15.11.1971
Neðri deild: 13. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)
Launa og kaupgjaldsmál
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Það hefur í dag borið hér til tíðinda, að hæstv. forsrh. hefur séð ástæðu til þess að kveðja sér hljóðs utan dagskrár vegna ummæla í útbreiddasta dagblaði landsins, sem birtist þar fyrir þremur dögum. Nú er það svo, að hæstv. ráðh. og raunar ríkisstj. á mjög greiðan aðgang að þeim fjölmiðlum þessa lands, sem ná til enn fleiri en jafnvel þetta ágæta blað, en þó sér hann ástæðu til þess að taka hér til máls utan dagskrár til að bera fram leiðréttingu á því, sem hann hefur talið, að þar hafi verið ranglega með farið. Hæstv. forsrh. las fyrirsögn þessarar greinar, eins og hún birtist í Morgunblaðinu, og var, að því er virtist, allsár yfir, að hún skyldi aðeins greina í fáum orðum frá einu atriði af því, sem til umr. hafði verið og hann hafði rætt á fundi í Félagi ungra framsóknarmanna. Nú er það ekki vani að prenta í fyrirsögn útdrátt eða meginefni heilla ræðna á fundum, heldur verða menn að lesa greinarnar í gegn til að átta sig á, hvað raunverulega hefur verið sagt. Ég veit að hæstv. forsrh. er önnum kafinn maður og lái honum það ekki og skil það ósköp vel, en mér hefði fundizt viðkunnanlegra, að áður en hann tók til máls og flutti sína ræðu hér utan dagskrár á Alþ., hefði hann lesið greinina í Morgunblaðinu alveg til enda, því að ég sé ekki af því, sem hæstv. forsrh. sagði hér, né heldur af viðtali við hann í Tímanum í gær, að þar sé svo réttu máli hallað sem hann vill vera láta. Ég vil leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa niðurlag greinarinnar í Morgunblaðinu, og tek fram þó áður, að hæstv. forsrh. lagði á það höfuðáherzlu, að fölsunin í grein Morgunblaðsins væri fólgin í því, að hann hefði sagt, að 5–7% kauphækkun nægði, en það væri látið í það skína, að 5–7% kauphækkun í eitt skipti fyrir öll á þessu tímabili væri látin nægja. Þetta er misskilningur. Framhaldið af greininni er að vísu inn í blaðinu, og ég veit, að það kemur oft fyrir, að fólk les byrjunina á greininni og leitar svo ekki að framhaldinu inni í blaðinu, en niðurlagið er svona, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir fyrst í frásögn af ræðu Kristjáns Friðrikssonar:
„Hann taldi mjög varhugavert að hækka kaupgjald um of, en viðurkenndi nauðsyn launahækkunar til handa þeim lægst launuðu og skaut fram svona 5–7% kauphækkun á ári. Ólafur Jóhannesson ítrekaði fyrri ummæli sín og sagði, að kaupmáttaraukningunni mætti m. a. ná með skattabreytingum, með hækkun almannatrygginga og styttingu vinnutíma, en þetta yrði að gerast í áföngum. Tók hann undir orð Kristjáns og taldi, að fyrrgreindar aðgerðir auk svipaðrar kauphækkunar og Kristján legði til ættu að duga til þess að ná marki ríkisstj.“
Þar lýkur Morgunblaðsgreininni. Nú vil ég leyfa mér að lesa kafla úr viðtali við hæstv. forsrh. á forsíðu Tímans í gær. Fyrirsögnin er: „Morgunblaðið falsar ummæli forsrh.“ Í þessu viðtali er m. a. haft eftir forsrh.:
„Kristján Friðriksson taldi 5–7% kauphækkun á ári hóflega“, en það þýðir, eins og hæstv. forsrh. sagði hér áðan, 10–14% á tveimur árum, — og tilvitnunin heldur áfram: „Aðgerðir ríkisstj. í skattamálum og tryggingamálum gætu svo vel þýtt 5–7% kaupmáttaraukningu fyrir lægst launuðu stéttirnar. Það var því ekki óeðlilegt, að ég benti á, að Kristján væri mjög að nálgast það, sem ríkisstj. vildi, að fram næði að ganga í kjaramálum, því að hún hefur lofað að beita sér fyrir því, að kaupmáttur láglaunafólks verði aukinn í áföngum um 20% á tveimur árum.“
Ég get ekki séð, hvað það raunverulega er, sem þarna ber á milli. Í grein Morgunblaðsins sagði, að forsrh. hefði sagt, að þetta yrði að gerast í áföngum, og hann hefði tekið fram, að það væru ýmsar aðrar ráðstafanir, sem kæmu til greina en bein kauphækkun, og það stendur líka hér. Ég sé ekki, um hvaða fölsun er hér að ræða, sem veldur því, að hæstv. forsrh. tekur til máls utan dagskrár á Alþ. út af þessu máli.