15.11.1971
Neðri deild: 13. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (2527)
Launa og kaupgjaldsmál
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Hér hefur hafizt umræða um missagnir blaða og viðleitni þeirra til þess að koma því orði á ríkisstj., að hún torveldaði og drægi á langinn samkomulagsmöguleika milli aðilanna á vinnumarkaðinum. Í viðbót við það ranghermi, sem var grundvöllur þessara umr., ranghermi Morgunblaðsins út af ummælum hæstv. forsrh., sem hann hefur nú algjörlega borið til baka sem staðlausa stafi, þá tel ég rétt að gera að umræðuefni í örfáum orðum annað mishermi tveggja blaða um afskiptaleysi ríkisstj. og svík á stjórnarsáttmálanum í sambandi við launamálin.
Ég hef séð, bæði í dagblaðinu Vísi og Alþýðublaðinu, að þau hafa haldið því fram, að verkalýðshreyfingin mundi vera búin að hljóta efndir af einhverri annarri ríkisstj. en þeirri, sem nú situr, varðandi lagasetningu um styttingu vinnuvíkunnar og lengingu orlofsins. Ég treysti því, að bæði þessi blöð vilji heldur hafa það, sem sannara reynist, og vil því skýra frá, hvernig á þessum tveimur málsatriðum var tekið af félmrn.
Það var auðvitað ekkert auðveldara fyrir félmrn. en að setja strax fram lagafrv. um styttingu vinnuvikunnar úr 44 stundum í 40 stundir og lengingu orlofsins úr þremur vikum í fjórar. En ég hafði ekki þann hátt á, því að ég vildi með engu móti stuðla að því, að deilur spynnust út af málsmeðferðinni, svo að ég kallaði á minn fund þegar í stað fulltrúa Alþýðusambandsins, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna og sagði, að ég vildi gjarnan haga málsmeðferð þannig, að lausn þessara málsatriða félli sem bezt að samningaviðræðum þeirra, því að hér væri vissulega um kjaraatriði að ræða. Þessu tóku þeir vel og mættu til fundar, og það var sammæli þeirra allra, fulltrúa Alþýðusambandsins, Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambandsins, að þeir teldu réttast, að skipuð væri nefnd, sem fjallaði um þessi vandamál, raunar tvær nefndir, lögðu þeir til. Og það var gert nákvæmlega að þeirra ráði allra, með samkomulagi við þá.
Þessar nefndir hafa síðan starfað og starfað vel og krufðu þessi mál öll til mergjar og komust að sameiginlegum niðurstöðum um meginmálsatriði. Sameiginlega hafa þeir nú skilað drögum að frv. til mín, eins og þeir hafa komið sér saman um, og eiga aðeins eftir að segja sitt síðasta orð um eitt málsatriði eða svo um hvort málið um sig, styttingu vinnuvikunnar og lengingu orlofsins. Þegar aðilar hafa sagt mér annaðhvort að þeir hafi náð fullu samkomulagi eða að þá greini á um eitthvert atriði, þá er komið að hnút, sem ég verð að höggva á, en þeir hafa ekki sagt þetta síðasta orð enn þá, og þess vegna hef ég ekki lagt frv. um styttingu vinnuvikunnar og lengingu orlofsins fram. Það verður gert á þeirri stundu, sem þeir hafa lokið störfum í þessum nefndum, sem ég að þeirra ósk og ráði skipaði til þess að fjalla um þessi mál, svo að það spillti engum öðrum möguleikum í samningunum og væri með þeirra vilja gert að taka þannig á málunum.
Stjórnin er því sýkn saka, a. m. k. að því er snertir þessar ásakanir um að hafa tafið samningamálin með aðgerðarleysi varðandi styttingu vinnuvikunnar og lengingu orlofs. Þær ásakanir í Vísi og Alþýðublaðinu eru algjörlega úr lausu lofti gripnar, og vænti ég, að þau geti fengið staðfestingu á því, að það, sem ég hef skýrt frá hér, er rétt, hvort sem þau vilja snúa sér til Vinnuveitendasambands Íslands, Vinnumálasambandsins eða þá til Alþýðusambandsins. Ég hygg, að þeim aðilum mundi öllum bera saman um, að ríkisstj. eigi enga sök á því, að þeir hafa ekki enn þá komizt að fullri niðurstöðu um lausn þessara mála. En að öllu leyti hefur málsmeðferðinni verið hagað þannig, að þetta félli sem bezt inn í samningamálin í heild.