15.11.1971
Neðri deild: 13. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
Launa og kaupgjaldsmál
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. sérstaklega fyrir þau ummæli hans, sem hann viðhafði, þar sem hann sagði áðan, að það lægi í augum uppi, að skrifstofu- og verzlunarfólk hlyti á hverjum tíma að taka mið af því, sem ætti sér stað um launakjör hjá opinberum starfsmönnum. Þetta er verðmætur stuðningur við kjarabaráttu skrifstofu- og verzlunarfólks, og þau samtök eiga því yfirleitt ekki að venjast, að svo mikilsverður stuðningur sé veittur þeim í þeirra kjarabaráttu. Sér í lagi kemur þetta sér vel nú, þegar annað hljóð er í ýmsum öðrum strokk, eins og t. d. það, að maður les nú á síðum stjórnarblaðanna, eins og Þjóðviljans, þar sem að því er vikið, að verzlunarfólk hyggist nú, eða ýmislegt bendi til þess, að verzlunarfólk hyggist nú reka sina kjarabaráttu með öðrum hætti en það hefur tíðkað á undanförnum árum og af því að samtök þeirra og félög afla sér verkfallsheimildar, sem og önnur félög innan Alþýðusambands Íslands gera sem óðast, þá þurfi það að benda til þess, að nú eigi sú barátta að fara fram með einhverjum óábyrgari hætti en verið hefur. Ég dreg enga dul á það, að ég, sem hef átt að heita í fyrirsvari fyrir samtök skrifstofu- og verzlunarfólks, hef verið þeirrar skoðunar, að höfuðáherzlu bæri að leggja á kjarabætur án verkfalla, og þessi skoðun mín er óbreytt, þannig að umfram allt verði að leggja. á það áherzlu að leysa hin mikilvægu samningamál án þess að dragi til vinnustöðvana, sem haft hafa oft og tíðum óbætanlegt tjón í för með sér.
Hæstv. forsrh. sá ástæðu til þess að leiðrétta það, sem hann vildi telja missögn Morgunblaðsins af sínum ummælum, og kann vel að vera, að allt það, sem hann sagði um það efni, sé satt og rétt. Og hann vísar mönnum til málefnasamnings ríkisstj. til þess að ganga úr skugga um, hvaða stefnu ríkisstj. í raun og veru hefur varðandi samningamálin í heild. Og þá langar mig til þess að varpa fram þeirri spurningu, hvort álit hv. þm. Eðvarðs Sigurðssonar, sem því miður er ekki viðstaddur nú, var rétt, sem kom fram í viðtali við hann í Þjóðviljanum skömmu eftir að kröfur verkalýðshreyfingarinnar höfðu verið birtar. En þar sagði hann, — og það leiðréttist þá síðar, ef ég fer ekki rétt með, en mig minnir fastlega, að hans orðalag hafi verið það, — að kröfur verkalýðshreyfingarinnar væru bókstaflega samansettar eftir stjórnarsáttmálanum. Og síðar kom fram, að hann sagði, að það mætti ekki með neinni sanngirni telja, að kröfur verkalýðshreyfingarinnar næmu nema sem svaraði um 37% kauphækkunum. Það leiðréttist, ef ég fer ekki nákvæmlega rétt með það, sem fram kom í viðtali Þjóðviljans við Eðvarð Sigurðsson.
Nú vil ég spyrja: Er þetta rétt álit hjá hv. þm. Eðvarð Sigurðssyni, að út úr stjórnarsáttmálanum megi lesa þetta og að þess vegna hafi verkalýðshreyfingin haft til þess rétt að setja þetta fram, a. m. k. þeir, sem telja sig vera bundna af stjórnarsáttmálanum? Þessi ummæli hv. þm. Eðvarðs Sigurðssonar hafa ekki neins staðar verið leiðrétt. Hæstv. forsrh. sagði, að slík mistúlkun, eins og hann vildi álíta, að Morgunblaðið hefði haft á orðum sínum, gæti haft alvarlegar afleiðingar í svo viðkvæmu máli. Það er mikið rétt, að ef um mistúlkun sjálfs hæstv. forsrh. er að tefla á ummælum sem þessum, þá getur það vissulega haft mjög alvarlegar afleiðingar. En ég hygg nú, að ýmis áhrif, sem hæstv. ríkisstj. hefur haft á gang samningaviðræðna, verði að teljast að mörgu leyti miður heppileg. Og ég vil spyrja einnig: Hafði ríkisstj. gert sér grein fyrir því, hvað fólst í styttingu vinnuvikunnar um 4 klst., þegar hún setti fram þennan dæmalausa, sem ég vil nefna, stjórnarsamning sinn? Er það rétt, að þetta þýði í kauphækkun 14.8% fyrir fiskiðnaðinn í landinu, og 14.2% fyrir allan iðnað í landinu? Eðvarð Sigurðsson, hv. þm., las út úr stjórnarsáttmálanum 37% kjarabætur, og hann fullyrti: Eftir því voru okkar kjarakröfur saman settar og þess vegna fram lagðar með þeim hætti, sem raun ber vitni.