum kunna að vera sögð, ef dæmi finnast þar um. En það eru ekki heilindi, heldur eitthvað allt annað, þegar núverandi stjórnarandstaða þykist furðu lostin yfir því, að fjárlög í ár eru til muna hærri að krónutölu en fjárlögin í fyrra. Þá er m. a. slegið striki yfir það, að með samningum við opinbera starfsmenn, með breytingum á tryggingalöggjöf og fleiri ráðstöfunum fyrrv. ríkisstj., voru ríkissjóði bundnir nýir baggar, svo að nam mörgum hundruðum millj., jafnvel milljörðum. Og dr. Gylfi Þ. Gíslason, formaður Alþfl., sem nú talar mjög um það, m. a. í ræðu sinni hér áðan, hve gildandi fjárlög séu há, hve spennan sé mikil, hann flutti ekki svo að ég muni eina einustu brtt. til lækkunar við þessi háu fjárlög. En hækkunartillögur flutti þessi hv. þm. og þær námu 500 millj. kr. eða þar um bil. Alþfl. er að vísu ekki stór flokkur nú á dögum. En svo stórtækur er formaður hans, að hefðu allir samflokksmennirnir verið jafn athafnasamir um tillöguflutning við afgreiðslu fjárlaga, hefðu fjárlögin hækkað um þrjá milljarða.
Sjálfstæðismenn ýmsir og dr. Gylfi Þ. Gíslason deila mjög á ríkisstj. fyrir of háa framkvæmdaáætlun ríkisins á þessu ári, þ. e. of mikla fjáröflun til uppbyggingar skipaflotans, til endurnýjunar hraðfrystihúsa og sláturhúsa, til raforkuframkvæmda, til flugvallagerðar og vegamála. Þegar þessir herramenn eru spurðir, hverjar þessara framkvæmda eigi að bíða, vefst þeim nokkuð tunga um tönn. Að hinu hníga orðræður þeirra gjarnan, hvers þessi eða hin opinbera framkvæmdin eigi að gjalda að vera sett hjá og þurfa að bíða.
Ekki alls fyrir löngu var ég að fletta Alþýðublaðinu, málgagni dr. Gylfa Þ. Gíslasonar og eign Alþýðuflokksins að hans eigin sögn. Nú er blaðinu að vísu ekki mikill gaumur gefandi, þar sem það hefur orðið fyrir því háskalega slysi að detta úr þeirri tröppu réttsýni og heiðarleika, sem Mánudagsblaðið og Ný vikutíðindi hafa þó lengi staðið á. Þetta eintak blaðsins var átakanlegt dæmi um vinnubrögð núv. stjórnarandstöðu, þegar þau gerast hvað lökust. Ég renndi augum yfir tvær greinar, sína á hvorri síðu. Í fyrri greininni var farið hinum hörðustu orðum um gegndarlausa verðbólgupólitík ríkisstj. og allt of mikinn fjáraustur til hvers kyns opinberra framkvæmda á ofþenslutímum. Kjarni hinnar greinarinnar var fúkyrðaaustur um ríkisstj. fyrir allt of litlar fjárveitingar til raforkumála, til húsnæðismála og fleiri stórra málaflokka. Þetta er eitt dæmi af mörgum um samræmið í málflutningi stjórnarandstöðunnar. Þar rekur sig eitt á annars horn. Þar eru á ferðinni menn, sem fyrir ofstækis sakir sjá aðeins myrkur um miðjan dag, þegar allt venjulegt fólk fagnar sumri og sól og væntir góðs árferðis og góðrar afkomu.
Ég vil fara hér fáeinum orðum um stjórnarandstöðu Sjálfstfl., sem er sérkennileg um margt. Sá flokkur hefur lengi verið stærsti stjórnmálaflokkur landsins og því áhrifamikill, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Þessi flokkur var í andstöðu við vinstri stjórnina 1956–1958, svo sem margir muna, og rak þá ábyrgðarlausari pólitík en dæmi eru til á Íslandi fyrr og síðar. Ljóst er, að uppi hafa verið innan flokksins háværar kröfur um að leika sama leikinn nú, neyta allra bragða til að koma stjórninni frá sem allra fyrst, hvað sem það kostaði þjóðina. En nú hafa hinir varkárari menn og ábyrgari tekið í taumana og reynt að draga úr heiftinni og ofstækinu. Þeim hefur tekizt þetta með köflum og svo hefur ævintýrapólitíkin hins vegar náð yfirhöndinni á ný. Fyrir bragðið er nú naumast heil brú í stjórnarandstöðu Sjálfstfl. Ýmist er hún máttlítið nöldur eða innantómur hávaði og gusugangur, eins og hlustendur hafa heyrt vel hér í kvöld.
Á einu sviði virðist hin harða stjórnarandstaða Sjálfstfl. ætla að bera nokkurn árangur. Á sama tíma og sjálfstæðisforkólfarnir gera hróp að ríkisstj. fyrir að hafa ekki megnað að stöðva verðhækkanir, neyta þeir að því er virðist næstum hvers tækifæris til að knýja fram verðhækkanir, sem vitanlega auka þensluna og verðbólguna. Það er ólmast út af of háum sköttum á sama tíma og sjálfstæðismenn í stjórn Reykjavíkur ákveða að innheimta fasteignaskatt með 50% álagi og útsvör með hæsta leyfilegu álagi til þess á þenslutímum að auka framkvæmdafé borgarinnar um helming.
Það er deilt fast á ríkisstj. fyrir verðlagshækkanir. Eins og sýnt hefur verið fram á hér í kvöld, bæði af Lúðvík Jósepssyni viðskrh. og fleirum, er verulegur hluti þeirra hækkana leifar frá fyrri ríkisstj., og það fullyrði ég, að miklu fastar hefur verið staðið gegn verðhækkunum nú en nokkrar líkur eru til að gert hafi verið af ríkisstj. Jóhanns Hafstein og Gylfa Þ. Gíslasonar. Margoft hefur ríkisstj. staðið gegn kröfum um verðhækkanir eða aðeins leyft brot þeirra hækkana, sem fram á hefur verið farið. Þannig hefur farið um kröfur borgarstjórnaríhaldsins um ýmsar hækkanir. Slíkan niðurskurð á hækkunarkröfum hafa sjálfstæðismenn síðan talið alveg forkastanlegan og jafnvel kallað aðför að Reykjavík. En í hinu orðinu hafa þeir gert hróp að ríkisstj. fyrir að leyfa of miklar verðhækkanir almennt.
Þessum útvarpsumræðum frá Alþ. er nú að ljúka. Að síðustu vil ég segja þetta: Ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar hefur verið 10 mánuði við völd. Það er ekki langur tími. Óhrekjanlegt er, að ríkisstj. hefur verið athafnasöm og komið ótrúlega miklu í verk. Margt er og í undirbúningi. Hefur þetta komið glögglega fram hér í umr., og því verður ekki hnekkt. Það er bláköld staðreynd. Engum fylgismanni núv. ríkisstj. dylst, að við ýmis vandamál verður að glíma á komandi mánuðum og misserum. Sum þessara vandamála eru beinlínis sprottin af þeirri bjartsýni og þeim framkvæmdahug, sem hvarvetna ríkir, þar sem allra flestir vilja gera sem allra mest á sem allra skemmstum tíma. Ég er þess fullviss, að núv. ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar munu ótrauðir takast á við viðfangsefnin og leysa þau til hagsbóta fyrir það fólk, sem treystir þessari ríkisstj., sem treystir stjórnarflokkunum, og til eflingar íslenzkri þjóð, að hún megi lifa frjáls í landi sínu. — Góða nótt.