24.11.1971
Neðri deild: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)

Launa og kaupgjaldsmál

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég hef nú ekki mikið að segja við þessum fsp. þessa hv. þm. Ég veit, að hv. alþm. eru skilningsríkir menn, og ég vil ekki vantreysta þeim út af fyrir sig til þess að skilja þessi gögn. En hitt veit ég líka, að þeir menn, sem standa í þessum samningum, eru margir þaulvanir og hafa fjallað um slík gögn sem þessi oft áður. Og í annan stað vil ég aðeins bæta því við, endurtaka það, sem ég sagði áðan, að það hefur ekki verið venja áður, svo að mér sé kunnugt um, að leggja slíka útreikninga sem þessa fyrir alþm.